Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar 25. ágúst 2026 14:33 Því er oft fleygt fram að breytt heimsmynd sé ein helsta ástæðan fyrir því að kjósa Já á laugardaginn næstkomandi og hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Heimsmyndin er sannarlega breytt en eru það rétt viðbrögð hjá okkur að hlaupa í faðm Evrópusambandsins? Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem miklir umbrotatímar eru á alþjóðasviðinu og langar mig að skoða betur og stikla á stóru hvað Ísland gerði á 20. öldinni þegar uppi hefur verið „breytt heimsmynd“. 1) Fyrri heimsstyrj ö ldin 1914-1918 Ekki þarf að útskýra í löngu máli að fyrri heimsstyrjöldin breytti heimsmynd þess tíma. Stríðið olli mikilli röskun á samskiptum og viðskiptum Íslendinga við Dani sem þá var okkar helsta viðskiptaþjóð. En hvað gerðu Íslendingar? Við tókum málin í okkar hendur og nýttum tækifærið í samningaviðræðum við Dani sem endaði með því að Ísland fékk fullveldi þann 1. desember 1918. 2) Síðari heimsstyrj ö ldin 1939-1945 Ef fyrri heimsstyrjöldin breytti heimsmyndinni þá má segja að sú síðari gjörbreytti heimsmyndinni. Hvað gerðu Íslendingar þá? Við stóðum fast á okkar rétti og fylgdum eftir endurskoðunarákvæði Sambandslaganna frá 1918, þrátt fyrir veika stöðu Dana sem þá voru undir hernámi Nasista Þýskalands. Við sáum tækifæri sem endaði með sjálfstæði Íslands 17. júní 1944. 3) Kalda stríðið og Þorskastríðin 1958-1976 Kalda stríðið breytti heimsmyndinni enn á ný í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Stórveldin hnykluðu vöðvana og þá sá ung þjóð á lítilli eyju tækifæri að nýju. Hvað gerðu Íslendingar í þessum aðstæðum? Við nýttum tækifærið og færðum út landhelgina, þvert á vilja Breta, sem endaði í Þorskastríðunum - það næsta sem Ísland hefur komist því að vera beinn aðili að stríði, slíkir voru hagsmunirnir. Ísland notaði sérstöðu sína til að ná sínu fram. Íslendingar hótuðu bæði að loka herstöð Bandaríkjanna á Íslandi sem og að ganga úr NATO. Bandaríkin, sem voru á fullu í Kalda stríðinu, tóku ekki í mál að missa jafn mikilvægan bandamann og við vorum. Bandaríkin mátu það sem svo, réttilega, að vera bandaríska hersins á NATO-landinu Íslandi væri mikilvægari en fjarlæg fiskimið Bretlands og settu því þrýsting á Breta að samþykkja okkar kröfur. Þessi sigur okkar, stefna og sjálfstraust, varð uppsprettan af því sem Henry Kissinger sagði að væri „the tyranny of the weak“ þar sem 200.000 manna þjóð hótaði að fara í stríð við 50 milljóna manna heimsveldi. 4) Síðustu misseri Breytt heimsmynd dagsins í dag gefur sumum ástæðu til að vilja ganga í Evrópusambandið. Sú ástæða finnst mér ósannfærandi. Af hverju ættum við í dag að fara þvert gegn því sem fyrri kynslóðir gerðu þegar uppi var „breytt heimsmynd“? Hingað til höfum við notað slíkar aðstæður sem tækifæri til sóknar. Við fengum fullveldi sem varð að sjálfstæði og loks 200 mílna landhelgi. Í dag vill ríkisstjórnin setja þessa merku áfanga í hættu. Að mínu mati ættum við að nota þá breyttu heimsmynd í dag í enn annað sóknarfærið. Við eigum mun frekar að stefna að fríverslunarsamningi við Bandaríkin heldur en að hefja aðildarviðræður við ESB. Með slíkum samningi værum við eitt örfáa landa í heiminum sem hefði aðgang að/fríverslunarsamninga við Bandaríkin, Evrópusambandið, Kína og Indland. Við værum í algjörri drauma stöðu. Fyrri kynslóðir voru svo sannarlega með „kassann úti“ og óskandi væri að sú stjórn sem nú situr væri raunverulega með „kassann úti“ líkt og hún hefur talið sig vera. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar