Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 6. ágúst 2026 14:40 Sigurbjörg Ottesen formaður nefndar Búnaðarþings um möguleg áhrif af ESB aðild á íslenskan landbúnað. Vísir/Lýður Kerfisbreyting yrði á íslenskum landbúnaði sem hefði áhrif á nær alla grunnþætti hans færi Ísland í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í skýrslu sem Búnaðarþing lét gera um möguleg áhrif aðildar á íslenskan landbúnað. Formaður skýrslunnar óttast að aðild hefði í för með sér valdaframsal á íslenskum landbúnaði.
Búnaðarþing ákvað í vor að skipa sjö bændur í nefnd til að kanna hvaða mögulegu áhrif aðildarviðræður og aðild Íslands að ESB hefðu á íslenskan landbúnað. Sigurbjörg Ottesen, formaður nefndarinnar og bóndi, kynnti niðurstöður skýrslu nefndarinnar í morgun hjá Bændasamtökunum. Skýrslan telur 130 blaðsíður og skiptist í átta kafla. Nefndin kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að með aðild myndi stór hluti ákvörðunarvalds Íslands varðandi landbúnað færast til ESB. Tíu prósenta lækkun en efnahagslegt áfall fyrir finnska bændur Fram kemur að íslenskur landbúnaður njóti meiri stuðnings en landbúnaður innan ESB. Þá gæti afurðaverð til bænda lækkað meira en verð til neytenda með aðild. Lögð er áhersla á að aðildarviðræður séu ekki hlutlaust millibilsástand fyrir landbúnaðinn. Þær muni skapa óvissu fyrir bændur. Í skýrslunni er horft til reynslu Finna í landbúnaðarmálum sem gengu í Evrópusambandið 1995 og fengu heimild til sérstaks norðlægs stuðnings vegna erfiðra framleiðsluskilyrða. Fram kemur að sá stuðningur sé greiddur af finnska ríkinu. Í skýrslunni er fullyrt að Finnar hafi tekið að fullu upp stefnu Evrópusambandsins í landbúnaðarmálum sem hafi leitt til mikillar lækkunar framleiðendaverðs og efnahagslegs áfalls fyrir landbúnaðinn í Finnlandi. Verð til neytenda hafi lækkað um 10-11 prósent. Telja að valdið muni færast til Evrópusambandsins „Það sem ég dreg stærst út úr þessari skýrslu er framsal valds varðandi landbúnaðinn. Það vald myndi færast til Evrópusambandsins með aðild. Sérstaklega varðandi landnýtingu,“ segir Sigurbjörg Ottesen formaður nefndarinnar. Aðspurð hvort nefndin hafi komið auga á einhverjar undanþágur varðandi mögulegt valdaframsal svarar Sigurbjörg því neitandi, „Við sáum engar varanlegar undanþágur sem við gætum horft til.“ Aðspurð um hvort styrkir Evrópusambandsins gætu haft jákvæð áhrif á íslenskan landbúnað svaraði Sigurbjörg. „Jú það kæmi stuðningur í einhvers konar formi en svo er spurning hvort það sé markaðsverndarinnar virði,“ segir Sigurbjörg.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Landbúnaður Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira