Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. ágúst 2026 21:59 Jason var aðeins 41 árs. Cambridge-háskóli Jason Arday, sem sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla í síðustu viku í kjölfar ásakana um ritstuld, er látinn 41 árs að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Battersea í suðurhluta Lundúnaborgar síðdegis í dag. Arday og var úrskurðaður látinn á vettvangi samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Nánustu aðstandendum hefur verið tilkynnt um andlát hans, að sögn lögreglu, sem segir að ekki sé talið að það hafi borið að með saknæmum hætti. Fjölskylda Ardays sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist harmi slegin yfir að hafa misst „þennan frábæra föður, maka, bróður, frænda og son“. Þá segir í yfirlýsingunni: „Ófrægingarherferðin reyndist Jason ofviða, en hann var ljúfmenni sem vildi ávallt sjá það besta í fólki.“ Arday sagði af sér stöðu prófessors í félagsfræði menntunar við Cambridge í síðustu viku eftir að ásakanir um ritstuld komu fram opinberlega, ásamt efasemdum um ýmis afrek sem hann kvaðst hafa unnið. Hann vísaði ásökununum alfarið á bug en gekkst þó við mistökum í fræðilegum skrifum sínum. Efasemdir um ferilskrána Deilurnar hófust þegar Nathan Cofnas, fræðimaður sem skilgreinir sjálfan sig sem „kynþáttaraunsæismann“ og var rekinn frá Cambridge árið 2024, sagðist hafa fundið fjölda dæma um ritstuld í verkum Ardays. Í kjölfarið vöknuðu einnig efasemdir um fullyrðingar hans um íþróttaafrek í þágu góðgerðarmála, meðal annars að hafa hlaupið 30 maraþon á 35 dögum og safnað yfir fimm milljónum punda til líknarmála. Arday sagði hluta af villunum í fyrri skrifum sínum mega rekja til einhverfu, þar sem hann hefði stuðst við eftirhermu til að vinna úr upplýsingum, og benti á að sambærileg rýni myndi líklega leiða í ljós áþekkar villur hjá öðrum fræðimönnum. „Við erum að tala um háskólasamfélagið hérna, ég myrti engan. Sú grimmd sem ég hef mátt þola, að vera stimplaður lygari og ómerkingur, er algjörlega óviðunandi,“ sagði hann í samtali við Times fyrr í mánuðinum. Flæktist í „menningarstríðið“ Málið vakti frá upphafi mun meiri athygli en dæmigerð deila um fræðileg vinnubrögð, meðal annars vegna þess hvernig það fléttaðist saman við víðtækari umræðu um fjölbreytnistefnu í háskólasamfélaginu. Arday varð yngsti svarti prófessor í sögu Cambridge þegar hann var ráðinn árið 2023, og var ráðningin á sínum tíma víða fagnað sem tímamótaskrefi í átt að auknum fjölbreytileika innan æðstu menntastofnana Bretlands. Sá sem fyrstur lagði fram ásakanirnar um ritstuld, Nathan Cofnas, hefur sjálfur verið umdeildur fyrir skoðanir sem hann kennir við „kynþáttarraunsæi“ og var, eins og fyrr segir, sjálfur rekinn frá sömu stofnun fyrir fáeinum árum. Sumir stuðningsmenn Ardays hafa haldið því fram að árásirnar á hann beinist ekki eingöngu að fræðilegum vinnubrögðum heldur endurspegli víðtækari óánægju með fjölbreytileikaáherslur í háskólasamfélaginu og víðar. Sjálfstæð rannsókn á ráðningarferlinu Aðrir hafa á móti haldið því fram að spurningarnar um verk hans séu einfaldlega eðlileg fræðileg rýni sem eigi rétt á sér óháð bakgrunni höfundar, og að það sé einmitt vísbending um óeðlilega meðferð málsins ef gagnrýni af þessu tagi sé sjálfkrafa afgreidd sem pólitískt drifin. Hvorki Cambridge-háskóli né Cofnas hafa fullyrt neitt um slíka tengingu en umræðan um það hefur eigi að síður orðið áberandi þáttur í opinberri umfjöllun um deiluna, ekki síst í ljósi þess hversu hratt hún dreifðist á samfélagsmiðlum og í breskum fjölmiðlum. Arday varð yngsti svarti prófessor í sögu Cambridge þegar hann var ráðinn árið 2023, sem á sínum tíma var talið til marks um framfarir í jafnréttismálum innan háskólans. Liverpool John Moores-háskóli, sem veitti honum doktorsgráðu árið 2015, hafði áður rannsakað ásakanir um ritstuld í doktorsritgerð hans og komist að þeirri niðurstöðu að ekkert saknæmt hefði átt sér stað. Cambridge tilkynnti þó fyrr í vikunni um sjálfstæða rannsókn á ráðningarferli Ardays, og Glasgow-háskóli, þar sem hann starfaði áður, hefur jafnframt boðað úttekt á fyrri fræðistörfum hans. Mállaus og ólæs til átján ára aldurs Deborah Prentice, rektor Cambridge, sagðist harmi slegin yfir fréttunum af andláti Ardays og vottaði fjölskyldu hans og vinum innilegar samúðarkveðjur. Glasgow-háskóli tók í sama streng. Arday starfaði fyrst sem íþróttakennari áður en hann lauk doktorsprófi og starfaði síðar sem dósent við Durham-háskóla. Í síðustu viku aflýsti hann viðburði sem halda átti til kynningar á væntanlegri ævisögu hans, Great And Unfortunate Things, sem kom út í Bandaríkjunum fyrr í vikunni og átti að koma út í Bretlandi þann 27. ágúst. Bókin segir frá æsku hans sem mállauss drengs er hvorki gat lesið né skrifað fyrr en 18 ára gamall, og þeirri óvenjulegu vegferð sem á endanum lá að prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Bretland Andlát England Háskólar Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bretland Andlát England Háskólar Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira