Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 8. ágúst 2026 07:04 Haft var eftir ónafngreindum háttsettum embættismanni ríkisstjórnar Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnarinnar) á sviði stækkunarmála á fréttavefnum Politico í gær að Ísland gæti hugsanlega gengið í sambandið samhliða Svartfjallalandi yrði samþykkt í þjóðaratkvæðinu í lok mánaðarins að setja stefnuna á inngöngu í það. Annar embættismaður hennar tekur undir þetta í fréttinni og bætir við að vegna ríkidæmis Íslands myndi landið greiða meira til Evrópusambandsins en fengist í styrki þaðan og borga fyrir inngöngu Svartfjallalands enda yrði það fátækasta ríki sambandsins. Meira en 30 ár eru liðin síðan ríki gengu í Evrópusambandið sem greiða meira til þess en þau fá til baka frá sambandinu í hvers kyns styrki. Svokallaðir nettógreiðendur til þess. Frá því að Svíþjóð, Finnland og Austurríki gengu í það árið 1995. Ísland yrði fyrsta ríkið á þeim tíma til þess að ganga í Evrópusambandið sem greiddi með sér. Síðan hafa þrettán ríki orðið hluti Evrópusambandsins sem eru þvert á móti nettóþiggjendur. Aðallega í Austur-Evrópu. Fá þannig meira frá sambandinu en þau greiða til þess. Ísland myndi ásamt minnihluta ríkja Evrópusambandsins greiða reikninginn. Með öðrum orðum myndum við alltaf greiða með okkur. Allt sem við fengjum frá Evrópusambandinu kæmi þannig í raun úr okkar eigin vösum og miku meira en það. Meirihluti ríkja sambandsins fær mun meira úr sjóðum þess en þau greiða í þá eða 17 af 27 og sér ekki fyrir endann á því. Flest ríkjanna gengu í sambandið fyrir meira en 20 árum. Tíu önnur eru síðan annað hvort samþykkt eða möguleg umsóknarríki og yrðu öll nettóþiggjendur. Þar á meðal eru Úkraína og Moldóva. Það er ekki að furða að Evrópusambandið hafi lagt til 48% hækkun á greiðslum ríkja sambandsins í sjóði þess. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Haft var eftir ónafngreindum háttsettum embættismanni ríkisstjórnar Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnarinnar) á sviði stækkunarmála á fréttavefnum Politico í gær að Ísland gæti hugsanlega gengið í sambandið samhliða Svartfjallalandi yrði samþykkt í þjóðaratkvæðinu í lok mánaðarins að setja stefnuna á inngöngu í það. Annar embættismaður hennar tekur undir þetta í fréttinni og bætir við að vegna ríkidæmis Íslands myndi landið greiða meira til Evrópusambandsins en fengist í styrki þaðan og borga fyrir inngöngu Svartfjallalands enda yrði það fátækasta ríki sambandsins. Meira en 30 ár eru liðin síðan ríki gengu í Evrópusambandið sem greiða meira til þess en þau fá til baka frá sambandinu í hvers kyns styrki. Svokallaðir nettógreiðendur til þess. Frá því að Svíþjóð, Finnland og Austurríki gengu í það árið 1995. Ísland yrði fyrsta ríkið á þeim tíma til þess að ganga í Evrópusambandið sem greiddi með sér. Síðan hafa þrettán ríki orðið hluti Evrópusambandsins sem eru þvert á móti nettóþiggjendur. Aðallega í Austur-Evrópu. Fá þannig meira frá sambandinu en þau greiða til þess. Ísland myndi ásamt minnihluta ríkja Evrópusambandsins greiða reikninginn. Með öðrum orðum myndum við alltaf greiða með okkur. Allt sem við fengjum frá Evrópusambandinu kæmi þannig í raun úr okkar eigin vösum og miku meira en það. Meirihluti ríkja sambandsins fær mun meira úr sjóðum þess en þau greiða í þá eða 17 af 27 og sér ekki fyrir endann á því. Flest ríkjanna gengu í sambandið fyrir meira en 20 árum. Tíu önnur eru síðan annað hvort samþykkt eða möguleg umsóknarríki og yrðu öll nettóþiggjendur. Þar á meðal eru Úkraína og Moldóva. Það er ekki að furða að Evrópusambandið hafi lagt til 48% hækkun á greiðslum ríkja sambandsins í sjóði þess. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar