Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild skrifar 28. ágúst 2026 07:15 „Ég vil bara sjá hvað er í boði. Það kostar ekkert að kíkja, af hverju megum við ekki bara fá að sjá?“ Þessi orð hafa verið kunnuglegt stef síðustu daga og vikur, hjá þeim sem telja hag Íslands betur borgið innan Evrópusambandsins. Ákvörðuninni um að Ísland gangi inn í yfirþjóðlegt ríkjabandalag, með tilheyrandi framsali á ákvörðunarvaldi og fullveldi, hefur verið líkt við fasteignakaup, stefnumót með frægum einstaklingum, samningi við knattspyrnufélag og lestri á matseðli. Allt er þetta gert til að villa um fyrir ungum kjósendum. Það er ekkert líkt með því að fara á stefnumót með frægum og ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í grunninn snýst atkvæðagreiðslan á laugardaginn um hvort að við séum tilbúin að taka ákvörðunarvaldið yfir framtíð Íslands af börnum okkar og barnabörnum. Hvort við teljum að evrópskir embættismenn í Brussel séu betri í að stjórna landinu okkar, auðlindunum og gæta okkar hagsmuna heldur en framtíðarkynslóðir þessa lands. Með því að kjósa já á laugardaginn eru skilaboðin þau að evrópskum stjórnmála- og embættismönnum sé betur treystandi fyrir framtíð komandi kynslóða en börnum okkar og barnabörnum. Óháð því hversu vel ríkisstjórninni tekst að semja við Evrópusambandið mun valdið yfir okkar eigin framtíð skerðast með aðild. Það sem meira er, atkvæðavægi Íslands um þær ákvarðanir yrði nær ekkert. Það er óumdeilt að framsal á þessu valdi, lokaorðið um málefni Íslands, verður ekki á samningaborðinu. Það fer frá Íslandi til Brussel. Spurningin er því ekki hvort við viljum eiga samskipti við Evrópu. Ísland á og mun áfram eiga náið samstarf við Evrópuríki. Spurningin sem þú þarft að spyrja þig er hvar þú telur að lokaorðið eigi að vera, hjá valdastofnunum Evrópusambandsins eða hjá íslensku þjóðinni í gegnum Alþingi? Baráttan um framtíð Íslands hefur leitt saman ungt fólk sem er ósammála um ótal margt. Við komum úr ólíkum áttum, höfum ólíkar stjórnmálaskoðanir og sjáum samfélagið með ólíkum augum. En eitt sameinar okkur. Sannfæringin um að Íslendingar eigi sjálfir að ráða framtíð landsins síns. Í þessari baráttu hefur sú sannfæring aðeins orðið sterkari. Fyrri kynslóðir hafa byggt upp farsælt samfélag. Ísland hefur farið úr því að vera eitt fátækasta ríki Evrópu í að vera í fremstu röð þegar kemur að lífskjörum, jafnrétti og friðsæld. Sá árangur varð ekki til af sjálfu sér. Við gerum ekki lítið úr þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir hér á landi. En aðild Íslands að Evrópusambandinu er ekki forsenda þess að við getum leyst þær. Þvert á móti eru þetta verkefni sem við sjálf berum ábyrgð á að leysa með okkar eigin ákvörðunum, á okkar eigin forsendum. Við höfum lært af þeim sem byggðu landið upp og erum traustsins verð. Leyfum framtíðarkynslóðum að eiga lokaorðið. Leyfðu okkur, þínum systrum, bræðrum, börnum og barnabörnum, að fá sömu tækifæri og fyrri kynslóðir til