Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar 28. ágúst 2026 06:16 Hæ, unga fólk. Möguleikarnir eru tveir. Að kanna möguleika á aðild að Evrópusambandinu. Ef um semst og við erum sátt við samninginn, þá fylgir því: Stóraukið fullveldi og aukið sjálfstæði því við fáum sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar. Núna tökum við þegjandi og hljóðalaust við ákvörðunum frá Brussel. Við munum vissulega ekki verða allsráðandi í Evrópusambandinu en litlu þjóðirnar þar – Möltumenn, Lúxemborgarar og Kýpurbúar – eru mjög ánægðar með sinn hlut. Þeim finnst völd þeirra og áhrif hafa aukist með inngöngu í ESB, ekki minnkað. Fullveldi þeirra og sjálfstæði hafi styrkst, ekki veikst. Og íslenska verður opinbert mál í Evrópusambandinu. Því fylgir líka aðild að þjóðabandalagi þar sem lífskjör eru einna best í heiminum, mannréttindi hæst skrifuð, umhverfismál þrátt fyrir allt í bestu standi, vinnuumhverfi og réttindi eru hvergi betri, umburðarlyndi og menning á besta stað í heimi. Ójá, svoleiðis er það. Og aðildinni fylgir miklu meiri stöðugleiki í efnahagsmálum, strax og við höfum tekið upp evru, sem við getum gert með hjálp Evrópska seðlabankans. Evrunni fylgja bæði mannsæmandi vextir og möguleiki á miklu manneskjulegra húsnæðiskerfi. Við höfum ekki reynst þess umkomin í áratugi að koma á slíku kerfi. Evran getur hjálpað til þess. Hvernig gengur að semja um sjávarútvegsmál og landbúnað, það kemur í ljós, ef við sækjum um aftur, en satt að segja eru góðar líkur að við getum náð þar góðum og jafnvel mjög góðum samningum. Evrópuþjóðirnar eru nefnilega vinir okkar. Hinn möguleikinn er að halda áfram við óbreytt ástand. Háu vextina og lamandi verðtrygginguna. Það er mjög gott fyrir ríkasta fólkið en verra fyrir aðra. Eins og ykkur, unga fólk. En svo er því miður mjög líklegt að EES-samningurinn - sem allir mæra nú og hefur fært okkur geysileg gæði síðustu áratugi - að hann verði fljótlega úr gildi fallinn. Það viðurkenna allir, líka Norðmenn, þar sem umræða um ESB-aðild er farin af stað. Við skulum ekki gera ekki neitt. Prófum alla vega, förum til Evrópu og semjum. Svo fellum við bara samninginn ef okkur líkar hann ekki. En tökum sénsinn á að prófa. Það kostar ekkert nema svolítinn pening en með okkar ónýtu krónu þá fer annars eins peningur í vitleysu hér á landi. Prófum. Verum ekki hrædd. Höfundur er útvarpsmaður, blaðamaður og rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Illugi Jökulsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar