Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar 28. ágúst 2026 13:21 Nú er aðeins sólarhringur þar til þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um það hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. ”Þjóðin ræður” er yfirskrift funda um allt land þar sem forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, hefur rætt við fólkið í landinu og hlustað á hin ólíku sjónarmið. Forsætisráðherra og við öll vitum að þjóðaratkvæðagreiðsla um mikilvægt málefni er æfing í lýðræði, virku lýðræði, og hver sem niðurstaðan verður þá er ljóst að við höfum tekið þátt í samtölum og rökræðu sem eru forsenda þess að taka upplýsta ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hvernig sem fer er ávinningurinn sá að við erum betur að okkur um aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu, um íslenska hagsmuni og ólíka sýn á hvernig staða Íslands verður best tryggð í alþjóðlegu ölduróti. En svo kann að fara að fjársterkir aðilar nái tilætluðum árangri. Með hræðsluáróðri, rétt eins og gert var í fyrra þegar þessir sömu aðilar lögðust á eitt til að reyna að koma í veg fyrir hækkun veiðigjalda. Ekkert af hrakspám stjórnarandstöðunnar hefur ræst nú ári síðar! En óumdeilanlega er djúp gjá milli þeirra sem standa vörð um sérhagsmuni sína, einokun, og hinna sem tala fyrir almannahagsmunum. Andstaða peningaaflanna, og fjárfesting í henni, er í raun með ólíkindum. Það er ekki verið að kjósa um aðild að Evrópusambandinu á morgun, það er verið að kjósa um hvort hefja eigi viðræður við Evrópusambandið að nýju. Já eða nei um það. Það er eðlilegt að við höfum blendnar tilfinningar til Evrópusambandsaðildar, en það er ekki tímabært að taka afstöðu til þess fyrr en samningur liggur fyrir. Jáið núna er já við því að kanna hvað í samningi gæti falist. Svo fáum við tækifæri síðar til að taka afstöðu þegar samningsdrög liggja fyrir. Mín von er sú að fólk láti ekki hræða sig frá því að segja já á morgun. Ég er spennt að sjá hvað samningur gæti fært okkur en hugnist mér það ekki þá segi ég nei. En ekki núna. Á morgun segi ég Já! Höfundur er fyrrv. sendiherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Nú er aðeins sólarhringur þar til þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um það hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. ”Þjóðin ræður” er yfirskrift funda um allt land þar sem forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, hefur rætt við fólkið í landinu og hlustað á hin ólíku sjónarmið. Forsætisráðherra og við öll vitum að þjóðaratkvæðagreiðsla um mikilvægt málefni er æfing í lýðræði, virku lýðræði, og hver sem niðurstaðan verður þá er ljóst að við höfum tekið þátt í samtölum og rökræðu sem eru forsenda þess að taka upplýsta ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hvernig sem fer er ávinningurinn sá að við erum betur að okkur um aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu, um íslenska hagsmuni og ólíka sýn á hvernig staða Íslands verður best tryggð í alþjóðlegu ölduróti. En svo kann að fara að fjársterkir aðilar nái tilætluðum árangri. Með hræðsluáróðri, rétt eins og gert var í fyrra þegar þessir sömu aðilar lögðust á eitt til að reyna að koma í veg fyrir hækkun veiðigjalda. Ekkert af hrakspám stjórnarandstöðunnar hefur ræst nú ári síðar! En óumdeilanlega er djúp gjá milli þeirra sem standa vörð um sérhagsmuni sína, einokun, og hinna sem tala fyrir almannahagsmunum. Andstaða peningaaflanna, og fjárfesting í henni, er í raun með ólíkindum. Það er ekki verið að kjósa um aðild að Evrópusambandinu á morgun, það er verið að kjósa um hvort hefja eigi viðræður við Evrópusambandið að nýju. Já eða nei um það. Það er eðlilegt að við höfum blendnar tilfinningar til Evrópusambandsaðildar, en það er ekki tímabært að taka afstöðu til þess fyrr en samningur liggur fyrir. Jáið núna er já við því að kanna hvað í samningi gæti falist. Svo fáum við tækifæri síðar til að taka afstöðu þegar samningsdrög liggja fyrir. Mín von er sú að fólk láti ekki hræða sig frá því að segja já á morgun. Ég er spennt að sjá hvað samningur gæti fært okkur en hugnist mér það ekki þá segi ég nei. En ekki núna. Á morgun segi ég Já! Höfundur er fyrrv. sendiherra.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar