Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar 25. ágúst 2026 21:03 Þann 29. ágúst göngum við að kjörborðinu og svörum því hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Sumir eru búnir að gera upp hug sinn og þessi grein er ekki fyrir þá. Ef þú ert hins vegar óviss, lestu áfram. Skoðanakannanir benda til þess að úrslitin geti orðið tæp og mögulega verður niðurstaðan 50,5% með og 49,5% á móti. Naumt já og naumt nei eru þó ekki spegilmyndir hvort annars. Afleiðingar þeirra eru gjörólíkar, því aðeins önnur niðurstaðan verður að langvinnu og kostnaðarsömu þjóðfélagslegu átakamáli. Naumt nei þýðir að við getum haldið áfram að einbeita okkur að þeim málum sem gera samfélag okkar enn betra. Vissulega myndi þeim sem vilja halda áfram viðræðum finnast þeir hlunnfarnir af naumum ósigri. En kraumandi óánægja er mun vægara stig sundrungar en umdeilt samningaferli. Naumt já hleypir af stað margra ára aðildarferli þar sem hvert skref getur orðið nýr vígvöllur: samningskaflarnir, hugsanlegar málamiðlanir um sjávarútveg, landbúnað og fjárframlög ásamt breytingum á stjórnarskrá, landslögum og stofnunum. Að mörgum árum liðnum tæki við önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfan aðildarsamninginn með tilheyrandi deilum og klofningi. Ekki er ólíklegt að á tímabilinu taki við önnur ríkisstjórn sem e.t.v. hefur ekki áhuga á að halda ferlinu áfram. Að segja já, bara til að kíkja í pakkann, hljómar sakleysislega, en aðildarviðræður taka tíma og kalla á mikla vinnu ráðherra, embættismanna og sérfræðinga — fólks sem við þurfum á að halda til að leysa brýn verkefni heima fyrir. Þær kosta mikið fé og pólitíska orku, sem er takmörkuð auðlind. Þetta þekkjum við frá fyrri aðildarviðræðum, þegar sjálft ferlið dró til sín orku og athygli stjórnvalda á viðkvæmum tíma. Stórar ákvarðanir um fullveldi og framtíð þjóðarinnar eiga að hvíla á breiðri og traustri samstöðu. Sú breiða og trausta samstaða er ekki fyrir hendi í dag. Aðildarviðræður binda okkur í margra ára átök sem erfitt verður að vinda ofan af. Nei í dag er ekki nei að eilífu. Ef sannfæringin er ekki fyrir hendi er því öruggara og ábyrgara að doka við. Segðu nei þann 29. ágúst — og gefðu okkur svigrúm til að einbeita okkur að þeim verkefnum sem brýnast er að leysa hér heima. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar