Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar 5. ágúst 2026 13:00 Af málflutningi sumra ESB-sinna mætti ætla að Ísland geti tekið upp evru og við það lækkað verðbólgu og vexti. Þar er röðinni snúið við. Ísland þarf fyrst að ná tökum á verðbólgu og langtímavöxtum ríkissjóðs með krónuna sem gjaldmiðil. Að því loknu getur evran komið til greina. Ekki fyrr. Áður en aðildarríki getur tekið upp evru þarf það að sýna fram á varanlega efnahagslega samleitni. Verðbólga, mæld samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs, má ekki vera meira en 1,5 prósentustigum yfir meðaltali þeirra þriggja aðildarríkja sem standa sig best í verðstöðugleika. Langtímavextir ríkissjóðs mega ekki vera meira en tveimur prósentustigum yfir meðaltali sömu viðmiðunarríkja. Halli hins opinbera má að jafnaði ekki fara yfir 3 prósent af landsframleiðslu. Skuldir hins opinbera eiga að vera undir 60 prósentum eða lækka nægilega hratt í þá átt. Krónan þyrfti síðan að vera í ERM II í að minnsta kosti tvö ár án verulegs gengisþrýstings og án þess að íslensk stjórnvöld felldu miðgengi hennar gagnvart evru. Allan þann tíma yrði krónan áfram gjaldmiðill Íslands. Evran kæmi því ekki fyrst og síðan lækkuðu verðbólga og vextir. Ísland þarf sjálft að ná þeim árangri með krónunni áður en upptaka evru kemur yfirhöfuð til álita. Evran er engin töfralausn fram hjá íslenskri hagstjórn. Evran kemur ekki strax og stundum alls ekki Reynsla annarra ríkja sýnir að langur tími getur liðið frá inngöngu í ESB þar til evran er tekin upp, ef það gerist þá yfir höfuð. Króatía gekk í ESB árið 2013 og tók upp evru árið 2023. Litháen gekk í sambandið árið 2004 og tók upp evru árið 2015. Búlgaría gekk í ESB árið 2007 en tók ekki upp evru fyrr en 1. janúar 2026. Svíþjóð, Pólland, Tékkland, Ungverjaland og Rúmenía hafa enn eigin gjaldmiðla. Þau eiga samkvæmt ESB-sáttmálunum að taka upp evru þegar skilyrðin eru uppfyllt, en enginn ákveðinn frestur er settur. Danmörk er eina aðildarríkið með formlega undanþágu. Aðild að ESB þýðir því hvorki að evran komi, né fljótlega. Ísland gæti áfram notað krónuna árum eða jafnvel áratugum saman eftir inngöngu. Aðild er ekki nægjanleg forsenda ESB-aðild er nauðsynleg forsenda formlegrar upptöku evru og aðildar að evrusvæðinu, en hún er ekki nægjanleg. Ísland þyrfti eftir sem áður að standast samleitniskilyrðin og vera í ERM II áður en evran gæti komið til greina. Sá munur skiptir máli. Atkvæði með aðildarviðræðum er því ekki atkvæði um tafarlausa upptöku evru. Aðild að ESB tryggir heldur hvorki að evran verði tekin upp fljótt, né að Ísland standist skilyrðin til þess. Forgangsröðunin er skýr Forgangsmál íslenskra stjórnvalda hlýtur að vera að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Það verkefni hverfur ekki þótt Ísland yrði aðildarríki ESB. Spurningin til þeirra sem vilja evru er því einföld: Hvers vegna að verja tíma, pólitískri orku og opinberu fé í langt og óvisst aðildarferli, meðal annars til að reyna að semja um undanþágur og svigrúm sem Ísland hefur nú þegar, þegar fyrst þarf að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni? Fyrst þarf hvort eð er að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Takist það ekki kemur evran hvort sem er ekki til greina. Forgangsröðunin ætti því að vera augljós: Leysum fyrst vandann sem við verðum hvort sem er að leysa sjálf með krónunni. Höfundur er fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands og doktor í hagfræði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar