Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 08:22 Klukkan eitt aðfaranótt 9. júlí 1903 settist norskur skipstjóri á tóman síldarstamp á bryggjunni á Siglufirði, notaði hreina tunnu fyrir borð og borgaði verkafólkinu kaupið í peningum. Það hafði ekki gerst áður í firðinum. Fyrr um daginn hafði sendimaður komið út á bryggjuna frá faktornum hjá Gránufélaginu með kurteist tilboð. Verslunin skyldi annast öll viðskipti fyrir skipið og greiða allan kostnað af komu þess. Tilgangurinn kom í ljós niðri í káetu. Færi þetta í gegn myndi vinnulaunaféð aldrei rata til verkafólksins sjálfs heldur sitja eftir í bókum verslunarinnar. Skipstjórinn hafnaði því. Hann hefði beðið fólkið um vinnu og ætlaði að borga því sjálfur, enda „verði fólkið sjálft að ákveða hvernig það verji sínu eigin fé”. Þarna, á síldarstampi um miðja nótt, losaði hann fyrsta steininn úr virkismúr aldargamals einokunarvalds, eins og Benedikt Sigurðarson reifaði seinna meir í sögu sinni um verkalýðsbaráttu Siglufjarðar. Án þess að hafa hugmynd um það sjálfur. Opnunin kom alltaf að utan Ég rifja þetta upp núna vegna þess að á laugardaginn er þjóðin spurð hvort hún vilji opna dyr. Það er ekki tilviljun að síldarævintýrið, sem breytti Íslandi úr fátækasta landi Evrópu í eitt hið ríkasta, hófst með útlendingum sem sigldu inn firðina. Ekki heldur að þeir sem vöruðu harðast við opnun landsins voru þeir sem höfðu það best innan lokaða kerfisins. Faktorinn var ekki illmenni. Hann var einfaldlega maður sem hafði engan hag af breytingum. Þetta er endurtekið stef í Íslandssögunni. Þegar dyr hafa opnast, verslunarfrelsi, EFTA eða EES, hefur það alltaf verið gert í andstöðu við þá sem höfðu það best innan múrsins. Í hvert skipti sem Ísland opnaðist svo fyrir umheiminum vildi enginn fara til baka. Þess vegna segi ég já Ég ætla að segja já við áframhaldi viðræðna við ESB á laugardaginn. Ekki vegna þess að ég viti hvað aðildarsamningur mun fela í sér, það veit enginn í dag, og einmitt þess vegna er spurt. Á laugardaginn er ekki verið að kjósa um aðild. Sú ákvörðun kemur síðar, í sérstakri atkvæðagreiðslu ef samningar nást. Ég segi já vegna þess að nei þýðir að við lokuðum dyrunum án þess að hafa litið út um þær, og við gerum það ekki bara fyrir okkur sjálf. Við gerum það fyrir börnin okkar, fyrir fólk sem er ekki á kjörskrá á laugardaginn og mun samt búa við niðurstöðuna alla ævi. Þetta er mín persónulega afstaða en ekki ályktun Visku. Í okkar röðum, eins og í samfélaginu öllu, er fólk sem kemst að annarri niðurstöðu á heiðarlegum forsendum og ég ber fulla virðingu fyrir því. Nýtum kosningaréttinn hver sem afstaðan er Ég bið ykkur ekki um að segja já. Ég bið ykkur um að mæta á kjörstað. Sterkasta svarið sem þjóðin getur gefið, já eða nei, er svarið sem sem flest okkar standa á bak við. Mætum á kjörstað á laugardaginn og nýtum kosningaréttinn. Höfundur er formaður Visku stéttarfélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar