Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar 28. ágúst 2026 16:42 Ungum Íslendingum er mun betur borgið utan Evrópusambandsins (ESB), heldur en innan þess. Þeir eiga auðveldara með að safna fyrir fyrstu íbúð, þeim stendur til boða betri háskólamenntun utan ESB landa, en innan sambandsins og þeirra bíða mun betri atvinnuhorfur að námi loknu, heldur en jafnöldrum þeirra í ESB löndum. Vextir virka í báðar áttir Ungir Íslendingar munu eiga auðveldara með að safna fyrir útborgun í fyrstu íbúð, heldur en jafnaldrar þeirra í ESB löndum. Samantekt Hagstofu Íslands á eignum og skuldum einstaklinga og fjölskyldna skv. skattframtölum fyrir árið 2024 sýnir eigna- og skuldastöðu Íslendinga eftir aldurshópum. Samantektin sýnir að Íslendingar undir 24 ára hafa hærra hlutfall af eignum sínum í reiðufé (44,2%) heldur en aðrir aldurshópar (7,3% til 14,4%). Þá er eiginfjárhlutfall þeirra hærra (64,0%) heldur en annarra aldurshópa fram að 50 ára aldri. Það þýðir það, að þeir hafa hlutfallslega meiri ábata af hærri vöxtum á innlánum og svigrúm til sparnaðar, heldur en aðrir aldurshópar. Eftir síðustu stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands þann 19. ágúst sl. bjóðast vextir á innlánum með þriggja mánaða bindingu 7,75% í íslenskum krónum, en 1,75% í evrum, eða 6,0% stigum hærri. Verðbólga á síðustu tólf mánuðum var 5,3% á Íslandi, en 3,0% á evru svæðinu, eða 2,3% stigum hærri. Er þannig ljóst að það mun taka mun lengri tíma fyrir Íslendinga undir 24 ára aldri að safna fyrir útborgun í fyrstu íbúð, ef við göngum í ESB og tökum upp evruna, heldur en við núverandi aðstæður. Háskólar í ESB löndum standast illa alþjóðlegan samanburð Við Íslendingar eigum að vera metnaðargjörn, þegar kemur að menntun unga fólksins okkar. Þannig er rík hefð á meðal þess, að sækja sér framhaldsmenntun utan landsteinana. Háskólar í löndum ESB eru aftur á móti langt frá því að veita bestu skólum á öðrum heimssvæðum samkeppni. Af þeim 50 háskólum, sem til dæmis fengu hæstu einkunn í úttekt Times Higher Education fyrir árið 2026, voru: 23 háskólar í Bandaríkjunum, 8 háskólar í Evrópulöndum, sem standa utan við ESB, 5 háskólar í löndum ESB, Kína og öðrum löndum Asíu og 4 háskólar annars staðar í heiminum. Af háskólum innan ESB fékk Tækniháskólinn í München (Technische Universität München) hæstu einkunn og lenti 27. sæti. Innan þessara sex heimssvæða lentu bestu háskólarnir á hverju svæði fyrir sig ofar heldur en tækniskólinn. Er því ljóst að ungum Íslendingum gæti verið betur borgið í háskólum utan ESB landa, heldur en innan þeirra. Framúrskarandi útkoma háskóla í Bandaríkjunum og í Asíu ætti einnig að opna augu ungra Íslendinga fyrir fleiri valkostum: Þeim stendur svo margt annað til boða, heldur en ESB. Atvinnuleysi gæti blasað við ungum Íslendingum eftir inngöngu í ESB Auðvitað eru þeir, sem eru undir 24 ára aldri, almennt eignaminni en aðrir aldurshópar, enda standa þeir flestir utan vinnumarkaðar. Eignir þeirra og eigið fé aukast aftur á móti um leið og þeir fara út á atvinnumarkaðinn síðar á lífsleiðinni. En atvinnuleysi hefur herjað á ungt fólk (15-24 ára) í löndum ESB og á evrusvæðinu og gæti blasað við ungum Íslendingum, ef við göngum í ESB. Samkvæmt gögnum Alþjóðabankans (World Bank) fyrir árið 2025 var áætlað atvinnuleysi þessa aldurshóps 9,5% á Íslandi, en 16,6% í löndum ESB og á evrusvæðinu. Af löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var atvinnnuleysi á meðal þessa hóps einungis lægra í Þýskalandi (7,1%) og Hollandi (8,8%), heldur en á Íslandi. Með inngöngu í ESB og upptöku evru mun Ísland taka upp fast gengi evru, í stað fljótandi gengi íslensku krónunnar, sem við höfum stuðst við á þessari öld. Þetta getur leitt til þess, að ef viðskiptakjör okkar versna, eins og oft gerist í milliríkjaviðskiptum opinna hagkerfa eins og Íslands, að jafnvægi endurheimtist ekki með lækkun gengis gjaldmiðils okkar, heldur fækkun starfa. Þetta veldur atvinnuleysi hjá ungu fólki í aðildarríkjum ESB eða á evrusvæðinu. Það er aftur á móti áhætta, sem við getum ekki boðið ungum Íslendingum. Höfundur er fyrrverandi forstjóri Bankasýslu ríkisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar