Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar 25. ágúst 2026 16:02 Landsvirkjun er ekki venjulegt fyrirtæki. Hún er eign íslensku þjóðarinnar og hefur í áratugi gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu íslensks samfélags. Verðmæti hennar felst því ekki aðeins í þeim arði sem hún getur skilað ríkissjóði, heldur einnig í því hvernig orkuauðlindir þjóðarinnar geta skapað atvinnu, byggt upp samfélög, tryggt orkuöryggi og stuðlað að nýjum atvinnugreinum um allt land. Þetta sjónarmið skiptir miklu máli þegar rætt er um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ég tel að áður en íslenska þjóðin tekur slíka ákvörðun verði að liggja fullkomlega skýrt fyrir hversu mikið svigrúm íslensk stjórnvöld myndu hafa til að móta framtíðarhlutverk Landsvirkjunar. Spurningin snýst ekki um hvort Landsvirkjun eigi að fara eftir samkeppnisreglum. Auðvitað á hún að gera það. Spurningin er hins vegar hvar mörkin liggja þegar þjóðhagslegt hlutverk fyrirtækisins rekst á kröfur um samkeppni og jafnan aðgang að markaði. Tryggja þarf með óyggjandi hætti að nýtingar- og ráðstöfunarréttur orkuauðlinda verði hjá þjóðinni til allrar framtíðar. Þetta er ekki fræðileg spurning. ESA hefur þegar rannsakað Landsvirkjun vegna mögulegrar misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og Samkeppniseftirlitið komst árið 2025 að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun hefði misnotað slíka stöðu í tilteknum útboðum. Á sama tíma gerir evrópska raforkuregluverkið ráð fyrir að ríki geti lagt á orkufyrirtæki almannaþjónustuskyldur, meðal annars varðandi orkuöryggi, verð, afhendingaröryggi og umhverfismál. En slíkar skyldur þurfa að vera skýrar, gagnsæjar, málefnalegar og án mismununar. „Ísland allt“ Þarna liggur lykilspurningin fyrir Ísland. Getum við áfram notað Landsvirkjun sem tæki fyrir „Ísland allt“? Getum við lagt áherslu á atvinnuuppbyggingu utan höfuðborgarsvæðisins, byggðafestu, nýjar atvinnugreinar, orkuskipti og orkuöryggi, jafnvel þegar það leiðir ekki til hámarks skammtímaarðs fyrir ríkissjóð? Ég tel að íslenska þjóðin eigi að fá skýr svör við þessu áður en hún tekur ákvörðun um að halda áfram viðræðum um ESB-aðild. Landsvirkjun er gullgæs þjóðarinnar. Við eigum ekki að fórna henni, né heldur þjóðhagslegu hlutverki hennar, fyrir óljós loforð um að allt muni reddast eftir aðild. Áður en við ræðum við ESB þurfum við að vita nákvæmlega hvað „Ísland allt“ má þýða í framkvæmd þegar kemur að sameiginlegum orkuauðlindum þjóðarinnar. Þangað til er svarið nei. Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar