Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar 27. ágúst 2026 08:50 Þessa dagana er reynt að selja kjósendum þá hugmynd að upptaka evru myndi leiða af sér fjárhagslegan ávinning í formi lægri vaxta. Í raun eru vextirnir orðnir helsti sölupunktur þeirra sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið. Nýlega birti þingmaður eins ríkisstjórnarflokkanna færslu um að mánaðarlegar greiðslur af 50 milljóna króna óverðtryggðu húsnæðisláni á Íslandi væru um 400 þúsund krónur meðan greiðslur af hliðstæðu láni í Hollandi væru um 250 þúsund krónur. Fljúgandi peningur af himnum ofan, beint í vasa kjósandans, væri 150 þúsund krónur á mánuði eða tæpar tvær milljónir króna á ári. Hver gæti hugsanlega slegið hendinni á móti því? Vextir eru verð á lánsfé og sveiflast eftir efnahags- og markaðsaðstæðum hverju sinni. Ómögulegt er að færa vexti úr einu efnahagsástandi yfir á annað án þess að raska mikilvægu jafnvægi. Séu vextir of háir lama þeir hagkerfið, fyrirtæki fara á hausinn og atvinnuleysi eykst. Séu vextirnir of lágir geta þeir skapað eignabólu sem á endanum springur. Aftur að 50 milljóna króna húsnæðisláni þingmannsins. Í dag eru vextir af slíku láni um 8,5% á Íslandi en um 4,5% í Hollandi. Af 30 ára jafngreiðsluláni (annuitet) væru mánaðarlegar greiðslur 384 þúsund krónur á Íslandi og 253 þúsund krónur í Hollandi. Greiðslan væri því um 50% hærri á Íslandi en í Hollandi. En skoðum nú heildarmyndina. Á síðustu 25 árum hefur ársverðbólga að jafnaði verið 4,8% á Íslandi og 2,3% í Hollandi. Árlegar launahækkanir hafa að jafnaði verið um 7,0% á Íslandi og 2,6% í Hollandi. Laun á Íslandi hafa að jafnaði hækkað um 2,1% á ári umfram verðbólgu, en í Hollandi aðeins um 0,3%. Á okkar mælikvarða hafa Hollendingar vart kynnst launahækkunum umfram verðbólgu. Þegar tekið er tillit bæði til efnahagsaðstæðna og vaxta er það þá virkilega svo að íslenski lántakinn sé snuðaður um hver mánaðamót? Væri ekki nær að spyrja hvor lántakinn – sá íslenski eða sá hollenski – sé líklegri til að verja stærri hluta launa sinna næstu 30 árin í greiðslur af húsnæðisláninu? Í dag eru laun á Íslandi um 30% hærri en í Hollandi, en gefum okkur að mánaðarlaun nýs lántaka séu ein milljón króna bæði á Íslandi og í Hollandi. Ef gert er ráð fyrir að þróun launa og verðbólgu frá aldamótum haldi áfram fást eftirfarandi niðurstöður fyrir 30 ára lánstímann: Í upphafi eru greiðslur af láninu 38,4% af launum á Íslandi en 25,3% í Hollandi. Eftir því sem laun hækka minnkar greiðslubyrðin sem hlutfall af launum mun hraðar á Íslandi en í Hollandi. Fyrstu 10 ár lánstímans er greiðslubyrðin meiri á Íslandi en í Hollandi. Síðustu 20 árin snýst dæmið við og greiðslubyrðin verður minni á Íslandi. Að meðaltali yfir allar 360 mánaðargreiðslurnar nemur greiðslubyrðin 16,3% af mánaðarlaunum á Íslandi en 17,7% í Hollandi. Af samanlögðum launum yfir lánstímann fara 11,7% í greiðslur af íslenska láninu en 16,9% í greiðslur af því hollenska. Á föstu verðlagi verða samanlögð laun yfir lánstímann 503 milljónir króna á Íslandi. Þar af fara 74 milljónir, eða 14,7% af launum, í greiðslur af láninu. Í Hollandi verða samanlögð laun 376 milljónir króna og þar af fara 66 milljónir, eða 17,6% af launum, í greiðslur af láninu. Í raunheimum heldur stærðfræðin, en frasarnir ekki. Hlutfall fólks sem býr í eigin húsnæði á Íslandi er um eða yfir 75% sem er talsvert hærra en í þeim löndum sem við erum vön að bera okkur saman við. Hlutfallið mælist 69% í Hollandi, 61% í Danmörku og 47% í Þýskalandi. Þessar staðreyndir fá hins vegar litla athygli. Umræðan beinist þess í stað að lágu vöxtunum sem sagðir eru bíða Íslendinga við upptöku evru. Reynt er að telja kjósendum trú um að verðbólga og launaþróun haldist óbreyttar en vextirnir einir lækki. Og þá koma peningarnir fljúgandi. Í kosningabaráttu hefur taktík sem þessi oft skilað árangri. Tilgangurinn er að fá fólk til að kjósa með buddunni, ekki síst þá sem eiga erfitt með að ná endum saman. Það sorglega við taktíkina er að versnandi efnahagsaðstæður bitna einmitt verst á þeim hópi. Höfundur er stærðfræðingur og sinnir stundakennslu við Hagfræðideild Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar