Íslenski boltinn

HK lagði tíu Þróttara og Fylkir flengdi Grinda­vík

Ágúst Orri Arnarson skrifar
HK vann frækinn sigur gegn Þrótti í Kórnum.
HK vann frækinn sigur gegn Þrótti í Kórnum. vísir

HK blandaði sér í toppbaráttu Lengjudeildar karla með 2-0 sigri gegn liði Þróttar í 20. umferð. Fylkir vann 5-1 sigur gegn Grindavík á sama tíma.

Dominik Radic skoraði tvennu og Þorsteinn Aron Antonsson þess á milli sigri HK gegn Þrótti. Gestirnir máttu sín lítils í Kórnum og ógnuðu enn minna eftir að hafa misst mann af velli, þegar Hans Sævar Sævarsson fékk rautt spjald á 53. mínútu.

Með sigrinum á HK enn séns á að taka toppsæti Lengjudeildarinnar. Liðið situr nú í 4. sæti með 35 stig, fjórum stigum frá toppliði Aftureldingar þegar tvær umferðir eru eftir. Þróttur er hins vegar í öðru sæti deildarinnar, með 37 stig.

Fylkir er svo í þriðja sæti, einnig með 37 stig, eftir einkar sannfærandi sigur gegn Grindavík. Hrunið hófst hjá Grindvíkingum þegar Hjörvar Daði Arnarsson skoraði sjálfsmark. Fylkismennirnir Guðmundur Tyrfingsson, Eyþór Aron Wöhler, Kári Sigfússon og Tumi Fannar Gunnarsson bættu fjórum mörkum við.

Arnar Breki Gunnarsson minnkaði muninn fyrir Grindavík undir lokin en Magnús Daði Ottesen átti svo eftir að setja sjötta mark Fylkis.

Grindavík er í 10. sæti deildarinnar með 21 stig, einu stigi ofar en Völsungur sem á leik til góða gegn Njarðvík síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×