Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar 28. ágúst 2026 18:11 Eftir örfáa daga ákveða Íslendingar hvort landið eigi að hefja að nýju viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er ekki aðeins mál milli Íslands og ESB. Val Íslendinga gæti haft veruleg áhrif á umræðuna um ESB í Noregi og þar með á stöðu Norðurlandanna í Evrópu. Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist einnig hafa áttað sig á því. Í nýrri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna er þróuninni í Evrópu lýst með nánast fjandsamlegum hætti. ESB er sakað um að grafa undan fullveldi og lýðræði í Evrópu og þar stendur svart á hvítu að Bandaríkin hyggist stuðla að því að breyta pólitískri stefnu Evrópu. Trump vill ekki sterkari og sameinaðri Evrópu. Hann vill Evrópu sem samanstendur af einstökum ríkjum sem Bandaríkin geta samið við eitt af öðru. Í því samhengi skiptir Ísland máli. Ásamt Noregi hefur Ísland mikið strategískt mikilvægi í samstarfinu yfir Atlantshafið, bæði sem tengiliður milli Norður-Ameríku og Evrópu og vegna harðnandi stórveldasamkeppni á norðurslóðum. Bæði löndin eru stórar sjávarútvegsþjóðir, búa yfir umfangsmiklum áliðnaði og standa framarlega á sviði umhverfistækni. Það skýrir ítrekaðar óskir danskra, sænskra og finnskra leiðtoga um að sjá bæði Ísland og Noreg við borðið í Brussel. Þeir benda á að sameinuð Norðurlönd innan ESB myndu styrkja getu Evrópu til að gæta og verja strategíska hagsmuni sína í heimi þar sem beiting valds fær sífellt meira vægi. Viðskipti, tækni og markaðsstyrkur eru í auknum mæli notuð til að ögra lýðræðissamfélögum, ekki aðeins af Rússlandi og Kína, heldur nú einnig af Bandaríkjunum. Jafnframt gæti aukið vægi Norðurlandanna innan ESB ýtt sambandinu í átt að opnari mörkuðum, meiri samkeppnishæfni og minni ríkisafskiptum en oft einkenna stærri ríkin í sunnanverðri Evrópu. Samkeppnishæfara og strategískt öflugra ESB er einmitt það sem Donald Trump vill ekki. Þess vegna er ekki óeðlilegt að spyrja hvort bandarísk stjórnvöld hafi einnig haft íslensku ESB-umræðuna í huga þegar Ísland var í sumar undanþegið viðbótartollum sem lögðust á Noreg. Á einni nóttu fékk íslenskt sjávarfang samkeppnisforskot á Bandaríkjamarkaði. Fyrir íslenska andstæðinga ESB-aðildar gat tímasetningin vart verið hagstæðari. Hvers vegna ætti Ísland að færa sig nær ESB ef það gæti veikt samkeppnisstöðu sjávarútvegsins á mikilvægasta útflutningsmarkaði heims? Í Noregi gæti íslenskt nei jafnframt sett fleyg í þá ESB-umræðu sem nú er farin að vakna þar á ný. Með aðild Íslands að ESB myndi EES-samningurinn veikjast enn frekar, eftir að vægi hans hefur þegar minnkað á undanförnum árum, og það gæti aukið þrýsting á Norðmenn um að endurmeta stöðu sína gagnvart ESB. Fyrir Trump væri það afar hagstæð niðurstaða: staða ESB á norðurslóðum yrði áfram veikari. Vægi Norðurlandanna innan sambandsins myndi ekki aukast. Og Washington gæti áfram átt samskipti við Noreg og Ísland sem tvö smáríki í stað þess að þau væru hluti af stærri evrópskri valdablokk. En hvers virði er velvild Trumps í raun? Grænland er víti til varnaðar, þar sem Trump heldur áfram þrýstingi sínum um að ná yfirráðum yfir dönsku landsvæði. Nýjasta dæmið er Suður-Kórea, þar sem Trump dregur nú úr hernaðarlegu samstarfi til að ganga í augun á einræðisherranum í Pyongyang. Það ætti að vera nægileg viðvörun: Ísland kann að vera í hópi eftirlætisríkja Trumps í ágúst, en enginn veit hver verður næstur í september. Tollalegt forskot sem veitt er frá Washington er því engin framtíðarstefna. Það varir nákvæmlega eins lengi og Trump telur það þjóna bandarískum hagsmunum. Ísland stendur því frammi fyrir mun stærri spurningu 29. ágúst en hvar hægt verður að selja fiskinn á hagstæðustum kjörum á næsta ári. Spurningin snýst um hvaða pólitíska og strategíska afl lítið lýðræðisríki í Norður-Atlantshafi vill eiga kost á að vera hluti af í heimi þar sem stórveldin beita á ný viðskiptum, öryggismálum og yfirráðum yfir landsvæðum sem valdatækjum. Já frá Íslandi myndi ekki aðeins styrkja valkosti Íslands sjálfs. Það gæti einnig aukið vægi Norðurlandanna innan ESB, og þar með getu Evrópu til að standa vörð um hagsmuni sína í heiminum. Ísland er lítið ríki. En einmitt nú gæti það orðið lóð á vogarskálarnar í mun stærri baráttu um getu Evrópu til að verja hagsmuni sína og gildi í sífellt hættulegri heimi. Höfundur er ráðgjafi í Evrópumálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar