Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar 11. ágúst 2026 07:00 Afsakið, ég er 75 ára gamall kall og hef marga fjöruna sopið. Samt er ég enn að velta fyrir mér stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu, þótt einhverjum kunni að finnast að ég eigi að vera löngu hættur því. En það verður að hafa það. Við erum lítil þjóð. Samt tökum við þátt í fjölmörgum alþjóðlegum samtökum og samstarfi. Við erum í NATO, EFTA og EES-samstarfinu, auk margvíslegs norræns og alþjóðlegs samstarfs. Þar sitjum við oft við sama borð og ríki sem eru margfalt stærri en við. Það er því eðlilegt að spyrja: Hversu mikil áhrif höfum við í raun – og hvenær er skynsamlegt að deila ákvörðunarvaldi með öðrum? Þegar ég fór að hugsa þetta datt mér í hug eitt fullveldismál sem hefur fengið furðu litla athygli. Ég set það hér fram á léttu nótunum: íslenski fótboltinn. Kannski ætti KSÍ einfaldlega að segja sig úr UEFA. Og úr FIFA í leiðinni. Hugsum málið aðeins. Samkvæmt strangri fullveldishugsun hefur íslenskur fótbolti afhent ótrúlega mikið vald til útlendinga. Við megum ekki sjálf ákveða stærð vallarins, markanna eða boltans. Við megum ekki einu sinni ákveða hversu margir leikmenn eru inni á vellinum. Og svo kemur þetta erlenda reglugerðafargan og segir okkur hvenær maður er rangstæður. Hvar endar þetta? Leðurtuðran góða er meira að segja orðin hátæknibúnaður. Boltinn getur tengst mælikerfum og myndavélar, tölvur og VAR-dómarar fylgjast með hverri tá og öxl. Maður bíður hálfpartinn eftir 300 blaðsíðna reglugerð um leyfilegan loftþrýsting í boltanum. Með úrsögn úr UEFA gæti íslensk knattspyrna hins vegar orðið algerlega sjálfstæð og fullvalda á ný. Við gætum sett okkar eigin reglur. Finnst okkur rangstaðan leiðinleg? Burt með hana. Eru 90 mínútur of langar í íslensku roki? Höfum leikinn 70 mínútur. Og hvers vegna ellefu leikmenn? Við erum fámenn þjóð; sjö eða átta ættu að duga. Mark af 30 metra færi gæti jafnvel talið tvöfalt. Og það besta: Íslenska landsliðið yrði ósigrandi. Við myndum einfaldlega hætta að keppa við önnur landslið. Engin töp gegn stórþjóðum. Engin undankeppni. Engin ferðalög. Enginn erlendur dómari. Enginn VAR-dómari einhvers staðar úti í heimi að draga línu yfir stóru tána á íslenskum framherja. Hugsið ykkur líka sparnaðinn. Alþjóðleg mót kosta sitt: ferðalög, hótel, undirbúning og allur pakkinn. Með úrsögn gætum við einbeitt okkur að innanlandsmótinu. Kannski mætti jafnvel fjárfesta í stórri þyrlu sem flytti liðin á milli landshluta. Það yrði að minnsta kosti mjög íslensk lausn. En hér lýkur brandaranum. Því auðvitað vill nánast enginn þetta. Við tökum þátt í UEFA og FIFA vegna þess að við viljum vera með. Við viljum keppa við bestu þjóðir heims þótt við séum lítil. Við sættum okkur við sameiginlegar leikreglur vegna þess að án sameiginlegra reglna væri einfaldlega enginn sameiginlegur leikur. Og stundum gerist hið ótrúlega. Litla Ísland stendur jafnfætis miklu stærri þjóðum. Þá verður smæðin ekki veikleiki heldur hluti af sögunni. Við höfum líka áður sýnt að smæð þarf ekki að þýða áhrifaleysi; í þorskastríðunum stóð lítil þjóð fast á sínum hagsmunum gagnvart miklu stærra ríki. Þarna finnst mér vera lærdómur fyrir hina miklu alvarlegri umræðu um stöðu Íslands í heiminum. Alþjóðlegt samstarf felur nær alltaf í sér sameiginlegar reglur og einhverja málamiðlun. Það á við um knattspyrnu, viðskipti, varnir, flug, siglingar, fjármál og ótal annað. Reglur eru því ekki sjálfkrafa valdarán. Spurningin er hver setur þær, hvaða aðkomu við höfum að þeim og hvort við teljum ávinninginn réttlæta skuldbindingarnar. Fullveldi getur líka falist í því að fullvalda ríki velji sjálft hvaða samninga það gerir. Þá verður lykilspurningin ekki bara hvort við deilum ákvörðunarvaldi, heldur hversu miklu, á hvaða sviðum, með hvaða ávinningi – og hversu auðvelt er að breyta ákvörðuninni síðar. Stundum er valið heldur ekki milli þess að ráða öllu sjálf eða láta aðra ráða. Reglur geta orðið til hvort sem við sitjum við borðið eða ekki. Þá þarf að spyrja hvort okkur sé betur borgið með því að taka þátt í reglusmíðinni eða standa fyrir utan og taka við afleiðingunum. Þar verður samanburðurinn við Evrópusambandið auðvitað flóknari. UEFA er ekki Evrópusambandið og fótboltaleikur er ekki stjórnarskrá ríkis. Fiskimið, orka, landbúnaður, gjaldmiðill, löggjöf og lýðræðislegt ákvörðunarvald eru allt annars eðlis og miklu stærri mál en rangstöðuregla. Þess vegna á ekki að nota fótboltalíkinguna til að afgreiða umræðuna um Evrópusambandið. En kannski má nota hana til að bæta umræðuna. Við eigum ekki sjálfkrafa að óttast alþjóðlegt samstarf vegna þess að við erum lítil. En við eigum heldur ekki sjálfkrafa að ganga inn í hvert það samstarf sem okkur stendur til boða. Hvort tveggja er of einfalt. Við eigum að meta hvert samstarf út frá eigin forsendum: Hvað fær Ísland? Hverju gefum við eftir? Getum við haft áhrif? Getum við sagt nei þegar íslenskir grundvallarhagsmunir eru undir? Hvað er hægt að afturkalla? Og er ávinningurinn meiri en kostnaðurinn? Og meðan við ræðum það legg ég til að KSÍ haldi aðild sinni að UEFA. Að minnsta kosti þar til við höfum fengið verðtilboð í þyrluna. Kannski er þetta einmitt það sem vantar mest í umræðuna núna. Minna af því að flokka fólk í „já-fólk“ og „nei-fólk“ og meira af því að ræða einstök atriði af yfirvegun. Það er hægt að sjá kosti við alþjóðlegt samstarf án þess að vilja ganga alla leið. Og það er hægt að hafa efasemdir um Evrópusambandið án þess að vera á móti Evrópu. Það ætti líka að vera hægt að sitja við sama eldhúsborðið þótt fjölskyldumeðlimir kjósi sitt hvoru megin. Lýðræði er ekki úrslitaleikur þar sem annar helmingurinn þarf að niðurlægja hinn. Við þurfum að geta mætt í sunnudagskaffið eftir kosningar. Ég vil að Ísland taki þátt í alþjóðasamfélaginu af krafti og sjálfstrausti. Ég vil samstarf við Evrópu, Norðurlöndin, Bretland, Norður-Ameríku og aðrar þjóðir þar sem það þjónar íslenskum hagsmunum. En ég vil líka að við vitum hvenær samstarf er skynsamleg samvinna – og hvenær við erum að færa frá okkur ákvörðunarvald sem við teljum okkur betur borgið með sjálf. Það er sú umræða sem ég vildi sjá. Ekki hvort Evrópa sé góð eða vond. Ekki hvort þeir sem segja já séu betri heimsborgarar eða þeir sem segja nei meiri Íslendingar. Heldur einfaldlega: Hvaða samstarf þjónar Íslandi best, hvað eigum við að gera með öðrum og hvaða ákvarðanir eigum við áfram að taka sjálf? Ég hef komist að minni niðurstöðu. Ég ætla að segja NEI. En ég vona jafnframt að þeir sem segja já og þeir sem segja nei geti áfram sest saman við sama eldhúsborðið daginn eftir og rætt næsta leik. „Lífið er leikur en fótbolti er alvara.“ Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri ýmissa fyrirtækja og stofnana. Nú á ellilífeyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun