Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar 12. ágúst 2026 15:32 Vextir greiddir af ríkissjóði hvers lands árið 2025, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu og á skattborgara: Ég hef verið ansi hugsi síðustu vikur frá því að ég rakst á tölur sem sýndu að íslenska ríkið greiðir hærri árlega upphæð í vexti af sínum skuldum, bæði per skattborgara og sem hlutfall af þjóðarframleiðslu (sem þá tekur mun á launum inn í útreikninginn), en Grikkland og Ítalía. Þetta var ekki eitthvað sem passaði í mína heimsmynd, því Ísland er almennt talið mun minna skuldsett og tiltölulega ábyrgt í ríkisfjármálum, og síðustu ár hefur umræðan í heiminum að miklu leyti snúist um að þessi ríki séu óhóflega skuldsett. Því tók ég saman tölur frá árinu 2000 til 2025 og bar saman hvert einasta ár, og það sem var augljóst er að öll þessi ár borgaði Ríkissjóður Íslands meiri vexti en nokkuð annað ríki í Evrópu, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu og per skattborgara. Ástæðan er að sjálfsögðu ekki að skuldirnar séu hærri en hjá þeim þjóðum sem eru almennt taldar skuldsettari en Ísland, heldur að vextirnir á íslenskum skuldum séu svo háir. Mér finnst þetta vera sjokkerandi staðreynd, því þetta gefur til kynna að skuldabyrðin (greiðsluflæðið) sem Ísland hefur staðið undir hafi verið meiri en hjá nokkurri annarri vestrænni þjóð, og raunar finnst mér enn verra að þetta sé ekki eitthvað sem Íslendingar almennt vita eða hafa velt fyrir sér. Í ljósi þess að forvitnin var búin að taka yfir þá fór ég einnig að skoða hvað fyrirtæki og einstaklingar höfðu greitt í vexti á þessu sama tímabili, fram yfir það sem aðrir Vesturlandabúar hafa greitt. Leiðin til þess er að skoða hvaða vexti útlendingar greiða af sínum skuldum og bera svo saman við Íslendinga. Þar er sláandi munur. Vextir sem ríkissjóðir Íslands, Grikklands, Ítalíu og lönd Evrópusambandsins (+ Noregur og Bretland) hafa greitt á hverju ári, síðustu 25 ár, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu „En peningurinn fór til lífeyrissjóðanna“? Ofan á þetta þá fór ég að velta því fyrir mér að ef Ísland greiðir svona hrikalega háa vexti þá hlýtur það að koma fram í gróða einhvers staðar. Augljóst svar er að lífeyrissjóðirnir eiga megnið af þessum skuldum og því eru ákveðin rök fyrir því að þetta sé hringferli, þar sem vextirnir fara bara til Íslendinga sjálfra. Ég hugsaði nokkuð um hvað þyrfti að vera satt til að þetta standist og ég held að ef Íslendingar greiða mun hærri vexti en aðrar þjóðir þá hljóti það að koma fram í auknum hagnaði lífeyrissjóðanna. En svo er ekki. Ávöxtun lífeyrissjóðanna er ekki sjáanlega hærri en ávöxtun annarra stórra lífeyrissjóða í heiminum eða norska olíusjóðsins, hvort sem það er í Bandaríkjunum eða Evrópu, og jafnvel aðeins lakari. Því spyr maður sig: Til hvers greiddum við hærri vexti ef það skilaði ekki umframávöxtun miðað við það sem hefði verið hægt með því að leggja bara lífeyrissjóðina inn í Vanguard-sjóð? Oft er gott að skilja hluti með því að sjá þá. Því bjó ég til vefsíðu sem tekur saman þá vexti sem Ísland hefur greitt umfram það sem það hefði greitt ef vaxtastig væri eins og í Evrópu, hvort sem þeir voru greiddir af ríkissjóði, sveitarfélögum, fyrirtækjum eða einstaklingum og ber saman við stóra kostnaðarliði í íslenskum efnahag, svo sem kostnað við nýjan Landspítala. Vefsíðan er með fullar heimildir sem er vísað í nákvæmlega, aðallega Hagstofuna og Eurostat, og útskýringu á því hvernig útreikningurinn virkar. Þetta eru auðfinnanlegar tölur og með Claude Code, sem er forritunartólið sem forritarar nota aðallega í dag til að búa til vefsíður, þá er hægt að búa til aðgengilegt efni. Fjármálaráðherra vísaði í sömu gögn í grein í dag og með sömu tölum. Vefsíðan reynir að sýna þetta eins skilvirkt og skýrt og hægt er. Lénið sem er notað heitir ríkissjóður.is, meðal annars með íslenskum stöfum, en það var laust til afnota og efni vefsíðurarinnar fjallar að miklu leyti um ríkissjóð. Jafnframt stendur skýrt efst að þetta sé ekki opinber vefsíða, en ég efa að nokkur misskilji það í raun og veru. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar