Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar 26. ágúst 2026 08:41 Ísland stendur frammi fyrir stórfelldri innviðauppbyggingu á næsta áratug. Leggja þarf vegi, byggja brýr og göng, styrkja raforkukerfið og fjárfesta í höfnum, flugvöllum, vatns- og fráveitum og öðrum samfélagsinnviðum um allt land. Spurningin er ekki hvort við þurfum að fjárfesta meira heldur hvernig best sé að fjármagna nauðsynleg verkefni. Aðild að Evrópusambandinu gæti stækkað fjármögnunar- og fjárfestingarmöguleika Íslands verulega. Hún myndi ekki leysa innviðavandann á einu bretti en opna dyr að stærra evrópsku fjárfestingarkerfi, nýjum styrkjum, ábyrgðum, lánum og sérþekkingu. Stærri verkfærakista Íslenska ríkið hefur gott lánshæfi og getur aflað fjár á alþjóðlegum mörkuðum. En mörg brýn innviðaverkefni eru mjög stór miðað við íslenskt hagkerfi og fjármagnsmarkað. Þau keppa um takmarkað vinnuafl, verktaka og langtímafjármagn og stór hluti framkvæmdakostnaðar er í erlendum gjaldmiðlum. Aðild að stærra evrópsku fjárfestingarkerfi gæti því skipt miklu máli. Evrópski fjárfestingarbankinn, EIB, hefur þegar fjármagnað íslensk verkefni í gegnum EES. Með ESB-aðild yrði Ísland hins vegar hluthafi og fullgildur þátttakandi í bankanum. EIB getur veitt löng lán, ábyrgðir og tæknilega aðstoð og sameinað mörg verkefni í stærri fjármögnunarramma. En EIB er aðeins eitt verkfæri. Aðild gæti einnig opnað leiðir að evrópskum styrkja- og ábyrgðarkerfum, fjármögnun til verkefnaþróunar, orkuskipta, stafrænna innviða og loftslagsaðlögunar. Evrópskar ábyrgðir geta dregið úr áhættu og auðveldað einkafjárfestum og lífeyrissjóðum að koma að verkefnum. Þá geta evrópskir styrkir hjálpað til við undirbúning og hönnun verkefna áður en stór fjármögnun er sótt. Þannig væri hægt að blanda saman íslensku opinberu fé, EIB-lánum, evrópskum styrkjum og ábyrgðum og langtímafjármagni lífeyrissjóða og einkaaðila. Markmiðið er ekki að skipta íslensku fjármagni út heldur að auka það stórlega. Tækifærin ná lengra Orkuskipti, rafvæðing samgangna og atvinnuuppbygging kalla á miklar fjárfestingar í flutnings- og dreifikerfum og EIB hefur mikla reynslu af slíkum verkefnum. Evrópsk fjármögnun gæti einnig nýst við stafræna innviði, orkuskipti og verkefni sem styrkja viðnámsþrótt landsins. Náttúruvá er annað dæmi. Eldgos, skriðuföll og flóð kalla á fjárfestingar í varnargörðum, rýmingarleiðum, fjarskiptum, varaafli og öðrum viðbragðsinnviðum. Vert er að vísa til góðrar greinar Indriða Benediktssonar í Bændablaðinu um hvernig Evrópusambandið hefði mögulega borið stóran hluta kostnaðar af framkvæmdum í tengslum við jarðeldana við Grindavík, hefði Ísland verið aðildarríki þegar þær hamfarir gengu yfir. Evrópskt fjármagn – íslensk forgangsröðun ESB og EIB myndu ekki velja verkefnin fyrir okkur. Íslensk stjórnvöld og sveitarfélög þyrftu áfram að ákveða hvað á að byggja og hvenær. Samgönguáætlun til 2040, samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins og nýtt innviðafélag um göng og brýr geta orðið grunnur fyrir slíkt samstarf. Sundabraut er eitt dæmi.. Raforkukerfið er annað: sterkari flutningskerfi geta stutt orkuskipti og atvinnuuppbyggingu um land allt. Hafnir landsbyggðarinnar eru það þriðja: fjárfesting í þeim getur styrkt atvinnulíf, orkuöryggi og flutningatengingar. Hér mætti áfram telja. Lægri vextir og minni áhætta Upptaka evru væri síðan annað skref. Hún gæti minnkað gjaldmiðlaáhættu og auðveldað langtímafjármögnun bæði fyrir ríki og einkaaðila. Með evru yrðu lán, tekjur og stór hluti framkvæmdakostnaðar í sama gjaldmiðli. Það gæti dregið úr kostnaði við gjaldeyrisvarnir og gert íslensk innviðaverkefni aðgengilegri fyrir evrópska langtímafjárfesta. Stærri og dýpri fjármagnsmarkaður og minni gjaldmiðlaáhætta gætu einnig skapað skilyrði fyrir lægri fjármögnunarkostnaði. Opnar dyr ESB og evran byggja ekki innviði Íslands fyrir okkur. En ESB-aðild gæti opnað dyr að stærri evrópskum fjárfestingarkerfum og tengt íslensk lykilverkefni við sameiginlega innviðauppbyggingu Evrópu. Evran gæti síðar dregið úr gjaldmiðlaáhættu og auðveldað langtímafjármögnun. Mín niðurstaða af öllu þessu er að nú sé ekki tíminn til að loka dyrum fyrir framtíðarkostum fyrir uppbyggingu Íslands. Já 29. ágúst heldur þessum möguleikum opnum á meðan nei getur lokað á leiðir sem gagnast landinu öllu. Höfundur er þingmaður og menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Logi Einarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar