„Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 23. ágúst 2026 08:16 Minn gamli kennari Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, hitti vitanlega naglann á höfuðið í aðsendri grein á Vísi í gær þar sem hann sagði að aðildarferli að Evrópusambandinu væri „að sjálfsögðu knúið áfram af vilja til að ganga í sambandið.“ Enda er ekkert til sem heitir að kíkja í pakkann eða sjá hvað sé í boði. Ríki sem sækja um inngöngu í Evrópusambandið gera það vitanlega ekki nema vegna þess að markmiðið sé að ganga þar inn. Enda kemur til dæmis skýrt fram í viðræðuramma sambandsins vegna Íslands að „sameiginlegt markmið viðræðnanna er innganga“ í það. Maximilian er ekki eini stjórnmálafræðiprófessorinn sem bent hefur á þessa staðreynd. Hið sama á til dæmis við um Magnús Árna Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálaræði við Háskólann á Bifröst og formann Evrópuhreyfingarinnar. Þannig sagði hann í samtali við Dv.is 10. janúar síðastliðinn: „Það er auðvitað augljóst að það þarf auðvitað að vera vilji til þess að stíga skrefið inn í Evrópusambandið til þess að hefja aðildarviðræður að nýju.“ Með öðrum orðum væri forsenda þess að hefja á ný umsóknarferli að sambandinu að vilji væri fyrir því að ganga þar inn. Ekki aðeins að kanna hvað byðist. Hliðstætt kom fram í máli Štefans Füle, þáverandi stækkunarráðherra Evrópusambandsins, á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í október 2011. Þar tók hann skýrt fram að ekki væri hægt að sækja um inngöngu í sambandið í þeim tilgangi að sjá hvað kæmi út úr því. Umsókn yrði að byggjast á skýrum vilja umsóknarríkisins til þess að ganga í Evrópusambandið og á þeim forsendum færu viðræðurnar við ríkið fram. Þeir Maximilian, Magnús og Füle hafa þannig verið samstíga um það, ásamt ófáum öðrum, að ekki sé á boðstólum að hefja umsóknarferli að sambandinu án vilja til þess að ganga þar inn. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Háskólar Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Minn gamli kennari Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, hitti vitanlega naglann á höfuðið í aðsendri grein á Vísi í gær þar sem hann sagði að aðildarferli að Evrópusambandinu væri „að sjálfsögðu knúið áfram af vilja til að ganga í sambandið.“ Enda er ekkert til sem heitir að kíkja í pakkann eða sjá hvað sé í boði. Ríki sem sækja um inngöngu í Evrópusambandið gera það vitanlega ekki nema vegna þess að markmiðið sé að ganga þar inn. Enda kemur til dæmis skýrt fram í viðræðuramma sambandsins vegna Íslands að „sameiginlegt markmið viðræðnanna er innganga“ í það. Maximilian er ekki eini stjórnmálafræðiprófessorinn sem bent hefur á þessa staðreynd. Hið sama á til dæmis við um Magnús Árna Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálaræði við Háskólann á Bifröst og formann Evrópuhreyfingarinnar. Þannig sagði hann í samtali við Dv.is 10. janúar síðastliðinn: „Það er auðvitað augljóst að það þarf auðvitað að vera vilji til þess að stíga skrefið inn í Evrópusambandið til þess að hefja aðildarviðræður að nýju.“ Með öðrum orðum væri forsenda þess að hefja á ný umsóknarferli að sambandinu að vilji væri fyrir því að ganga þar inn. Ekki aðeins að kanna hvað byðist. Hliðstætt kom fram í máli Štefans Füle, þáverandi stækkunarráðherra Evrópusambandsins, á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í október 2011. Þar tók hann skýrt fram að ekki væri hægt að sækja um inngöngu í sambandið í þeim tilgangi að sjá hvað kæmi út úr því. Umsókn yrði að byggjast á skýrum vilja umsóknarríkisins til þess að ganga í Evrópusambandið og á þeim forsendum færu viðræðurnar við ríkið fram. Þeir Maximilian, Magnús og Füle hafa þannig verið samstíga um það, ásamt ófáum öðrum, að ekki sé á boðstólum að hefja umsóknarferli að sambandinu án vilja til þess að ganga þar inn. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar