Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður SÝN 11. ágúst 2026 13:09 Samfélagsmiðlastjarnan og ástríðukokkurinn Adam K. Helgason er gestagrillari í nýjasta þættinum af Grillað með Sjöfn. Myndir/Hallur Karlsson. „Það er ekki víst að þetta klikki, þótt ég hafi aldrei prófað þetta áður,“ segir grillari dagsins um áhættugrillréttinn sinn.
Adam Karl Helgason, betur þekktur sem samfélagsmiðlastjarna og ástríðukokkur, er gestagrillari í nýjasta þættinum af Grillað með Sjöfn. Adam elskar fátt meira en að taka áhættu þegar grillað er og prófa ný trix með það að markmiði að slá í gegn. „Adam bauð mér upp á frumlegasta og bragðbesta pylsuréttinn sem ég hef bragðað, ómótstæðilega góðar chili-ostapylsur með heimagerðu guacamole og ferkum jalapeño-pipar sem hann bar fram í hvítlaukspylsubrauði.“ „Hann kenndi mér líka nýja aðferð við að grilla pylsurnar sem steinliggur. Þetta verður einn af grillréttunum í grillveislunni á Menningarnótt,“ segir Sjöfn eftir matarupplifunina með Adami. Þáttinn og allar uppskriftirnar má finna hér fyrir neðan. Uppskriftirnar miðast við fjóra og allt hráefnið fæst í Krónunni. Grillaðar chili-ostapylsur með heimagerðu guacamole og ferskum jalapeño-pipar, bornar fram í hvítlaukspylsubrauði. Chili-ostapylsur með hvítlauksbrauði, guacamole og jalapeño Pylsur og brauð 4 SS Chili osta-pylsur (eða aðrar stórar pylsur að eigin vali) 4 pylsubrauð að eigin vali Grillteinar Hvítlaukssmjör 75 g smjör 3–4 hvítlauksrif, fínt rifin Salt og svartur pipar eftir smekk Rifinn ostur (valfrjálst) Adam notaði Chili osta-pylsur en hægt er nota aðrar stórar pylsur. Pylsubrauðin voru þrædd upp á grillpinna til að auðvelda grillun. Guacamole 1 avókadó 1-2 tómatar, saxaðir 1/2 rauðlaukur, saxaður eða skorinn smátt 2-3 hvítlauksgeirar, franskur hvítlaukur Handfylli ferskt kóríander, saxað smátt Salt og pipar eftir smekk Til að klára Uppáhalds sterka sósan þín, við notuðum sósuna frá LeFever Steiktur laukur Ferskur jalapeño-pipar, skorinn í þunnar sneiðar 1 límóna, skorin í báta Aðferð: Undirbúningur pylsanna. Þræðið grilltein í gegnum hverja pylsu. Skerið síðan pylsuna í spíral með því að skera hana á ská allan hringinn frá öðrum endanum að hinum. Þannig lengist pylsan og bil myndast í spíralnum, sem gefur meira pláss fyrir áleggið og auðveldar jafna grillun. Grillið pylsurnar þar til þær eru fallega brúnaðar og osturinn inni í þeim orðinn mjúkur. Hvítlauksbrauð Bræðið smjörið í potti við vægan hita. Bætið rifnum hvítlauk saman við og kryddið með salti og pipar. Penslið pylsubrauðin vel með hvítlaukssmjörinu og ristið þau létt á grillinu þar til þau verða gyllt og stökk að utan. Ef þið viljið bæta við osti, stráið rifnum osti yfir brauðin á meðan þau eru á grillinu svo hann nái að bráðna. Adam finnst best að guacamole sé gróft og með góðri áferð. Guacamole Stappið avókadó gróflega í skál. Bætið tómötum, rauðlauk, hvítlauk og kóríander út í. Kryddið með salti og pipar og blandið varlega saman. Adam finnst best að guacamole sé gróft og með góðri áferð. Hér er eitthvað gott að fæðast! Samsetning Setjið pylsuna í ristaða hvítlauksbrauðið. Dreifið ríkulegu lagi af guacamole yfir pylsuna og toppið með sterku sósunni. Bætið síðan við steiktum lauk og ferskum jalapeño-sneiðum. Berið fram með límónubát á hliðinni svo hver og einn geti kreist ferskan límónusafa yfir fyrir extra ferskleika og sýru. „Adam bauð mér upp á frumlegasta og bragðbesta pylsuréttinn sem ég hef bragðað," segir Sjöfn. Njótið vel.
Grillað með Sjöfn Grillréttir Matur Uppskriftir Mest lesið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Lífið samstarf Fleiri fréttir Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður The ABBA Tribute snýr aftur í Hörpu og Hof Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Myndaveisla: Bylgjulestin kvaddi sumarið á Flúðum Súrdeigsbrauðdrottningin breytti pítsadeigi í þriggja rétta grillveislu Ekki ofpeppast í áfenginu, plastpoka á táslurnar og forðast tjörnina Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Bylgjulestin brunar á Flúðir Í festival gír með Icewear Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Hitavörn, blástursvörn eða UV-vörn? Hvað þarf hárið þitt í raun og veru? Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Glæsilegir vinningar í boði í Sumarleik Kjarnafæðis Bylgjulestin brunar á Kótelettuna Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Bylgjulestin fer norður á morgun Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Sjá meira