Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar 28. ágúst 2026 19:10 Ég skil vel þau sem vilja ekki að Ísland gangi í ESB af því þau vilja að Íslendingar ráði yfir Íslandi og hryllir við að „báknið í Brussel“ og evrópskir pólitíkusar taki af okkur fullveldið. Ég hugsaði svona sjálfur um tíma. Það er rosalega ríkt í þjóðarsálinni – og í flestu fólki - að vilja sem mest frelsi og sjálfsstjórn. Sjálfstæðisbaráttan er enn í nokkuð fersku þjóðarminni svo ef fólk heyrir „framsal fullveldis“ eða jafnvel bara „framsal löggjafarvalds“ þá fer það skiljanlega í baklás. Þess vegna er svo mikilvægt að halda því til haga að við erum ekki að tala um að gangast aftur undir dönsku krúnuna eða selja Noregskonungi Grímsey (eins og Einar Þveræingur mótmælti) og við erum ekki heldur að tala um að láta Ursulu von der Leyen eða nafnlausu embættismennina hennar „stjórna Íslandi“. Við erum fyrst og fremst að tala um að taka formlega þátt í nánara samstarfi milli Evrópuríkja og í því að setja reglur um sameiginlega EES-markaðinn sem við erum nú þegar að mestu hluti af. Þegar talað er um „framsal löggjafarvalds“ þá er átt við að reglugerðir ESB myndu taka gildi á Íslandi án þess að þurfa að fara í gegnum Alþingi fyrst. Í ljósi þess að íslensk stjórnvöld hafa innleitt sirka eina slíka reglugerð á dag í þau rúmu 32 ár sem við höfum verið hluti af EES og ekki hafnað einni einustu þá myndi þetta fyrst og fremst losa þingið og stjórnsýsluna við mikið af tilgangslausri vinnu. Þegar talað er um „framsal dómsvalds“ þá er átt við að Evrópudómstóllinn myndi úrskurða um mál sem falla undir svið ESB og sameiginlega markaðarins og að dómar hans væru formlega bindandi. Í dag er það EFTA-dómstóllinn sem úrskurðar um slík mál (sem falla undir EES) og eru dómar hans formlega ráðgefandi. Hæstiréttur hefur hins vegar aldrei gengið gegn þeim og ég man ekki til þess að okkur hafi þótt það eitthvað sérstaklega léttvægt eða „ráðgefandi“ í reynd þegar EFTA-dómstóllinn úrskurðaði um mögulegar skuldbindingar okkar í Icesave-málinu. Allt á þetta bara við um málefni sem heyra undir ESB samkvæmt grunnreglum þess. Þau málefni eru fyrst og fremst regluverk sameiginlega markaðarins (þar á meðal landbúnaður og sjávarútvegur), tollabandalagið og fríverslunarsamningar, gjaldmiðilsstefna, umhverfisstefna, málefni flóttafólks og svo ákveðnir angar annarra málaflokka sem eru skýrt skilgreindir í sáttmálum sambandsins og flestir nú þegar hluti af EES eða öðru regluverki á Íslandi. Ríki sambandsins halda forræði að fullu eða mestu leyti yfir flestum stærstu málaflokkum stjórnmálanna: skattlagningu og útgjöldum hins opinbera, heilbrigðismálum, menntamálum, bótakerfinu, þjóðaröryggi, skipulagsmálum, menningu og innlendri löggæslu. Hvorki Ursula né embættismennirnir, Evrópuþingið eða Evrópudómstóllinn stjórna þessu að neinu ráði. Grímsey er óhult. Svo er ESB með sameiginlega stefnu í utanríkis- og varnarmálum – en fyrir henni þarf einróma samþykki allra aðildarríkja, svo ekkert ríki þarf að taka upp stefnu sem það vill ekki taka upp. Síðan hafa ríkin hvert sína sjálfstæðu utanríkisstefnu – eins og hefur t.d. sést nýlega í ólíkri afstöðu þeirra til þjóðarmorðsins í Palestínu (Belgar, Spánverjar, Hollendingar og Írar taka til dæmis þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísraelsstjórn fyrir Alþjóðadómstólnum og Írland lögfesti fyrr í sumar bann við innflutningi á vörum frá landtökubyggðum Ísraela) og deilum Spánverja og Ítala um landamæramál. Í grunninn er þetta í raun allt og sumt sem grýlan um „framsal fullveldis“ byggir á. Þátttaka í tollabandalaginu og í sameiginlegu landbúnaðar- og sjávarútvegskerfunum, vissulega. Þess utan væri þetta fyrst og fremst formbreyting á löggjöf og dómum um sameiginlega markaðinn sem gildir á afmörkuðum sviðum og breytir í raun litlu sem engu í framkvæmd – og svo þátttaka, með neitunarvaldi, í að móta sameiginlega utanríkisstefnu sambandsins og í almennt nánara samstarfi með þessum ríkjum. Öll ríki hafa svo neitunarvald við allar tilraunir til að víkka völd sambandsins yfir á önnur svið. Þetta er skynsamlegt fyrirkomulag. Sum mál virða ekki landamæri: alþjóðleg stórfyrirtæki og fjármagn gera það sjaldan og loftslagsbreytingar gera það svo sannarlega ekki. Við erum nú þegar hluti af sameiginlegum markaði EES að stærstum hluta og það þarf að setja reglur um hann – spurningin er hvort við tökum þátt í því eða ekki. Fyrir mér snýst það um hvort við viljum láta aðrar þjóðir Evrópu um að móta stefnu heimsálfunnar okkar og viðbrögð við stærstu áskorunum nútímans sem snerta okkur öll - eða hvort við viljum sjálf hafa áhrif á það. Fólk getur verið sjálfstætt og líka kosið að vinna náið með öðrum að sameiginlegum hagsmunum. Við Íslendingar getum stjórnað okkur sjálf en líka tekið virkari þátt í því að stjórna Evrópu. Við hljótum allavega að vilja skoða þann valkost meðan við getum það enn. Höfundur er doktor í stjórnmálafræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar