FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2026 10:01 Réttir Donald Trump Gianni Infantino hjálparhönd? epa/WILL OLIVER Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, þvertekur fyrir að forseti þess, Gianni Infantino, hafi hringt í Donald Trump Bandaríkjaforseta eða aðra í ríkisstjórn hans til að biðja um aðstoð.
Hart er sótt að Infantino þessa dagana eftir misheppnaða tilraun hans til að hleypa einkafjárfestum að innviðum FIFA, meðal annars sjálfu heimsmeistaramótinu. Samband Infantinos og Trumps er náið og fjölmiðlar ytra greindu frá því að FIFA-forsetinn hefði tekið upp tólið og óskað eftir hjálp frá Bandaríkjaforseta í þeim stormi sem nú geisar. The Times voru meðal þeirra sem greindu frá því að Infantino hefði leitað til Trumps. Fjölmiðladeild FIFA svaraði færslu The Times á X og vísaði frétt miðilsins til föðurhúsanna. „Forseti FIFA hefur ekki hringt nein símtöl í Bandaríkjaforseta eða aðra í ríkisstjórn hans undanfarna daga. Það er hreinn uppspuni,“ segir í færslu FIFA. The FIFA President has not made any call to the U.S President, or any members of his administration, in recent days. It is pure fiction.— FIFA Media (@fifamedia) August 4, 2026 Eftir hörð viðbrögð fótboltasamfélagsins hætti Infantino við áætlanir sínar um að selja hlut í HM. Hann greindi frá því á föstudagskvöldið. Infantino ætlaði að setja fjárfestingarfyrirtækið FFE (FIFA Forward Enterprise) á laggirnar til að halda utan um viðburði á vegum FIFA. Selja átti tuttugu prósenta hlut þess til einkafjárfesta. Bróðir tengdasonar Trumps, Jareds Kushner, átti að leiða fjárfestingarhóp FFE. Eftir vendingar síðustu daga hafa nokkur knattspyrnusambönd neitað að styðja Infantino í næstu forsetakosningum FIFA. Þar á meðal eru knattspyrnusambönd Englands og Svíþjóðar. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, gagnrýndi fyrirætlanir Infantinos harðlega. Á neyðarfundi UEFA á fimmtudaginn samþykktu öll 55 aðildarríki sambandsins að sniðganga HM ef hugmyndir Infantinos næðu fram að ganga.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Framtíð Gianni Infantino sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins er í miklu uppnámi en margir af forsprökkum í alþjóðlegum fótbolta vilja að hann yfirgefi forsetastólinn. 3. ágúst 2026 10:01 UEFA hótar FIFA með lögsókn UEFA hefur hótað FIFAmeð því að lögsækja Alþjóðaknattspyrnusambandið fyrir að reyna að selja hlut í heimsmeistaramótinu til einkaaðila. 2. ágúst 2026 22:57 Á enn hauka í horni: Marokkó og Katar lýsa yfir stuðningi við Infantino Ekki hafa öll aðildarríki FIFA snúið baki við Gianni Infantino, forseta sambandsins, vegna umdeildra áætlana hans um að selja hlut í því til einkafjárfesta. Katar og Marokkó hafa meðal annars lýst yfir stuðningi við Infantino. 2. ágúst 2026 15:19 „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, kallar eftir afsögn Gianni Infantino, forseta FIFA, í ljósi áætlana hans um að selja hlut í sambandinu til einkafjárfesta. 1. ágúst 2026 14:01 UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, kallar eftir nýrri forystu hjá FIFA í ljósi áætlana hans um einkafjárfestingu í sambandinu, sem hætt hefur verið við. Forsetakosningar fara fram í mars. 1. ágúst 2026 12:00 JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fjárfestingabankinn JP Morgan safnaði fé fyrir fyrirætlanir Gianni Infantino um einkavæðingu Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Bankinn var áður stór hluti af plönum um evrópska ofurdeild. 1. ágúst 2026 10:30 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira
Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Framtíð Gianni Infantino sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins er í miklu uppnámi en margir af forsprökkum í alþjóðlegum fótbolta vilja að hann yfirgefi forsetastólinn. 3. ágúst 2026 10:01
UEFA hótar FIFA með lögsókn UEFA hefur hótað FIFAmeð því að lögsækja Alþjóðaknattspyrnusambandið fyrir að reyna að selja hlut í heimsmeistaramótinu til einkaaðila. 2. ágúst 2026 22:57
Á enn hauka í horni: Marokkó og Katar lýsa yfir stuðningi við Infantino Ekki hafa öll aðildarríki FIFA snúið baki við Gianni Infantino, forseta sambandsins, vegna umdeildra áætlana hans um að selja hlut í því til einkafjárfesta. Katar og Marokkó hafa meðal annars lýst yfir stuðningi við Infantino. 2. ágúst 2026 15:19
„Rangur maður til að leiða þessi samtök“ Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, kallar eftir afsögn Gianni Infantino, forseta FIFA, í ljósi áætlana hans um að selja hlut í sambandinu til einkafjárfesta. 1. ágúst 2026 14:01
UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, kallar eftir nýrri forystu hjá FIFA í ljósi áætlana hans um einkafjárfestingu í sambandinu, sem hætt hefur verið við. Forsetakosningar fara fram í mars. 1. ágúst 2026 12:00
JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fjárfestingabankinn JP Morgan safnaði fé fyrir fyrirætlanir Gianni Infantino um einkavæðingu Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Bankinn var áður stór hluti af plönum um evrópska ofurdeild. 1. ágúst 2026 10:30