Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar 28. ágúst 2026 07:47 Á Suðurlandi býr kraftmikið fólk í kyngimögnuðu umhverfi. Hér er rekinn blómlegur landbúnaður, sjávarútvegur, iðnaður, ferðamennska og margt fleira. Suðurlandi verður ekki lýst með einu orði, ekki einni setningu og ekki í einni málsgrein. Allt sem hér hefur dreypt á, á sér þó einn samnefnara: Samskipti við útlönd. Án innflutnings er erfitt að rækta gjöful tún, eða kaupa kjarnfóður. Ferðaþjónustan reiðir sig á að hingað komist ferðamenn og að þeir eigi ráð á því að kaupa gistingu, fæði og afþreyingu. Sjávarútvegur og fiskeldi reiðir sig á að koma sínum vörum á markað. Nú er komið að kosningum um framtíð Íslands og okkar sem hér búum. Engum dylst að heimurinn okkar er breyttur, tollmúrar eru að rísa og atburðir sem gerast langt frá Hveragerði og Kirkjubæjarklaustri hafa áhrif á okkur á hverjum degi. Sumir segja að þetta sé atkvæðagreiðsla um hvar valdið liggur. Í því felst sú undarlega þversögn að við það að auka áhrif okkar um lög og reglur sem gilda hér landi, vegna aðildar Íslands að EES, verðum við áhrifaminni. Á Suðurlandi, eins og á landinu öllu, líður venjulegt launafólk fyrir fákeppni; t.d. í bankaþjónustu, tryggingasölu og matvöruverslun. Öll þessi atriði flokkast undir nauðsynjar. Við sem rekum heimili komumst ekki hjá því að kaupa þessa þjónustu. Er ekki vel þess virði að fá það á hreint í eitt skipti fyrir öll hvort samningur við ESB gæti bætt stöðu okkar sem búum við þann veruleika? Ég skil vel að fólk sem á mikið sparifé í íslenskum bönkum sé uggandi yfir því að vextir af hverjum milljarði fari úr 80 milljónum í 20 milljónir, en ég á ekki von á því að mér endist ævin til að eignast milljarð í banka á ofurvöxtum. Þess vegna óttast ég ekki að þjóðin gangi til viðræðna við ESB. Sannleikurinn er sá að atkvæðagreiðslan á morgun snýst um það hvort við viljum fjölga valmöguleikum okkar. Þetta er atkvæðagreiðsla um hvort við getum aukið enn frekar á frelsi okkar og öryggi, og á sama tíma staðið vörð um okkar dýrmætustu hagsmuni. Þess vegna segi ég JÁ. Höfundur er þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sandra Sigurðardóttir Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar