Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar 28. ágúst 2026 11:02 Eitt af mörgu sem hefur verið notað til að færa rök fyrir því að þjóðin eigi að segja já við áframhaldandi viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið er að við það muni matarkarfan verða ódýrari á Íslandi. En eru það rök sem standast skoðun og erum við tilbúin að fórna þeim gæðum sem fylgja íslenskum landbúnaðarvörum? Öll vitum við að á Íslandi gilda strangar reglur um velferð dýra og sýklalyfjanotkun er með því minnsta sem þekkist í landbúnaði á heimsvísu. Rekjanleiki matvöru er mikilvægur og þegar við neytum íslenskra matvæla getum við verið viss um að matvaran er framleidd við aðstæður sem við getum öll verið ánægð með. En hvað er það sem gerir íslenskan mat eins og mjólk eða nautakjöt dýrari en í mörgum löndum sem við berum okkur saman við? Eitt af því sem er nefnt er hversu norðarlega á jarðkringlunni við erum, sumarið sé stutt og hingað þurfi að flytja vörur eins og olíu, áburð og kjarnfóður langa leið yfir sjó. Við erum ekki að fara að breyta því við inngöngu í ESB. Aftur á móti eru aðrir þættir sem gætu breyst við inngöngu í ESB. Ein sterkustu rökin fyrir inngöngu í ESB er upptaka Evru sem gjaldmiðils og lægri vaxtakostnaðar sem fylgi henni í stað íslensku krónunnar. Samkvæmt niðurstöðum úr rekstrargreiningu kúabúa á Íslandi undanfarin ár hafa vaxtagjöld verið rúmlega 10% af heildartekjum í rekstrinum. Þannig mun það breyta miklu fyrir afkomu bænda ef við náum að losna við verðtryggingu lána og fáum svipaða vexti og bændur sem núna eru í ESB. Lækkun vaxta mun ekki bara hafa áhrif bændur sjálfa heldur mun það einnig hafa áhrif á rekstur allra fyrirtækja sem tengjast landbúnaði. Birgjar sem bændur kaupa rekstrarvörur af og þeir sem selja bændum dráttarvélar, mjaltaþjóna, innréttingar, fjós o.s.frv. munu geta fjármagnað sig á ódýrari hátt sem ætti að skila sér í minni kostnaði fyrir bændur. Afurðarstöðvar bænda gætu þannig líka fjármagnað sig með hagkvæmari hætti. Einnig mætti ætla að heild- og smásalar sem selja vörur bænda gætu líka lækkað sinn fjármagnskostnað og þannig boðið neytendum vörur bænda á lægra verði. Annað sem líka tengist gjaldmiðlinum er að erlendar vörur sem bændur kaupa af innlendum endursölum þarf í mörgum tilvikum að greiða áður en varan leggur af stað til Íslands vegna þeirrar gengisáhættu sem fylgir íslensku krónunni. Þessi áhætta og gengisálag mun hverfa ef Ísland tekur upp Evru sem gjaldmiðil. Fleira má telja til þegar kemur að hagræðingu í landbúnaði. Þannig hefur gríðarlegur árangur náðst í eldi á holdagripum eftir að hingað var byrjað að flytja inn erlenda fósturvísa af Aberdeen Angus kyni sem síðan hafa verið nýttir til að rækta stærri holdagripi með meiri vaxtarhraða en þekkist hjá íslenska kúakyninu. Vaxandi hlutfall mjólkurframleiðenda hefur viljað nýta sér sömu tækni til að fá afurðarmeiri og betri gripi til framleiðslu mjólkur á Íslandi. Fordæmið úr kjötframleiðslunni hljóta bændur að þurfa að nýta sér einnig í mjólkurframleiðslunni. Vart þarf að taka fram að vegna sérstakrar stöðu hvað varðar einangrun landsins og þá fáu búfjársjúkdóma sem á Íslandi eru þá kæmi aldrei til greina að opna landið fyrir innflutning á lifandi dýrum. Tollvernd sem íslenskur landbúnaður býr núna við er ekki náttúrulögmál en hún gerir það að verkum að innlend framleiðsla á erfiðara með að keppa við innflutning komi til breytinga á verndinni. Þess vegna væri æskilegra að styrkja bændur um hærri upphæðir, þannig að hlutfall afurðarverðs af tekjum bænda sé lægra. Bændum verði bætt lægra afurðaverð upp með auknum styrkjum, bæði frá Evrópusambandinu og íslenska ríkinu. Færa má sterk rök fyrir því að íslenskir bændur eigi heimtingu á auknum styrkjum. Vegna þess að ef Evra verður tekin upp mun vaxtakostnaður íslenska ríkisins af erlendum skuldum og þeim gjaldeyrisvaraforða sem Seðlabankinn þarf að hafa til að verja gengi íslensku krónunnar minnka. Landbúnaðarstefna Evrópusambandsins tekur meira mið af byggðarþróun í löndum Evrópusambandsins miðað við hvernig kerfið er byggt upp á Íslandi. Hér á landi fer lang stærstur hluti styrkja ríkisins til kúa og sauðfjárbænda, auk garðyrkju. Einungis litlu fjármagni er ráðstafað til fjárfestinga og nýliðunar. Staðan í dag er þannig að meðalaldur bænda fer að nálgast ellilífeyrismörk og þegar aðbúnaðarreglugerðir hafa verið hertar hefur ekki fengist nægt fjármagn til að koma til móts við bændur í öllum greinum landbúnaðarins. Byggðarsjónarmið, auknir styrkir til nýliðunar og fjárfestinga eru þrír lykil þættir sem íslenskir bændur geta horft til ef Ísland verður aðili að ESB. Oft vill gleymast hversu mikil tækifæri liggja í íslenskum landbúnaði. Einungis hluti þess góða ræktunarlands sem við eigum er í dag nýttur til framleiðslu á okkar einstöku landbúnaðarvörum. Við höfum mikil tækifæri ef við horfum jákvæð til framtíðar og þó matur eigi ekki að vera ódýr þá er óþarfi fyrir okkur að gera hann dýrari en hann þarf að vera. Höfundur er bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar