Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar 21. ágúst 2026 11:02 Nú hafa sambandssinnar róið öllum árum að því undanfarið að reyna að sannfæra fólk um að líf þeirra verði umtalsvert betra við að kjósa með tillögu Viðreisnar í atkvæðagreiðslunni í næstu viku. Kristrún lofaði kjósendum fyrir kosningar að ESB yrði ekki á dagskrá á þessu kjörtímabili, en eitthvað þurfti Viðreisn greinilega að fá og loforðin urðu að engu. Margar rangar fullyrðingar hafa verið settar fram af sambandssinnum í þessu máli og er ein af þeim um vöruverð hér á landi. Sambandssinnar hafa reynt að halda því fram að vöruverð muni lækka um 25% við inngöngu í ESB. Formaður utanríkismálanefndar hefur verið hvað grófastur í þessum blekkingum. Hefur hann birt hin og þessi myndbönd sem lýsa því hvað hann borðar og hvað það myndi lækka við inngöngu í ESB. Hann sagðist m.a. hafa mætt á ónefndan veitingastað og keypt sér kjúklingarétt fyrir um 4.000 kr. og hélt því fram að við inngöngu í ESB myndi sá réttur lækka í 3.000 kr. Það sér það auðvitað hver heilvita maður að þetta stenst enga skoðun. Meðal annars samkvæmt veitingamönnum er kostnaður í veitingarekstri hér á landi í dag gróflega þannig að laun eru orðin um 50% af veltunni, hin 50% skiptast svo á milli hráefnis sem getur verið svona um 25-35% og allt hitt sem fær svona 15-25%. Það er því ómögulegt að sjá hvernig þessi kjúklingaréttur á að geta lækkað um 25% við inngöngu í ESB, þetta ætti þessi blessaði þingmaður að vita vel, en virðist kjósa að setja ranga hluti fram til að blekkja fólk, ekki nema að hann ætli sér að lækka laun fólks sem er í raun eina leiðin til að ná tilætluðum lækkunum á verði. Það sem er rétt í málflutningi sambandssinna er að við inngöngu munu tollar á landbúnaðarvörur framleiddum innan ESB falla brott, en við erum í dag með verndartolla á þessar vörur til að styðja við innlenda framleiðslu. Þetta er líklegast í raun og veru eini stóri flokkurinn utan sjávarafurða sem vöruverð gæti lækkað að einhverju leyti, en það á auðvitað við um innfluttar landbúnaðarvörur, þær innlendu munu áfram þurfa að kosta sitt, enda kostar töluvert að framleiða hérlendis samanborið við láglaunaumhverfið sem er erlendis. Það er því ekki fagur raunveruleiki sem blasir við innlendum landbúnaði ef þessi hugmynd raungerist og að íslenskur landbúnaður verði í beinni samkeppni við allt ESB. En hvað þýðir það þá í raun og veru? er vöruverð að fara að lækka um 25% eins og þingmaðurinn og aðrir hafa haldið fram og verður raunverulega meira eftir í vasanum hjá fólki? Það er mjög ólíklegt. Það verður einhver lækkun á ákveðnum landbúnaðarvörum sem framleiddar eru innan ESB. Aðrar vörur geta mögulega hækkað séu þær framleiddar utan ESB þar sem að við munum þurfa að taka upp sömu tollamúra og ESB er með uppi gagnvart umheiminum. Þar sem neysla fólks er mismunandi er ómögulegt að segja hvaða áhrif þessar breytingar hafa á hvern og einn, hjá sumum gæti vörukarfan þessvegna staðið í stað eða jafnvel hækkað. Ég get ekki fullyrt um þau áhrif upp á krónutölu en það geta sambandssinnar ekki heldur, það er þó hægt að fullyrða að vöruverð er ekki að fara að lækka um 25% eins og þau hafa reynt að halda fram. Svo kemur að hinni hlið þess að fella niður tolla á landbúnaðarvörur. Það er aðgerð sem við gætum þess vegna gert strax í dag án inngöngu í ESB en kjósum að halda áfram með til að verja innlenda framleiðslu. Sambandssinnar halda því fram að ESB muni koma til móts við bændur með styrkjum en höfum í huga að það eru skattgreiðendur Íslands sem koma til með að borga þann brúsa. Það liggur fyrir að við verðum nettógreiðendur í ESB þ.e. við munum borga meira inn en við fáum úr sambandinu, en þær tölur hlaupa líklegast á tugum milljarða sem renna úr vösum Íslendinga yfir til Evrópu. Varðandi fullyrðingu sambandsinna er varðar 62. breiddargráðu þá byggir það á að t.d. Finnland fékk innan ESB sérstaka heimild til að styrkja sjálft sinn landbúnað sem var norðan 62 breiddargráðu umfram það sem almennt er heimilt er innan sambandsins. Það er semsagt ekki spurning um meiri pening frá ESB, það er spurning hvort þeir leyfa okkur að styrkja okkar eign landbúnað, sem er þó ekki einu sinni öruggt. Hvað þýðir það? Nú auðvitað að þú skattgreiðandi góður munt þurfa að greiða meira í skatta til að fá hugsanlega ódýrari ost frá ESB, á endanum er sparnaðurinn því líklegast farinn fyrir bí. Hér er líka ágætt fyrir fólk að meta hvaða tilfinningar það ber gagnvart íslenskum landbúnaði og íslenskum bændum. Erum við tilbúin að til í að fórna landbúnaði á altari ríkisstjórnarinnar. Við sem berum taugar til landbúnaðarins og viljum stuðla að virku fæðuöryggi með íslenskri framleiðslu verðum að setja stórt spurningmerki við þessa vegferð. Það er svo mikilvægt hér að hugsa til þess að þær vörur sem fluttar eru inn utan ESB eiga hættu á að hækka í verði, bent hefur verið á t.d. bíla, fatnað og fleira sem gæti hækkað í verði þar sem við munum þurfa að taka upp tollakerfi ESB. Þetta getur því þýtt hækkun á mörgum vörum utan ESB. Við erum t.d. í dag með fríverslunarsamning við Kína sem myndi falla úr gildi við inngöngu í ESB. Það myndi auðvita þýða að vörur sem við verslum frá Kína og það sem við seljum til Kína undir þeim samningi myndi að öllum líkindum hækka í verði fyrir neytendur vegna hærri tolla. Það kann að hljóma lítílvægt, en kína er í dag eitt stærsta viðskiptaland Íslands. Það er nauðsynlegt að staldra við og hugsa þegar sambandsinnar eru að lofa fólki gulli og grænum skógum. Ef það hljómar of gott til að vera satt, þá er það líklegast ekki satt. Besta vopnið sem við höfum gagnvart allri upplýsingaóreiðu er að fólk kynni sér málin vel fyrir 29. ágúst. Ekki hlusta á gylliboðin sem sett eru fram til að blekkja þig til að samþykkja feigðarförina sem ríkisstjórnin vill leiða okkur í, inn í hnignandi ESB. Ég mun segja nei og hvet þig lesandi góður til að gera slíkt hið sama. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun