Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Aron Guðmundsson skrifar 21. ágúst 2026 10:17 Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur sætt mikilli gagnrýni en hyggst samt sem áður bjóða sig fram til endurkjörs á næsta ári. Vísir/GETTY Knattspyrnusambönd Evrópu (UEFA), Asíu (AFC) sem og knattspyrnusamband Norður-, Mið-Ameríku og Karíbahafsins (CONCACAF) íhuga að þvinga fram kosningu um vantraust á hendur Gianni Infantino, sitjandi forseta FIFA.
Þetta hefur Reuters eftir háttsettum heimildarmönnum sínum innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Gianni Infantino, forseti FIFA, hafði lagt til að selja hlut í heimsmeistaramótinu til einkafjárfesta samkvæmt áætlun sem hefði getað fært honum sjálfum tugi milljóna punda. Áætlunin mætti alþjóðlegri fordæmingu, meðal annars frá UEFA og breska forsætisráðherranum Andy Burnham. Hún var að lokum dregin til baka en hefur vakið upp spurningar um framtíð Infantinos sem forseta FIFA. Nú íhuga UEFA, AFC og CONCACAF að þvinga fram kosningu um vantraust á Infantino í embætti forseta FIFA en eftir því sem Reuters kemst næst eru engin fordæmi fyrir slíkri kosningu í 122 ára sögu FIFA. Samkvæmt lögum FIFA þarf stjórn sambandsins að kalla til allsherjarþings fari einn fimmtu hluti, þeirra 211 aðildarþjóða FIFA, fram á það. Reuters segir hins vegar frá því að engin sérstök ákvæði sé að finna í lögum FIFA er varða vantraust á hendur sitjandi forseta sambandsins. Slíkt þing mun þurfa að fara fram innan þriggja mánaða frá skriflegri beiðni þeirra aðildarþjóða sem standa að tillögunni og myndi þá hver aðildarþjóð fyrir sig hafa eitt atkvæði á því þingi. Þrátt fyrir að vera valtur í sessi hyggst Infantino bjóða sig fram til endurkjörs á næsta þingi FIFA í mars á næsta ári. Hann nýtur enn stuðnings einhverra aðildarþjóða. Þá eru aðrar aðildarþjóðir, sem voru ekki sammála áætlun Infantino, ekki endilega sannfærðar um að kosning um vantraust á hendur honum sé rétta leiðin. Fari svo að vantraust nái ekki fram að ganga gæti það styrkt stöðu Infantino í embætti að mati þeirra.
Deilur um Gianni Infantino FIFA UEFA Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira