Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2026 13:17 Elvar Örn Jónsson skrifaði undir fjögurra ára samning við Rhein-Neckar Löwen. rhein-neckar löwen Fyrir næsta tímabil söðlar Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handbolta, um og gengur í raðir Rhein-Neckar Löwen frá Magdeburg.
Elvar gekk til liðs við Magdeburg frá Melsungen fyrir síðasta tímabil. Hann varð þýskur meistari með Magdeburg í vetur en þar leikur hann með Ómari Inga Magnússyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni. Elvar spilar með Magdeburg á komandi tímabili en færir sig svo um set til Löwen. Þar hittir hann fyrir Hauk Þrastarson, frænda sinn og samherja í Íslandsmeistaraliði Selfoss 2019. Hinn 28 ára Elvar samdi við Löwen til 2031. „Löwen sannfærði mig um sína framtíðarsýn í góðum samtölum. Þess vegna er ég mjög ánægður með að verða hluti af félaginu á næstu árum. Að fá að spila með frænda mínum, Hauki, á vellinum er frábær bónus. Það hefur alltaf verið gaman að spila í SAP Arena þar sem stuðningsmennirnir skapa frábæra stemningu. Ég hlakka nú þegar til þess,“ segir Elvar í frétt á heimasíðu Löwen. View this post on Instagram A post shared by Rhein-Neckar Löwen (@rnloewen) Holger Bachert, framkvæmdastjóri Löwen, kveðst í skýjunum með að hafa klófest Elvar. „Að okkur hafi tekist að sannfæra leikmann eins og Elvar um að gera langtímasamning við Rhein-Neckar Löwen sýnir að við erum á réttri leið. Hann var okkar óskaleikmaður í þessa stöðu. Við Uwe og Maik höfðum snemma augastað á honum og fylgdumst náið með honum á nýliðnu tímabili. Við erum því mjög ánægðir með að sjá hann spila í gulu treyjunni frá 2027,“ segir Bachert. Eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Selfossi 2019 fór Elvar til Skjern í Danmörku þar sem hann lék um tveggja ára skeið. Þaðan lá leiðin svo til Melsungen. Elvar hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu á undanförnum árum og spilað með því á öllum stórmótum frá 2019.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira