Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Kjartan Kjartansson skrifar 12. ágúst 2026 10:10 Helsti keppinautur Nigel Farage (t.v.) í aukakosningum í Clacton er Ruslatunnufés lávarður (t.h.). Hann er miðaldra grínisti sem heitir réttu nafni Jon Harvey. AP/samsett Í ljós kemur á morgun hvort að Nigel Farage, leiðtogi breska Umbótaflokksins, vinnur þingsæti sitt á ný í aukakosningnum. Jafnvel þótt Farage vinni sigur á hópi grínista og furðufugla þar eru vandræðum hans sem leiddu til þess að hann sagði af sér þingmennsku ekki á enda.
Farage sagði af sér sem þingmaður Clacton á suðausturströnd Englands í síðasta mánuði í kjölfar uppljóstrana um gjafir að andvirði milljóna punda sem hann þáði frá auðkýfingum. Hann gaf gjafirnar ekki upp til breska þingsins og hafði þingið hafi rannsókn á gjöfunum. Um leið tilkynnti Farage að hann ætlaði að endurnýja umboð sitt frá kjósendum með því að bjóða sig fram í aukakosningum um þingsætið. Þær kosningar fara fram á morgun. Farage á sigurinn næsta vísan enda ákváðu stóru flokkarnir þrír að sniðganga kosningarnar. Talsmaður Verkamannaflokksins sagði flokkinn ekki ætla að taka þátt í þeim „sirkusi“. Helsti keppinauturinn maður með ruslatunnu á höfðinu Sirkus er réttnefni því Farage etur kappi við á fjórða tug frambjóðenda í Clacton, Þeir eru samansafn furðufugla og minni spámanna. Langþekktastur þeirra er grínisti sem gengur um með ruslatunnu á höfðinu og skikkju og kallar sig Ruslatunnufés lávarð. Bresk útvarpslög kveða svo á um að sjónvarpsstöðvar verða að þylja upp nöfn allra frambjóðendanna 34 þegar þeir segja frá aukakosningunum. Farage mun svo þurfa að standa í hópi allra frambjóðenda á sviði þegar úrslitin verða lesin upp við athöfn sem gæti helst minnt á Monty Python-atriði. Evrópska blaðið Politico segir að jafnvel á meðan stuðningsmanna Farage í Clacton ríki gremja með að ákvörðun hans sem leiddi til aukakosninganna hafi gert bæinn að aðhlátursefni um allt Bretland og víðar. Nái Farage kjöri á morgun er nær öruggt að breska þingið hefji aftur rannsókn á gjöfunum umdeildu sem hann þáði. Slík rannsókn gæti leitt til þess að hann verði sviptur þingmennsku. Skoðanakannanir benda til þess að Farage fái um 73 prósent atkvæða í aukakosningunum á morgun en Ruslatunnufé lávarður um fimmtung. Spurður að því hvað gæti helst fengið íbúa Clacton til þess að kjósa hann hafði lávarðurinn svar á reiðum höndum. „Ég er ekki Nigel Farage.“
Bretland Kosningar í Bretlandi Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira