Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar 21. ágúst 2026 10:30 Fóstbræður fóru á kostum í þætti sínum um tilgangslaust verkfæri, sem kallaðist „Spliff, Donk & Gengja”. Freistandi er að bera þá sölumennsku saman við sum verkefni á núverandi stjórnarheimili landsmanna og ekki síður við auglýsingaherferðina “Já til að sjá”. Það hafa lengi verið til stjórnmálamenn, sem segja eitt fyrir kosningar og síðan allt annað eftir kosningar. Eitt dæmið er um loforð Valkyrjanna um áformað ESB ferli fyrir síðustu Alþingiskosningarnar að það hæfist ekki fyrr en í lok kjörtímabilsins. Ekkert nýtt hefur komið fram, sem kallar á óðagot ríkisstjórnarinnar og enginn þarf að velkjast í vafa um að ESB muni veita Íslandi einhverjar undanþágur til að liðka til í aðlögunarferlinu, ef af verður. Yfirvofandi er sú hætta á að Valkyrjurnar munu oftúlka undanþágurnar, sem verða auk þess fáar, smáar og tímabundnar. Á síðasta ári kaus Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, að upplýst alþjóð um að hann teldi sig ekki bundinn af samþykktum fyrri stjórnvalda í samgöngumálum. Í beinu framhaldi sópaði hann öllum samþykktum samgöngubótum á Austurlandi út af borðinu. Hvers vegna er innviðaráðherrann að leggja fé og vinnu í samgönguáætlun til 2040, ef næstu ráðamenn verða haldnir sama illvíga kjördæmafárinu og hann? Flokkur fólksins hefur löngum fjallað um að Ísland eigi ekki erindi í ESB en samt munu margir stuðningsmanna hans kjósa um að hefja aðildarferlið. Þeir sem ekki muna hvernig fyrri sneypuför endaði vilja ólmir að fá að „kíkja í pakkann“. Rétt er að benda þeim á að setja upp sólmyrkvagleraugun sín svo ofbirtan valdi þeim ekki augnskaða. Svo að verkefnum Kristrúnar Frostadóttur. Ekki eru það bráð aðkallandi verkefnin heimafyrir sem sitja fyrir. Nei, það er hin síbreytilaga heimsmynd og fundir á erlendri grund. Síðasta trompið eru „hlustunarfundir“ innanlands! Fundur er venjulega skoðanaskipti milli einstaklinga og hópa, sem er skilgreindur þannig s.k.v. orðabók „[...] þar sem tiltekið mál eða málefni eru rædd“. Það er vissulega hægt þykjast hlusta en vilja hvorki heyra né skilja. Þetta eru einungis sýnishorn af dæmigerðum stjórnmálamönnum, sem offramboð er af um allan heim. Slíkir einstaklingar eru frábærir í að finna ný nöfn á það, sem ekki gengur upp af gefnum fyrirheitum þeirra, samþykktum og loforðum. Það þarf enginn að láta sig dreyma um að stjórnendur ESB séu eitthvað betur gerðir en dæmin hér að framan bera vitni um. Markmið og stofnsáttmálar ESB komu ekki eins og boðorðin tíu frá Guði. Ráðamenn framtíðar geta allir tekið “Eyjólf” á allar samþykktir, fyrirvara og undanþágur. Öllu má breyta í nafni aðstæðna, sem í hverfulum heimi koma ítrekað upp. Eins og nefnt er hér að framan munu Íslendingar fá tilboð um undanþágur hjá ESB í aðlögunarferlinu, sem m.a. varðar auðlindirnar okkar. En, - enginn mannlegur máttur getur gulltryggt að slíkar undanþágur verði varanlegar. Allir fjárfestar selja fyrir „rétt“ verð þau verðmæti sem þeir hafa komist yfir og dæmin sanna að íslenskir fjárfestar eru þar á heimavelli. Því er borðleggjandi hætta á því við inngöngu í ESB, að öll verðmætustu útgerðafyrirtæki okkar gætu komist í hendur erlendra aðila, - svo að segja á einni nóttu. Vilt þú taka þátt í þeirri áhættu? Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar