Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar 28. ágúst 2026 06:31 Það getur enginn ákveðið að leggja sæstreng til Íslands nema Ísland samþykki það. Punktur. Að halda öðru fram er til þess gert að villa um fyrir almenningi. Samþykki Íslands fyrir slíkri ákvörðun er grundvallarforsenda í þjóðarrétti, alþjóðasamskiptum og regluverki Evrópusambandsins ef út í það væri farið.(1) Enginn getur einfaldlega komið hingað með kapal og hafið framkvæmdir í óþökk íslenskra stjórnvalda. Spáum aðeins í þetta. Hvað myndi það þýða ef erlendir aðilar kæmu hér í óþökk Íslands, færu að bora, leggja sæstreng og hefja útflutning á íslensku rafmagni? Án íslenskra leyfa og samþykkis? Slíkt leyfisleysi erlendra ríkja eða erlendra aðila er það sem næst kemst innrás í fullvalda ríki. Að sjálfsögðu verður það ekki afleiðing þess að segja já á laugardaginn við að klára viðræður við Evrópusambandið. Fyrir nokkrum vikum hefði slík innrás verið enn fjarstæðukenndari hugmynd í nútímasamfélagi þjóða. En áform Bandaríkjanna um olíuleit í lögsögu Grænlands án fyrirfram samþykkis Grænlendinga eru umhugsunarefni þessu tengt. Sum stórveldin eru farin að svífast einskis. Virðing fyrir þjóðarétti er undir miklum þrýstingi og smáríki eiga allt undir í þeim efnum. Einmitt þá eykst mikilvægi þess að við höldum samtalinu opnu við sterka bandamenn sem byggja samskipti sín á sameiginlegum reglum. Evrópusambandið er stærsta markaðssvæði Íslands sem hefur ítrekað áréttað virðingu fyrir alþjóðalögum og þjóðarrétti undanfarin misseri. Að ganga til viðræðna við þau um dýpra samstarf og að gerast hluti af tollabandalagi við þau 27 ríki sem eru í Evrópusambandinu er skynsamlegt á þessum tímum. Við innleiðum nú þegar orkulöggjöf ESB í gegnum EES Þegar fullyrt er að hér muni skyndilega birtast sæstrengur í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu á laugardaginn, gleymist að við erum nú þegar skuldbundin til að innleiða orkulöggjöf ESB vegna EES samningsins. Já á laugardaginn mun engu breyta þar um. Ísland ræður sæstrengnum, hvort sem viðræður hefjast eða ekki. Sæstrengur er okkar ákvörðun, í dag undir EES, og hver sem niðurstaðan verður á laugardaginn. Reglur orkulöggjafar ESB um meðal annars samkeppni og ríkisstyrki gilda því í dag um íslenskan orkumarkað. Hvorki viðræður né aðild að ESB myndi allt í einu færa íslensk orkumál undir evrópskt regluverk. Við erum þegar inni í því kerfi að verulegu leyti. Munurinn er fyrst og fremst sá að með aðild hefðum við sæti við borðið þegar reglurnar eru mótaðar. Umræðan undanfarna daga gegn evrópskum áhrifum á orkumál á Íslandi gengur oft nærri því að tala gegn EES samningnum. Því helsta leiðin til að losna undan kvöðum og byrðum evrópsks regluverks fyrir orkumál á Íslandi er að losna undan EES. Þessa orðræðu ber að varast, enda EES-samningurinn mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands frá upphafi og tryggir Íslandi aðgang að okkar stærsta markaðssvæði. Ríkin hafa full forræði yfir sínum orkuauðlindum Hvort sem það er í Evópuretti eða annarri alþjóðlegri löggjöf, þá er alveg skýrt að forræði orkuauðlinda er ríkjanna sjálfra.(2) ESB getur sett sameiginlegar reglur um orkumarkaði, samkeppni og viðskipti. En það þýðir ekki að sambandið taki ákvörðun fyrir Ísland um hvort nýta eigi jarðvarma, vatnsafl eða aðrar orkuauðlindir – eða hvernig orkukerfið okkar er byggt upp eða hvort það tengist eða ekki. Það þýðir heldur ekki að ESB geti stjórnað eignarhaldi fyrirtækja á orkumarkaði á Íslandi. Dregin hefur verið upp sú mynd að Landsvirkjun verði einkavædd ef af aðildarviðræðum kemur, en það er rangt og gengur beinlínis gegn sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins.(3) Svo nei: við myndum ekki vakna einn morgun við það að einhver annar hefði ákveðið að leggja sæstreng frá Íslandi. Ísland ræður því. Og það breytist ekki við að opna á aðildarviðræður við Evrópusambandið. Höfundur er aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (1) Í 194. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins tryggir að aðildarríkin haldi ákvörðunarvaldi um grundvallaratriði eigin orkustefnu, þar á meðal nýtingu orkuauðlinda og val á orkugjöfum. Evrópudómstóllinn hefur jafnframt staðfest þetta í máli C-594/18 P, meðal annars með því að árétta rétt aðildarríkja sem laut að stuðningi Breta við Hinkley Point C-kjarnorkuverið, áréttaði dómstóllinn að aðildarríki væri frjálst að ákveða samsetningu eigin orkugjafa . Það skiptir máli því það staðfestir að sameiginlegar reglur ESB um orkumál fela því ekki í sér að sambandið taki yfir ákvörðunarrétt ríkja yfir eigin orkuauðlindum. Sjá jafnframt bls. 12 í álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum o.fl . í ljósi reglna Evrópuréttar 10. ágúst 2026 eftir eftir Dr. Gunnar Þór Pétursson, Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, Dr. Margrét Einarsdóttir. “Með vísan til framangreinds ákvæðis, auk d-liðar 1. mgr. 194. gr. SSESB, verður ESB ekki talið vera með valdheimildir til að leggja samtengil (t.d. sæstreng) í óþökk aðildarríkis til annarra aðildarríkja ESB eða skipa aðildarríki að leggja slíkan samtengil til að tengjast innri raforkumarkaði ESB.“, sem og bls. 90-91 auk bls. 96: “Því til viðbótar veitir nýlegur dómur Almenna dómstóls ESB (sameinuð mál T-684/19 og T-704/19) vísbendingu um að valdið til að ákveða nýja/aukna tengingu milli aðildarríkja ESB, og því einnig EES/EFTA-ríkjanna, liggi alfarið hjá aðildarríkjunum.” (2) Ríki fara með fullveldi yfir náttúruauðlindum innan eigin lögsögu, meðal annars samkvæmt meginreglu 2 í Ríó-yfirlýsingunni frá 1992 og meginreglu 21 í Stokkhólmsyfirlýsingunni frá 1972. Í ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna nr. 626 (VII) frá 1952 var réttur ríkja til að nýta náttúruauðlindir sínar í þágu eigin framfara og efnahagsþróunar áréttaður. Enn skýrar birtist þessi afstaða í ályktun nr. 1803 (XVII) frá 1962 um varanleg yfirráð yfir náttúruauðlindum, þar sem réttur þjóða og ríkja til að ráðstafa náttúruauðlindum sínum í þágu þjóðarhags var settur í forgrunn. (3) Í 345. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins segir að reglur um skipan eignaréttar liggi hjá aðildarríkjunum sjálfum, sem þýðir að þeim er í sjálfsvald sett hvort auðlindir og fyrirtæki sem nýta auðlindir séu í opinberri eigu, einkaeigu eða blönduðu eignarhaldi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar