Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. ágúst 2026 14:17 Cancelo bíður og vonar að málin leysist fljótt. Frestur til þess að ganga frá félagaskiptum rennur út 1. september. EPA/Alejandro Garcia Joao Cancelo hefur gengið frá þriggja ára samningi við lið Barcelona en ekki verið skráður til leiks. Portúgalinn er sársvekktur með þetta vesen við pappírsvinnuna.
Cancelo rifti samningi sínum við Al Hilal nýlega og ákvað að snúa aftur til Barcelona, í þriðja sinn. Í þetta sinn gerir hann langtímasamning við Barcelona en í hinum tveimur tilfellunum kom hann að láni, fyrst frá Manchester City tímabilið 2023-24 og svo frá Al Hilal seinni hluta síðasta tímabils. Barcelona er hins vegar, enn og aftur, í vandræðum með leikmannaskráningar. Félagið hefur margoft áður lent í vandræðum vegna hás launakostnaðar liðsins. Leikmenn eins og Lionel Messi, Jules Koundé, Gavi og Dani Olmo hafa ýmist misst af leikjum eða farið frá félaginu vegna þessa. ❗| João Cancelo was visibly ANGRY after learning that he would not be announced over the PA system during the Joan Gamper Trophy, despite already being dressed and ready for his presentation wearing the No. 2 shirt. [@asanchezfallada] #fcblive pic.twitter.com/dfJT6BUlUI— BarçaTimes (@BarcaTimes) August 19, 2026 Fyrir æfingaleik liðsins í Joao Gamper bikarnum í gær, sem Barcelona vann 2-1 gegn Al Ahly, var Rodri kynntur til leiks sem nýr leikmaður liðsins. Cancelo vonaðist til að vera kynntur inn á sama tíma en það gekk ekki. Barcelona hefur líka brugðið á það ráð að skrá Jesse Bisiwu, átján ára gamlan leikmann sem kemur til félagsins frá Club Brugge í Belgíu, sem leikmann varaliðsins en hann mun samkvæmt heimildum Marca æfa að fullu með aðalliðinu.
Spænski boltinn Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Sjá meira