þess að eiga lokaorðið um málefni Íslands, á forsendum Íslands. Framtíðin er björt ef hún verður áfram í okkar höndum. Setjum X við nei. Höfundar: Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir Alda María Þórðardóttir Aldís Dröfn Ingvarsdóttir Andrea Edda Guðlaugsdóttir Anton Berg Sævarsson Anton Sveinn McKee Árdís Lilja Gísladóttir Aron Ágústsson Atli Ársælsson Atli Dagur Guðmundsson Berglind Haraldsdóttir Berglind Sunna Bragadóttir Birgir Liljar Soltani Birgitta Birgisdóttir Birkir Ólafsson Birkir Óli Gunnarsson Birkir Örn Þorsteinsson Birkir Snær Brynleifsson Birta Karen Tryggvadóttir Björn Gunnar Jónsson Björn Ívar Björnsson Blædís Birna Árnadóttir Bóas Sigurjónsson Böðvar Stefánsson Breki Atlason Bríet Járngerður Bríet Magnúsdóttir Daníel Hjörvar Guðmundsson Dísa Svavarsdóttir Dísa Svövudóttir Dóra Tómasdóttir Einar Arnalds Kristjánsson Einar Freyr Guðmundsson Eiríkur Kúld Viktorsson Elías Baldvinsson Elín Karlsdóttir Elvar Fossdal Embla Kristín Blöndal Emilíana Splidt Fannar Logi Waldorff Sigurðsson Franklín Ernir Kristjánsson Friðrik Júlíus Jósefsson Hólmfríður Gunnarsdóttir Guðfinna Dilja Þorvaldsdóttir Guðmundur Þórir Sigurðsson Guðni Ívar Guðmundsson Guðni Kjartansson Gunnar Ásgrímsson Halla Margrét Hilmarsdóttir Halldór Ísak Ólafsson Halldór Lárusson Heiðar Davíð Wathne Helga Björg Loftsdóttir Helgi Hjaltason Helgi Rafn Bergþórsson Hermann Nökkvi Gunnarsson Hnikarr Bjarmi Franklínsson Hrafn Splidt Þorvaldsson Hulda Lind Sævarsdóttir Illugi Gunnarsson Ingveldur Anna Sigurðardóttir Íris E. Gísladóttir Ívar Máni Hrannarsson Jódís Káradóttir Jóhann Árni Sigmarsson Jóhann Daði Gíslason Jón Ferdínand Estherarson Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir Kamilla Kara Brynjarsdóttir Karen Ómarsdóttir Karítas Ríkharðsdóttir Karen Helga Ómarsdóttir Karl Héðinn Kristjánsson Katrín Anna Karlsdóttir Kjartan Leifur Sigurðsson Kjartan Magnússon Kristín Alda Jörgensdóttir Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Logi Stefánsson Logi Þór Ágústsson Magnea Gná Jóhannsdóttir Magnús Benediktsson Markús Candi Marzuk Ingi Lamshia Svanlaugarson Matthías Bjarnason Mikael Snær Gísladóttir Nína Axeldóttir Nói Þrastarson Oddur Stefánsson Óðinn Flóki Þorgeirsson Roff Oliver Nordquist Pétur Orri Pétursson Ragnar Óskarsson Ragnheiður Arnarsdóttir Ragnhildur Björt Björnsdóttir Róbert Smári Gunnarsson Salka Sverrisdóttir Salma Björk Önnudóttir Sandra Hafsteinsdóttir Signý Pála Pálsdóttir Sigurður Erlends Guðbjargarson Sólrún Lára Flóvenz Stefán Atli Stefán Örn Ingvarsson Olsen Steinar Ingi Kolbeins Stephanie Sara Drífudóttir Styrmir Jökull Einarsson Sveinn Ægir Birgisson Sveinn Sigurbjarnarson Tinna Eyvindardóttir Tómas Orri Tryggvason Tristan Fjeldsted Úlfur Ægir Halldórsson Unnur Elín Sigursteinsdóttir Walter Fannar Kristjánsson Ýmir Örn Hafsteinsson Þórdís Arna Bjarkarsdóttir Þórður Hugo Björnsson Þórhildur Pálsdóttir Þorkell Ingólfsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar