Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar 24. ágúst 2026 08:30 Í umræðunni um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu dúkka reglulega upp áhyggjur um hvað það myndi þýða fyrir íslenska hestinn: Myndi innganga þýða að við yrðum að opna landamærin fyrir innflutningi á lifandi hrossum og stefna þar með einstökum heilsufarslegum hreinleika íslenska hestsins í voða? Þegar rýnt er í lagagrundvöllinn, fordæmin og dýraheilbrigðissjónarmið Íslands, Evrópusambandsins og Sameinuðuþjóðanna er svarið er einfaldlega:Nei. Fordæmin tala sínu máli Ísland hefur verið hluti af innri markaði Evrópu í yfir þrjá áratugi í gegnum EES-samninginn. Þrátt fyrir meginregluna um frjálst flæði vöru hefur Ísland ávallt viðhaldið ströngu banni við innflutningi á lifandi búfénaði. Evrópusambandið viðurkennir sérstöðu eylanda og svæða með sérstaka dýraheilbrigðisstöðu. Þetta fordæmi er þegar til staðar og er óhagganlegur grundvöllur fyrir hvers kyns samningaviðræðum. Líffræðileg sérstaða og lagaleg skylda Vegna árþúsundalangrar einangrunar hafa hestar hér á landi engin mótefni gegn algengum evrópskum smitsjúkdómum á borð við hestainflúensu og kverkaeitlabólgu. Slíkur faraldur gæti haft óbætanlegt tjón í för með sér. Innan regluverks ESB er skýr réttargrundvöllur fyrir varanlegum undanþágum þegar lýð- og dýraheilbrigði er í húfi. Bann við innflutningi á hrossum og erfðaefni er auk þess tryggt í íslenskum lögum (nr. 54/1990). Þar að auki ber stjórnvöldum skylda til að vernda hreinleika stofnsins á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga, svo sem samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika og reglugerðar um erfðaauðlindir (nr. 151/2005). Samstaða og yfirvegun Það ríkir algjör þverpólitísk og samfélagsleg breiðfylking á Íslandi um verndun hrossastofnsins okkar. Enginn sannur íslenskur samningamaður myndi nokkurn tíma gefa eftir í þessu máli, enda eru rök okkar sterk, bæði vísindalega og lögfræðilega. Í stað þess að nota hestinn sem grýlu í Evrópuumræðunni ættum við að nálgast málið af sömu yfirvegun, seiglu og jákvæða vilja og einkennir íslenska hestinn sjálfan. Klárum viðræðurnar, sjáum hvað stendur í samningnum og tökum upplýsta ákvörðun í framhaldi af því — kjósum já til að sjá. Höfundur er sjálfstætt starfandi hesta- og leiðsögumaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Í umræðunni um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu dúkka reglulega upp áhyggjur um hvað það myndi þýða fyrir íslenska hestinn: Myndi innganga þýða að við yrðum að opna landamærin fyrir innflutningi á lifandi hrossum og stefna þar með einstökum heilsufarslegum hreinleika íslenska hestsins í voða? Þegar rýnt er í lagagrundvöllinn, fordæmin og dýraheilbrigðissjónarmið Íslands, Evrópusambandsins og Sameinuðuþjóðanna er svarið er einfaldlega:Nei. Fordæmin tala sínu máli Ísland hefur verið hluti af innri markaði Evrópu í yfir þrjá áratugi í gegnum EES-samninginn. Þrátt fyrir meginregluna um frjálst flæði vöru hefur Ísland ávallt viðhaldið ströngu banni við innflutningi á lifandi búfénaði. Evrópusambandið viðurkennir sérstöðu eylanda og svæða með sérstaka dýraheilbrigðisstöðu. Þetta fordæmi er þegar til staðar og er óhagganlegur grundvöllur fyrir hvers kyns samningaviðræðum. Líffræðileg sérstaða og lagaleg skylda Vegna árþúsundalangrar einangrunar hafa hestar hér á landi engin mótefni gegn algengum evrópskum smitsjúkdómum á borð við hestainflúensu og kverkaeitlabólgu. Slíkur faraldur gæti haft óbætanlegt tjón í för með sér. Innan regluverks ESB er skýr réttargrundvöllur fyrir varanlegum undanþágum þegar lýð- og dýraheilbrigði er í húfi. Bann við innflutningi á hrossum og erfðaefni er auk þess tryggt í íslenskum lögum (nr. 54/1990). Þar að auki ber stjórnvöldum skylda til að vernda hreinleika stofnsins á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga, svo sem samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika og reglugerðar um erfðaauðlindir (nr. 151/2005). Samstaða og yfirvegun Það ríkir algjör þverpólitísk og samfélagsleg breiðfylking á Íslandi um verndun hrossastofnsins okkar. Enginn sannur íslenskur samningamaður myndi nokkurn tíma gefa eftir í þessu máli, enda eru rök okkar sterk, bæði vísindalega og lögfræðilega. Í stað þess að nota hestinn sem grýlu í Evrópuumræðunni ættum við að nálgast málið af sömu yfirvegun, seiglu og jákvæða vilja og einkennir íslenska hestinn sjálfan. Klárum viðræðurnar, sjáum hvað stendur í samningnum og tökum upplýsta ákvörðun í framhaldi af því — kjósum já til að sjá. Höfundur er sjálfstætt starfandi hesta- og leiðsögumaður.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar