Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar 22. ágúst 2026 16:30 Ég skil aftur á móti hvers vegna stórútgerðin, stórfyrirtækin og fjármagnseigendur vilji halda óbreyttu ástandi á Íslandi. Fákeppni sem gerir það að verkum að hægt er að halda uppi hærra vöruverði, ógagnsæi í viðskiptum sem stuðlar að sama. Fjármagnseigendur vilja að sjálfsögðu halda uppi háu vaxtastigi og útgerðin vill að sjálfsögðu ekki rugga þessari þægilegu skútu og þau gera hvort sem er upp í evrum. Ég skil aftur á móti ekki við hvað venjulegt fólk er hrætt. Fólk sem á ekki fúlgur fjár í banka, er með húsnæðislán þar sem eftirstöðvar hækka um hver mánaðarmót, fólk sem skreppur ekki til útlanda í helgarferð bara af því að því datt það í hug svona seinni partinn á fimmtudegi. Semsagt venjulegir íslendingar sem eru ekki í þessum örfáu prósentum þjóðarinnar sem aldrei hefur þurft að hafa áhyggjur af peningum eða afborgunum um næstu mánaðarmót. Við erum að tala um 80-90% þjóðarinnar. Ég skil ekki við hvað þetta fólk er hrætt, það hefur engu að tapa. Nú dynur yfir okkur áróðurinn frá nei liðinu með Morgunblaðið fremst fyrir miðju og kemur það fáum á óvart þar sem Morgunblaðið er málpípa þessara sömu aðila, stórútgerðarinnar, stóru fyrirtækjanna, fjármagnseigenda og þeirra sem eru lengst til hægri í stjórnmálunum. Ákveðnir stjórnmálamenn eru að missa sig í að dæla út hræðsluáróðri og villandi upplýsingum sem allt er á sömu bókina lagt, að rugla fólk í ríminu. Það eru þó mikil vonbrigði en kemur kannski ekki á óvart að fremstur þar í flokki er Ólafur Ragnar Grímsson, okkar gamli forseti. Ruglið sem hann lætur út úr sér er með ólíkindum þegar hann reynir að hafa áhrif á umræðuna, eins og nýlega – að það sé engin trygging fyrir því að samningur verði lagður fyrir þjóðina til samþykktar ef ásættanlegur samningur næst. Hvað vakir fyrir Ólafi Ragnari annað en að auka á upplýsingaóreiðuna og rugla venjulegt fólk í ríminu. Ég vona innilega að við glötum ekki þessu tækifæri til að sjá hvernig samning við getum fengið. Ég skora á fólk á mínum aldri, 65 ára og eldra að loka ekki á þann möguleika að unga fólkið fái þetta tækifæri og skila auðu ef það er neikvætt gagnvart þessu samningsferli. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar