Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar 18. ágúst 2026 08:30 Ég hef tekið eftir því að umræðan um ESB hefur breyst mikið undanfarið. Hún snerist áður um kosti og galla ESB en núna snýst hún meira um að afsanna ósannindi. Þannig ég vildi stíga eitt skref til baka og skrifa um hvað heillar mig mest við mögulega aðild Íslands að ESB. Fyrst er mikilvægt að minna á eitt: atkvæðagreiðslan 29. ágúst er ekki endanleg ákvörðun um að ganga í ESB. Ef þjóðin segir já, þá þýðir það að við hefjum samningaviðræður og sjáum hvers konar samning við getum samið um. Frelsið til að stunda viðskipti Fólk hefur allskonar mismunandi ástæður fyrir því að vilja ganga inn í ESB. Fyrir mig, sem er ungur maður sem trúir á athafnafrelsi og viðskiptafrelsi, þá er það evran og aukin viðskipti við okkar helstu vina- og viðskiptaþjóðir sem heillar mig mest. Þú spyrð kannski: erum við ekki nú þegar með aðgang að innri markaði ESB í gegnum EES samninginn? Jú, það er rétt. En tvennt vantar upp á að við njótum hans til fulls, í fyrsta lagi er það að við erum ekki í tollabandalagi ESB og við notum gjaldmiðil sem gerir viðskipti dýrari og áhættusamari en þau þyrftu að vera. Krónan lokar á tækifæri Krónan er eins og hálf lokaður ventill í leiðslu opins markaðs. Hún hleypir sumu í gegn en heldur aftan af miklu meira. Óstöðugleikinn er sá vandi sem flestir þekkja, en hann er ekki sá eini. Með krónunni fylgir mikil gjaldmiðlaáhætta. Vegna hennar hika margir erlendir fjárfestar við að fjárfesta í litlum og meðalstórum íslenskum fyrirtækjum, sérstaklega nýsköpunarfyrirtækjum. Þegar áhættan er meiri, verður fjármagn dýrara og af skornari skammti. Afleiðing er sú að íslenskt nýsköpunarumhverfi er ekki að gefa nýjum fyrirtækjum þau tækifæri sem þau gætu verið að fá. Lítil erlend fjárfesting og dýr fjármögnun, vegna hárra vaxta, koma í veg fyrir að margar góðar hugmyndir verði nokkurn tímann að veruleika. Hvað myndi breytast með evrunni Með evru og aðild að tollabandalagi ESB þá myndi umhverfið breytast á nokkra vegu: Minni gjaldmiðlaáhætta sem gerir erlendum fjárfestum auðveldara að taka þátt í íslensku atvinnulífi því þeir þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af sveiflum krónunnar. Aukin erlend fjárfesting sem fylgir í kjölfarið, sem þýðir það að meira fjármagn fyrir sprotafyrirtæki og vaxandi greinar. Ódýrari fjármögnun verður að veruleika þar sem vextir á evrusvæðinu hafa að meðaltali verið lægri og stöðugri en á Íslandi. Aðgangur að styrkjum ESB, til dæmis til nýsköpunar og rannsókna. Þetta eru styrkir sem opnast fyrirtækjum sem í dag geta ekki sótt um þá. Aukin samkeppni á mörkuðum sem hafa lengi búið við einokun Evran gæti líka opnað á eitthvað sem við Íslendingar höfum til þessa þurft að sætta okkur við en ættum ekki að gera til lengdar. Þetta er raunveruleg samkeppni á mörkuðum þar sem fáir aðilar hafa ráðið ríkjum eins og til dæmis á bankamarkaði, tryggingarmarkaði o.f.l. Í dag er erfitt fyrir erlenda banka og fjármálafyrirtæki að koma sér vel fyrir á Íslandi, meðal annars vegna gjaldmiðilsins. Með evru sem sameiginlegan gjaldmiðil minnkar sú hindrun og erlendir aðilar eiga auðveldara með að bjóða þjónustu sína til íslenskra neytenda og fyrirtækja. Meiri samkeppni á slíkum mörkuðum þýðir vonandi betri kjör fyrir almenning, til dæmis lægri þjónustugjöld, hagstæðari vexti og fleiri valkosti en í dag. Hvað þýðir þetta fyrir almenning? Þetta er ekki bara mál fyrir fyrirtækjaeigendur og fjárfesta. Þegar fyrirtæki vaxa og fjölga, fjölgar líka störfum og tækifærum. Þegar fjármagn verður ódýrara fyrir fyrirtæki verður það líka ódýrara fyrir heimilin, til dæmis í formi lægri vaxta á húsnæðislánum. Stöðugri gjaldmiðill þýðir að verðlag sveiflast minna sem gerir venjulegu fólki auðveldara að skipuleggja fjármál sín til lengri tíma. Krónan heldur aftur af tækifærum sem íslenskt atvinnulíf og þar með íslenskt fólk, á skilið að fá að nýta. Ég ætla með þessu að hvetja þig, kæri lesandi til að segja já 29. ágúst fyrir tækifærin, fyrir stöðugleika, fyrir samkeppni og fyrir betri kjör. Höfundur er formaður Ungra Evrópusinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar