Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Kjartan Kjartansson skrifar 19. ágúst 2026 10:01 Lögreglumaður með rafbyssu. Íslensk lögregluyfirvöld vilja kalla þær „rafvarnarvopn“. Vísir/EPA Um fimmtugur íbúi dvalarheimilis í Finnlandi lést eftir að lögreglumaður skaut hann með rafbyssu í síðustu viku. Aðstandendur hans segja að hann hafi verið andlega fatlaður.
Lögregla brást við tilkynningu um að maðurinn væri ógnandi og ofsafullur í garð annarra á dvalarheimili fyrir fatlaða í Espoo, skammt frá höfuðborginni Helsinki á föstudagskvöld, að því er segir í frétt finnska ríkisútvarpsins. Maðurinn er sagður hafa haldið áfram ofsakenndri hegðun eftir að lögreglumenn komu á staðinn. Einn lögregluþjónanna hafi þá skotið hann með rafbyssu. Við það hafi maðurinn særst og verið fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést. Lögregluyfirvöld skoða nú hvort rétt sé að hefja rannsókn á dauða mannsins. Þrír ættingjar þess látna segja finnska ríkisútvarpinu að hann hafi slasast alvarlega við afskipti lögreglunnar og að sár hans hafi dregið hann til dauða. Þeir vissu ekki hvað varð til þess að lögregla var kölluð til. Rafbyssur er bæði hægt að nota í návígi og skjóta úr þeim pílum sem eru tengdar vírum og gefa skotmarkinu 50.000 volta straum. Íslenskir lögreglumenn byrjuðu að ganga með rafbyssur í fyrra. Fyrr á þessu ári kviknaði í manni sem lögreglumenn á Suðurnesjum skutu á með rafbyssu. Maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva í kirkjugarði í Reykjanesbæ. Hann sagði Ríkisútvarpinu í sumar að hann hefði ekki borið eld að sér sjálfur heldur hefði kviknað í út frá rafbyssuskotinu. Lögreglumenn á vettvangi skipuðu sjónarvotti að uppákomunni að eyða myndbandsupptöku sem hann gerði af henni.
Finnland Erlend sakamál Rafbyssur Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira