Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. ágúst 2026 07:31 Noregur verður ekki meðal þátttökuliða á HM U-19 ára á næsta ári. Hæfileikastjóri yngri landsliða karla hjá norska handknattleikssambandinu, Claus Dalgaard-Hansen, segir að Norðmenn verði að horfa inn á við eftir að U-19 ára landsliði karla mistókst að komast á heimsmeistaramótið á næsta ári. Dalgard-Hansen segir að Norðmenn séu að missa sterkustu handboltaþjóðir heims of langt fram úr sér.
Dalgaard-Hansen skrifaði pistil á heimasíðu norska handknattleikssambandsins eftir að U-19 ára landsliði karla tókst ekki að tryggja sér sæti á HM á næsta ári. Dalgaard-Hansen segir að þjálfarateymi U-19 ára liðsins hafi fengið leyfi til að beita öllum þeim taktísku úrræðum sem í boði voru til að tryggja HM-sætið. „Áður höfum við, til að leggja enn meiri áherslu á einstaklingshæfni leikmanna og þróun leikmanna, sem spila á báðum endum vallarins, valið að nota ekki varnar-/sóknarskiptingar og sjö á sex leik svona snemma í þroskaferlinu,“ skrifar Dalgaard-Hansen. Hann segir að leikir U-19 ára liðsins síðasta eina og hálfa árið hafi sýnt að beita hefði þurft öllum þeim ráðum sem í boði voru til að komast inn á HM og skerpa áherslurnar í árganginum meira en æskilegt þyki. „Samt var það ekki nóg. Þrátt fyrir að leikmenn, þjálfarar og stjórnendur hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð, verðum við að viðurkenna að við verðum ekki með á HM næsta sumar,“ skrifar Dalgaard-Hansen. Hann bætir við að Norðmenn verði að líta í eigin barm og athuga hvað þeir geti gert til að missa ekki enn fleiri þjóðir fram úr sér. „Við verðum að viðurkenna að bilið í fremstu þjóðirnar hefur aukist. Á sama tíma eru fleiri lönd, í raun hópur landa sem áður voru á eftir okkur, sem hafa náð okkur eða farið fram úr okkur,“ skrifar Dalgaard-Hansen og bætir við að fjöldi iðkenda og fjöldi æfinga sé ekki vandamálið. „Æfa leikmennirnir í hinum löndunum meira en við? Nei, í nokkrum tilfellum æfa þeir í raun minna. Eru fleiri leikmenn í hinum löndunum en hjá okkur? Nei, það á aðeins við um Þýskaland og Frakkland. Við höfum jafn marga leikmenn og Danmörk,“ skrifar Dalgaard-Hansen. „Við verðum því að skoða þróunarkerfið okkar nánar. Við verðum að skoða daglegan veruleika leikmannanna, þjálfunina og leikjaframboðið sem þeir fá. Saman verðum við að auka gæðin.“
Norski handboltinn Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira