Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar 21. ágúst 2026 07:15 Í grein Baldurs Péturssonar á Vísi þann 16, ágúst sl er því haldið fram að ESB‑aðild gæti skilað Íslandi 495–810 milljörðum króna á ári í ávinningi, eða 11–18% af landsframleiðslu, og að ávinningurinn gæti verið 15–30 sinnum hærri en framlag Íslands. Þetta eru tölur sem eru svo langt utan við það sem alþjóðlegar greiningar sýna að þær standast ekki faglega skoðun. Þegar forsendurnar eru skoðaðar í samhengi sést að þær eru órekjanlegar, óútskýrðar og byggja á samanburði við lönd sem eru ósambærileg Íslandi. Greinin byggir á rannsóknum á stórum hagkerfum eins og Þýskalandi og Frakklandi, án þess að aðlaga niðurstöðurnar að íslenskum aðstæðum. Engin aðferðafræði er sýnd, engin gagnasöfn nefnd og engar útreikningatöflur birtar. Fullyrðingar um hundruð milljarða króna á ári eru því ekki byggðar á gögnum heldur á óraunhæfum sviðsmyndum. Það sem greinin sleppir er jafn mikilvægt. Ísland hefur þegar tryggt sér marga af þeim ávinningum sem Baldur notar sem rök fyrir ESB‑aðild. Ísland er með virkan varnarsamning við Bandaríkin sem gæti nýtst til að styrkja enn betur við gjaldeyrisstöðu og draga úr áhættu. Ísland hefur þegar EES samninginn, fríverslunarsamninga við Bretland, Indland og Kína, auk allra fríverslunarsamninga EFTA. Þessir samningar eru í gildi og nýtast íslenskum fyrirtækjum daglega. Baldur setur þá fram eins og framtíðarmöguleika sem ESB‑aðild myndi opna en þeir eru þegar til staðar og ná yfir stóran hluta þess 20% viðbótar sem EES nær ekki til án aðildar. Stærsti hluti kostnaðar krónunnar er innlendur og hægt að laga hann án ESB‑aðildar. Ef húsnæðisliðurinn væri tekinn út úr neysluvísitölu myndi verðbólga lækka um 40–60% á mörgum tímabilum. Ef verðtrygging væri afnumin myndi fjármagnskostnaður heimila og fyrirtækja lækka verulega (Frumvörp liggja inni á Alþingi). Ef gjaldeyrissjóður væri styrktur áfram í gegnum varnarsamninga og fríverslunarsamninga myndi gengisáhætta minnka. Þetta eru umbætur sem Ísland getur gert sjálft og þá án þess að framselja fiskveiðistjórnun, landbúnaðarstefnu,dómsvald og lögjafarvald til ESB. Raunhæfur stöðugleiki fæst með innlendum kerfisumbótum sem eru framkvæmanlegar, rekjanlegar og byggja á íslenskum hagsmunum. Óútskýrðar sviðsmyndir um 15–30 földan ávinning af ESB‑aðild hjálpa ekki umræðunni. Umræðan þarf að byggjast á gögnum, ekki á stærðum sem standast ekki faglega greiningu. Íslendingar þurfa ekki að leita í faðm erlends valds til að ná þeim árangri sem Baldur lýsir. Við getum náð honum sjálf og þá með því að laga verðbólgumælingu, afnema verðtryggingu, styrkja gjaldeyrissjóð og nýta fríverslunarsamninga sem þegar eru til staðar. Það væri óskandi að Baldur beitti menntun sinni og þekkingu til að leggja fram raunhæfar tillögur fram sem styrkja íslenskt efnahagskerfi — í stað þess að byggja á óútskýrðum stærðum sem gera lítið annað en að villa um fyrir lesendum. Árborg 21. ágúst 2026 Höfundur er byggingafræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar