Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar Fjörður 13. ágúst 2026 10:34 Verslunarmiðstöðin Fjörður í Hafnarfirði hefur stækkað mikið undanfarna mánuði og hýsir nú enn fleiri verslanir og veitingastaði. Nýtt Bókasafn Hafnarfjarðar opnaði þar nýlega og hefur slegið í gegn. Guðrún María Guðmundsdóttir er markaðs- og verkefnastjóri Fjarðar. Það hefur heldur betur færst aukið líf í Fjörð í Hafnarfirði að undanförnu. Eftir umfangsmiklar framkvæmdir hýsir húsið nú enn meira úrval verslana, veitingastaða og þjónustu, nýjar og glæsilegar íbúðir og síðast en ekki síst nýtt Bókasafn Hafnarfjarðar sem opnaði í byrjun ágúst.
Fyrir Hafnfirðinga þýðir þetta fyrst og fremst aukin þægindi enda hægt að sinna ótrúlega mörgum erindum á einum og sama staðnum. „Ég held að verslanirnar og þjónustuaðilarnir séu í kringum tuttugu í dag og hér er í raun ótrúlega fjölbreytt úrval verslana og þjónustu að finna,“ segir Guðrún María Guðmundsdóttir, markaðs- og verkefnastjóri Fjarðar. Hér má sjá brot af úrvali verslana í Firði. Ýtið á hvítu örina til að sjá fleiri myndir. Hún segir breytingarnar á Firði hafa verið miklar og framkvæmdirnar umfangsmiklar. „Auk fjölgunar verslana og þjónustuaðila hafa nýjar íbúðir verið teknar í notkun á efri hæðum nýbyggingarinnar ásamt hóteli. Flutningur Bókasafns Hafnarfjarðar í Fjörð var svo einn af síðustu stóru áföngunum í framkvæmdunum.“ Hafnfirðingar vilja versla í heimabyggð Guðrún María segir Hafnfirðinga almennt duglega að nýta þá verslun og þjónustu sem í boði er í heimabænum. Með auknu úrvali í Firði hafi það orðið enn auðveldara. Hér er í raun ótrúlega fjölbreytt úrval verslana og þjónustu að finna. „Hafnfirðingar eru svolítið sérstakir að þessu leyti,“ segir Guðrún. „Þeir vilja gjarnan sækja verslun og þjónustu innan bæjarins. Ég finn það bara sjálf eftir að ég flutti hingað. Ég reyni að gera allt sem ég get í Hafnarfirði og ef ég þarf að fara til Reykjavíkur eða Kópavogs er ég yfirleitt búin að safna saman á lista mörgum erindum.“ Í Firði má sinna ýmsum hversdagslegum erindum án þess að þurfa að fara langt. Þar eru verslanir, veitingastaðir, heilsugæsla, apótek og ýmis önnur þjónusta auk póstboxa frá öllum þremur helstu póstdreifingaraðilunum. Með tilkomu bókasafnsins hefur enn ein mikilvæg þjónusta bæst við flóruna. Nýja bókasafnið opnaði á annarri hæð Fjarðar í byrjun ágúst. Í dag fimmtudag verður formleg opnunarhátíð milli kl. 16 og 18. Bókasafnið strax fullt af lífi Nýtt Bókasafn Hafnarfjarðar opnaði á annarri hæð Fjarðar í byrjun ágúst og verður formleg opnunarhátíð haldin fimmtudaginn 13. ágúst milli klukkan 16 og 18. Guðrún María segir viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum. „Það hefur eiginlega verið fullt hús síðan safnið opnaði. Maður er stöðugt að ganga fram hjá fólki á leiðinni þangað og það er sérstaklega gaman að sjá krakkana sem voru búin að bíða spennt eftir nýja bókasafninu. Viðtökurnar hafa verið alveg frábærar.“ Aðstaðan á nýja bókasafninu er til fyrirmyndar og þar fer vel um fólk á öllum aldri. Nýja safnið er mun aðgengilegra en eldra húsnæðið, sem var á fjórum hæðum og sjö pöllum. Þar má m.a. finna glæsileg barnadeild, listasmiðju og fjölnota sal sem nýta má fyrir tónleika, upplestur og fjölbreytta viðburði. „Barnadeildin er sjúklega flott. Maður óskar sér nánast að vera barn aftur þegar maður sér hana,“ segir Guðrún María. Nýja bókasafnið snýst ekki bara um nýtt húsnæði heldur líka um nýjan kafla í menningarlífi bæjarins. Hún bendir á að bókasöfn séu löngu hætt að vera eingöngu staðir þar sem fólk kemur til að fá lánaðar bækur. Þau gegni sífellt stærra hlutverki sem lifandi menningar- og samkomustaðir. „Nýja bókasafnið snýst ekki bara um nýtt húsnæði heldur líka um nýjan kafla í menningarlífi bæjarins. Það er ótrúlega gaman að sjá hvað það er strax orðið vinsælt og hvað það færir mikið líf inn í húsið.“ Hluti af hjarta Hafnarfjarðar Verslunarmiðstöðin Fjörður er staðsett í hjarta Hafnarfjarðar og telur Guðrún María að uppbyggingin styrki enn frekar þann líflega miðbæ sem fyrir er. Í næsta nágrenni eru t.d. Strandgatan með fjölbreyttu úrvali smærri verslana, Bæjarbíó og Thorsplan við Fjörð, þar sem ýmsir viðburðir eru haldnir allt árið um kring. Þar er einnig fjölbreytt veitinga- og menningarlíf og á aðventunni breytist svæðið í jólaþorpið sem flestir landsmenn þekkja. „Við tölum stundum um miðbæ Hafnarfjarðar sem hinn miðbæinn á höfuðborgarsvæðinu. Strandgatan er svolítið eins og okkar Laugavegur og hér er mikið líf allt í kring. Fjörður er hluti af þessu hjarta Hafnarfjarðar.“ Með nýjum íbúðum, aukinni verslun og þjónustu og bókasafni sem þegar er orðið vinsæll áfangastaður hefur Fjörður þannig þróast frá því að vera hefðbundin verslunarmiðstöð yfir í fjölbreyttan áfangastað þar sem daglegt líf bæjarbúa mætist á einum stað. „Það er eiginlega það skemmtilega við Fjörð í dag. Hér er svo margt undir einu þaki og fólk getur komið hingað og sinnt ótrúlega mörgu í einni ferð. Það er einfaldlega gott að búa í Hafnarfirði.“
Verslun Hafnarfjörður Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira