25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar 27. ágúst 2026 20:30 Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið eru áhyggjur af viðvarandi verðbólgu og háum vöxtum skiljanlega lykilatriði í áhuga fólks á endurupptöku. Því hefur verið mætt í umræðunni með að við verðum að ná niður verðbólgu hvort sem er áður en við tækjum upp evru. Það er ekki rangt. En þá er líka rétt að skoða hvernig okkur hefur gengið að halda í skefjum vöxtum og verðbólgu ein og óstudd og meta líkurnar á því að það takist til lengri tíma án þess að til komi frekari stuðningur. Í mars 2001 settu Seðlabanki Íslands og þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verðbólguviðmið sem hefur verið markmið íslenskra stjórnvalda fyrir verðbólguþróun síðan. Það er 2,5% eða fjórðungi hærra en 2% markmið Evrópusambandsins. Það eitt og sér er ákveðin viðurkenning á að óraunhæft sé að verðbólga sé til lengri tíma stöðugt jafnlítil og á meginlandinu. Eflaust gætum við þó flest vel unað við stöðuga verðbólgu í kringum 2,5%. Þann raunveruleika höfum við hins vegar aldrei þekkt til lengri tíma. Á þeim 305 mánuðum sem eru liðnir síðan verðbólgumarkmiðið var sett hefur íslenskum stjórnvöldum tekist að ná því í 77 mánuði eða 25,2% tímans. Til samanburðar hefur meðalverðbólga á evrusvæðinu verið á eða undir verðbólgumarkmiði Íslands í236 mánuði af 304 eða 77,6% tímans, meira en þrefalt oftar en við höfum náð því. Þó tekið sé mið af lægra verðbólgumarkmiði Evrópska Seðlabankans hefur verðbólga á evrusvæðinu verið á eða undir því í 159 mánuði eða 52,3% tímans, meira en tvöfalt oftar en við höfum náð okkar markmiði. Íslenskt efnahagslíf hefur margt til brunns að bera en þrálát verðbólga er viðvarandi vandi frekar en tímabundinn. Háir vextir og verðtrygging eru gjaldið sem við greiðum fyrir það. Fjórðungsárangur er fallárangur á flestum mælikvörðum, hvort sem þeir eru í tölustöfum eða bókstöfum. Auðvelt er fyrir stjórnmálafólk að kenna pólitískum andstæðingum hverju sinni um stöðuna. En staðreyndin er að nær allir flokkar hafa reynt sitt besta að stýra skútunni betur. Á þeim 305 mánuðum síðan verðbólgumarkmiðið var sett hefur Sjálfstæðisflokkur verið í ríkisstjórn í u.þ.b. 233 mánuði (76,4% tímans), Framsóknarflokkur u.þ.b. 203 mánuði (66,6% tímans), Vinstri græn u.þ.b. 137 mánuði (44,9% tímans), Samfylking u.þ.b. 92 mánuði (30,2% tímans), Viðreisn u.þ.b. 30 mánuði (9,8% tímans), Flokkur fólksins u.þ.b. 20 mánuði (6,6% tímans) og Björt framtíð u.þ.b. 10 mánuði (3,3% tímans). Til viðbótar var margt helsta forystufólk Miðflokks nú áður þingmenn og ráðherrar Framsóknarflokks í ríkisstjórn í u.þ.b. 44 mánuði (14,4% tímans). Fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna sem hafa stýrt landinu undanfarinn rúman aldarfjórðung hefur ekki auðnast að tryggja almenningi sama verðstöðugleika til lengri tíma og vinafólk okkar innan evrusvæðisins býr almennt við. Það eru nefnilega ekki illir ræðarar eða brotnar árar sem valda óstöðugu hagkerfi í landinu, heldur er viðvarandi leki í bátnum. Samstarfið í Evrópusambandinu nær til samtals 33 málaflokka. Ísland er hluti af 23 þeirra í gegnum EES-samninginn. Vegna skattkerfisins hér og þátttöku í Schengen eru málaflokkarnir sem í raun út af standa 8 talsins: landbúnaðar- og byggðamál; fiskveiðimál; evrusamstarf; sameiginlegt styrkjakerfi; lagaumhverfi Evrópureglna; tollabandalag; öryggis- og varnarmál; og þátttaka í sameiginlegum fjárlögum. Ef þú hafnar dýpra samstarfi við sambandið óháð því hvernig samið yrði um einhver af þessum átta atriðum, þá er skiljanlegt að hafna endurupptöku aðildarviðræðna nú. En ef þú telur að þátttaka í einhverju af ofantöldu myndi bæta stöðu Íslands, hvort sem er upptaka evru, afnám tolla á evrópskum vörum, þéttara öryggissamstarf eða annað, og værir til í að skoða aðild ef tilteknar sérlausnir myndu nást í samningaviðræðum um einhverja málaflokkanna, þá er borðleggjandi að sjá hvort nýr og stærri bátur borgi sig. Höfundur er formaður Vinstri grænna í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar