Upp­gjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi spari­hliðarnar með nýja menn við stjórn­völinn

Hjörvar Ólafsson skrifar
Stjörnumenn unnu sannfærandi sigur gegn Þór í kvöld. 
Stjörnumenn unnu sannfærandi sigur gegn Þór í kvöld.  Vísir/Guðmundur

Stjarnan vann sannfærandi 4-2 sigur þegar liðið fékk Þór í heimsókn í Miðgarð í Garðabæinn í 20. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld.

Brynjar Kristmundsson, Olgeir Sigurgeirsson og Hákon Ernir Haraldsson tóku við stjórnartaumunum hjá Stjörnuliðinu eftir að Jón Þór Hauksson var látinn taka pokann sinn í vikunni.

Það er óhætt að segja að þeir félagar hafi fengið óskabyrjun í stjórnartíð sinni en Örvar Eggertsson var búinn að ná forystunni fyrir Stjörnuna eftir sex mínútna leik. Birnir Snær Ingason átti þá fína fyrirgjöf og Örvar kláraði færið sitt með góðu skoti.

Eftir að Stjarnan hafði verið mun sterkari aðilinn framan af í leiknum sóttu Þórsarar í sig veðrið um miðjan fyrri hálfleik. Gestirnir fengu hins vegar tvær blautar tuskur í andlitið skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks.

Emil Atlason skoraði tvö marka Stjörnunnar og lagði upp eitt. Vísir/Guðmundur

Emil Atlason tvöfaldaði forystu Stjörnunnar þegar hann batt endahnútinn á vel útfærða skyndisókn heimamanna. Örvar Eggertsson fann Emil á fjærstönginni og framherjinn skoraði með skoti af stuttu færi.

Emil lagði svo upp þriðja mark Stjörnunnar í leiknum sem Birnir Snær skoraði með föstu og hnitmiðuðu skoti í nærhornið. Staðan 3-0 þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik og útlitið bjart fyrir Stjörnumenn en þeim mun svartara fyrir gestina að norðan.

Emil setti svo jarðaberið á kökuna fyrir Stjörnuna eftir rúmlega klukkutíma leik. Örvar Logi Örvarsson sendi þá boltann fyrir og Emil skoraði annað mark sitt í leiknum.

Örvar Eggertsson kom Stjörnunni á bragðið. Vísir/Guðmundur

Sigfús Fannar Gunnarsson klóraði í bakkann fyrir Þór skömmu síðar en hann hafði nýverið komið inná sem varamaður þegar hann skoraði sárabótarmark. Christian Jakobsen lagaði svo stöðuna rétt fyrir lok venjulegs leiktíma. Sigfús Fannar lagði upp það mark en hann átti góða innkomu fyrir Þórsara.

Lengra komust Þórsarar ekki og niðurstaðan 4-2 sigur Stjörnunnar sem hefur þar af leiðandi 24 stig og situr í sjöunda sæti deildarinnar. Þór vermir hins vegar botnsætið með 15 stig en KA er þar fyrir ofan með 16 stig. FH og ÍBV eru í sætunum fyrir ofan fallsvæðið en ÍBV er með 17 stig og FH 18 stig.

Olgeir Sigurgeirsson var í brúnni hjá Stjörnunni í kvöld. 

Hákon Ernir: Fengum meiri orku í liðið

„Það var mikil orka í liðinu og það sem við lögðum upp með gekk fullkomlega upp. Við lögðum áherslu á það í æfingavikunni að fá gleði í hópinn og það myndi skila sér í aukinni ákefð í spilamennskunni. Það tókst að þessu sinni,“ Hákon Ernir Haraldsson, einn þjálfara Stjörnuliðsins. 

„Þegar við náum upp krafti og anda í liðið þá koma þau glimrandi gæði sem eru í liðinu í ljós. Við skorum fjögur góð mörk og gerum það sem við ætluðum að gera mjög vel í þessum leik,“ sagði Hákon Ernir enn fremur. 

„Nú er bara að halda áfram á þessari braut og fara að leggja upp leikinn við Blika. Við vitum vel hvað í þessu liði býr og þetta lið á heima mun hærra í töflunni en það er núna. Það þarf hins vegar að halda áfram að sýna ástríðu og gleði í því sem við erum að gera,“ sagði hann um framhaldið. 

Sigurður Heiðar: Þurfum að nýta góðu kaflana betur

„Þetta var kaflaskipt frammistaða og mér fannst góðu kaflarnir fleiri og lengri hjá okkur en Stjörnunni. Þeir voru hins vegar skilvirkari í því sem þeir voru að gera og við þurfum að fara að nýta góðu kaflana betur en við höfum verið að gera,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs. 

„Við vorum búnir að vera ofan á í leiknum þegar þeir skora mörkin tvö undir lok fyrri hálfleiks. Það hefur loðað við okkur að fá á okkur mark í andlitið þegar við erum með yfirhöndia í leikjum og því þurfum vði að breyta,“ sagði Sigurður Heiðar þar að auki.  

„Þeir nýttu sér líkamlega yfirburði sína vel í fyrri hálfleik og náðu að herja á okkur í þau svæði sem þeir vildu sækja í. Við fórum vel yfir hlutina í hálfleik og ég fékk gott svar frá leikmönnum mínum í seinni hálfleik. Þeir sem komu inná komu með kraft og við sýndum spirit undir lok leiksins. Við lögðum allt í það að reyna að jafna en þrátt fyrir góða spilamennsku heilt yfir þá náðum við því ekki,“ sagði hann. 

Atvik leiksins

Leikurinn var heilt yfir allt í senn hraður, viðburðarríkur og skemmtilegur. Bæði lið freistuðu þess að hafa tempóið hátt og úr varð bara fínasta skemmtun. Erfitt að draga eitthvað eitt ákveðið atvik út fyrir sviga. 

Stjörnur og skúrkar

Framlína Stjörnuliðsins, þeir Birnir Snær Ingason, Emil Atlason og Örvar Eggertsson lögðu allir eitthvað á vogarskálina í sóknarleik heimamanna. Benedikt Warén var svo síógnandi allan leikinn. 

Örvar Logi Örvarsson gerði vel þegar hann lagði upp mark Emils Atlasonar og Guðmundur Baldvin Nökkvason lét til sín taka inni á miðsvæðinu. 

Sigfús Fannar Gunnarsson kom af krafti inn af bekknum hjá Þórsbekknum en hann skoraði eitt mark og lagði upp annað. Raunar fékk Þór góða innkomu frá öllum þeim sem komu inn af bekknum. 

Það var kraftur í Ágústi Eðvaldi Hlynssyni allan leikinn og Einar Freyr Halldórsson spilaði vel inni á miðjunni hjá Þór. 

Birnir Snær Ingason setur hér boltann í netið. Vísir/Guðmundur

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Ívar Orri Kristjánsson,Kristján Már Ólafs, Ronnarong Wongmahadthai og Pétur Guðmundsson, stigu fá sem engin feilspor og fá sjö í einkunn fyrir fagmannlega unninn störf sín.

Stemming og umgjörð

Það voru 359 sem lögðu leið sína í Miðgarð á þessum fallega sunnudegi. Stjörnufólk á hrós skilið fyrir að gera sitt besta úr þeim aðstæðum að spila inni í Miðgarði. Valdimar Einarsson bar svoleiðis í blaðamenn að þeir stóðu á blístri. Valdimar sá til þess af sinni alkunnu snilld að engin varð þyrstur á meðan á leiknum stóð. 

Benedikt Warén í baráttu við Bjarna Guðjón Brynjólfsson. Vísir/Guðmundur

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira