Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun Birgir Olgeirsson skrifar 19. ágúst 2026 18:02 Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld. Stýrivaxtahækkun Seðlabankans verður aðalefni kvöldfrétta Sýnar. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í dag og eru þeir nú átta prósent. Ákvörðunin kemur þrátt fyrir vaxandi slaka í þjóðarbúinu, hækkandi atvinnuleysi og veikari einkaneyslu.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mætir í fréttasett og svarar fyrir viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Síðar í fréttatímanum mæta Þorsteinn Víglundsson, formann Samtaka iðnaðarins, og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, og ræða áhrif vaxtahækkunarinnar á kjarasamninga og vinnumarkaðinn. Einnig verður rætt við breskan hagfræðing hjá New Economics Foundation sem gagnrýnir ákvörðun peningastefnunefndar og telur háa stýrivexti hafa skaðleg áhrif á íslenskt efnahagslíf. Þá verður sagt frá flutningabíl sem valt í aðrein frá Reykjanesbraut við Ártúnsbrekku í morgun. Rúmar sjö klukkustundir tók að fjarlægja bílinn af vettvangi og var umferð stýrt um svæðið á meðan. Við segjum einnig frá kínverskum vélmennaframleiðendum sem eru hvergi af baki dottnir þrátt fyrir innflutningsbann Bandaríkjanna. Þeir segja vélmennamarkaðinn hafa tekið verulega við sér og sjá áfram mikla vaxtarmöguleika. Í Íslandi í dag heimsækir Vala Matt Ernu Ýr Guðjónsdóttur, sem telur sig eiga ljótasta garð landsins. Garðahönnuðurinn Eva Ósk Guðmundsdóttir kemur með hugmyndir að því hvernig gera megi garðinn fallegan og notalegan allt árið. Fréttir Sýnar hefjast klukkan 18:30 á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis.
Kvöldfréttir Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira