Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar 25. ágúst 2026 11:20 Við þekkjum öll að verðlag á Íslandi er hærra en víðast annars staðar. Okkur er sagt að launin séu há og vissulega koma oft margar krónur í launaumslagið en við fáum óþarflega lítið fyrir þær. Af hverju er verðlag svona hátt hér á landi og hefur verið það svo lengi sem menn muna, sérstaklega matarverð? Er þetta eitthvað sem við þurfum að sætta okkur við um ókomna framtíð? Íslenska krónan er minnsti gjaldmiðill í heimi og er auk þess fljótandi á markaði. Því þarf ekki mikla innkomu eða útflæði gjaldeyris á markaðinn til að hreyfa töluvert við genginu. Hátt vaxtastig, verðtryggð lán og verðbólga Það felur í sér mikinn kostnað og fórnir fyrir land og þjóð að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil. Stuðningsmenn krónunnar halda því fram að umhverfi okkar sé ólíkt því sem gerist í öðrum Evrópuríkjum og að við þurfum að hafa þann möguleika að fella krónuna. Hafa kjör almennings batnað við gengisfellingar og aukna verðbólgu? Eða er verið að verja hagsmuni einhverra annarra en almennings? Þurfum við alltaf að búa við hátt vaxtastig og verðtryggð lán? Þó svo að vægi verðtryggðra lána hafi minnkað eitthvað undanfarið erum við flest enn í þeirri stöðu að þurfa að greiða húsnæðislán okkar tvöfalt til þrefalt til baka, ólíkt nágrannaþjóðum okkar. Þeir sem eldri eru muna eftir mikilli verðbólgu, verðtryggðum lánum og reglulega rausnarlegum gengisfellingum á árum áður. Er eðlilegt að við sem búum í þessu landi þurfum að bera mun meiri vaxtakostnað en löndin í kringum okkur og búa við óvæntar launalækkanir sem gengisfellingar hafa í för með sér? Dýr króna Því fylgir mikill kostnaður fyrir Seðlabanka Íslands að halda varagjaldeyrissjóði sem getur numið allt að 1.000 milljörðum eftir aðstæðum í þjóðfélaginu. Einnig má benda á gjaldtöku bankanna við kaup og sölu gjaldeyris. Þetta eru stórar upphæðir fyrir þjóðfélagið á ári hverju og gera lítið annað en að hækka verðlag og auka verðbólgu. Það er hins vegar ekki víst að bankarnir séu spenntir fyrir því að missa þessar tekjur. Eru einhverjir hópar sem hafa hag af því að Ísland noti sinn eigin gjaldmiðil? Eru hér einstaklingar sem hafa það rúm fjárráð að geta nýtt sér gengissveiflur til að kaupa og selja gjaldeyri og jafnvel fjárfesta í íbúðarhúsnæði þegar markaðurinn er í lægð og selja þegar verð hækkar? Hverjir hafa talað hæst gegn upptöku evru á Íslandi? Eru það hópar sem hafa hag af óbreyttu ástandi? Eru það fyrirtækin sem gera upp í evrum og taka sín lán erlendis en greiða laun og annan innlendan kostnað í krónum? Þessi lýsing getur átt við sjávarútveg, stóriðju og stóru útflutningsfyrirtækin. Það hefur líka borið á því að meðlimir nokkurra stjórnmálaflokka hafi allt á hornum sér þegar kemur að umræðunni um evruna og viti fátt verra en heilbrigða og vandaða umræðu í þjóðfélaginu um gjaldmiðilsmál. Þessar gagnrýnisraddir segja okkur hinum oftar en ekki að þessi mál séu bara alls ekki til umræðu núna. Er kannski verið að verja hagsmuni fárra á kostnað almennings? Evru fylgir ábyrgð En fyrir okkur hin, sem fáum laun okkar í krónum, gæti upptaka evru bætt kjör okkar með lægra verðlagi, stöðugra gengi, lægri vaxtakostnaði og því að losa okkur alveg við verðtryggð lán, sem ég geri ráð fyrir að fáir sakni nema helst fjármálastofnanir. Þetta hefur verið raunin í löndum þar sem evran hefur verið tekin upp sem lögeyrir og það sama kæmi til með að gerast á Íslandi. En upptaka evru krefst meira aðhalds og ábyrgðar í ríkisfjármálum og það gæti orðið áskorun fyrir alþingismenn sem hafa farið frjálslega með fjármuni ríkisins og komist upp með að fella gengið þegar búið er að gera í brókina og senda reikninginn til almennings, eins og sagan ber vitni um. Fram til ársins 1922 var íslenska krónan jafnverðmæt dönsku krónunni. Í dag fást fyrir 100.000 íslenskar krónur um það bil 5.300 danskar krónur. Nýir tímar Í dag eru fyrirséðar miklar breytingar í atvinnumálum þjóðarinnar með tilkomu fimmtu iðnbyltingarinnar, sem þýðir að við verðum meira tengd og háð alþjóðasamfélaginu með viðskiptum og ýmiss konar samvinnu. Þá hefur vægi sjávarútvegs og landbúnaðar dregist töluvert saman síðustu ár sem þýðir að við verðum að treysta á aðrar útflutningsgreinar til að skapa gjaldeyri. Okkur vantar fleiri, betur launuð og fjölbreytt störf til að halda í unga fólkið okkar. Nýjar atvinnugreinar eru að koma sterkt inn, eins og hugbúnaðargerð, stór verkefni í heilbrigðisgeiranum, ýmislegt tengt tækni og internetinu og ekki má gleyma kvikmyndaiðnaðinum. Til að þessar greinar dafni og hafi möguleika á að keppa við erlend fyrirtæki þurfa þær aðgang að evru og svipuðum vaxtakjörum og eru í boði í löndunum í kringum okkur. Höfundur er kerfisfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslenska krónan Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar