Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 09:32 Í vikunni fór ég, eins og oft áður, í Breiðholtslaug. Ef ég er á ferðinni fyrir hádegi kemur fyrir að ég rekist þar á pabba, sem er nánast daglegur gestur. Þegar ég var að fara ofan í laugina og hann að koma upp úr sagði hann mér að karlarnir hefðu sagt að nú yrði hann að tala við dóttur sína vegna þess að ég vildi segja já í ágúst. Pabbi svaraði einfaldlega að börnin hans hefðu alltaf mátt hafa sínar eigin skoðanir. Ég brosti og sagði að þau mamma mættu vera stolt af því að hafa alið okkur sex systkinin upp þannig að við lærðum að mynda okkur okkar eigin skoðanir. Ég er þakklát fyrir að mér var kennt að hlusta á ólík sjónarmið, kynna mér gögn og taka upplýstar ákvarðanir. Fyrir mér er það kjarninn í kosningunum 29. ágúst. Um hvað er kosið? Við erum ekki að kjósa um að ganga í Evrópusambandið. Við erum að kjósa um hvort Ísland eigi að hefja að nýju formlegar viðræður um mögulega aðild og fá fram samningsniðurstöðu sem þjóðin getur síðan metið. Viðræðurnar eru ekki aðeins upplýsingasöfnun. Þær eru hluti af aðildarferli og enginn á að lofa að niðurstaðan verði góð. En ég heyri oft sagt: „Það er ekkert um að semja.“ Það er rétt að Ísland getur ekki endurskrifað grundvallarreglur ESB. Viðræðurnar snúast hins vegar meðal annars um framkvæmd, aðlögun, sérlausnir og hvort hægt sé að verja íslenska hagsmuni nægilega vel. Ég heyri líka að betra sé að standa utan ESB. Það getur vel orðið niðurstaðan. EES-samningurinn hefur þjónað Íslandi vel og það eru lögmæt rök fyrir núverandi stöðu. En hvernig getum við hafnað samningi sem hefur ekki verið gerður? Það er rétt að aðildarviðræður kosta tíma og fjármuni. En þær skuldbinda Ísland ekki sjálfkrafa til aðildar. Ef niðurstaða aðildarviðræðnanna er óásættanleg ætti þjóðin að hafna henni. Mér finnst gott að búa á Íslandi og ég er stolt af því sem við höfum byggt upp. En það að Ísland sé gott land þýðir ekki að við eigum aldrei að kanna hvort við getum gert betur. Mér var allavega kennt að kynna mér gögn og hlusta áður en ég mynda mér skoðun. Það hefur reynst mér vel hingað til og þess vegna mun ég kjósa já 29. ágúst — ekki vegna þess að ég hafi fyrirfram samþykkt ESB-aðild, heldur vegna þess að ég tel að þjóðin eigi að fá að sjá samningsniðurstöðu og þá getum við raunverulega myndað okkur skoðun byggða á gögnum. Höfundur er verkfræðingur og stjórnarmaður í SJÁ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Sjá meira
Í vikunni fór ég, eins og oft áður, í Breiðholtslaug. Ef ég er á ferðinni fyrir hádegi kemur fyrir að ég rekist þar á pabba, sem er nánast daglegur gestur. Þegar ég var að fara ofan í laugina og hann að koma upp úr sagði hann mér að karlarnir hefðu sagt að nú yrði hann að tala við dóttur sína vegna þess að ég vildi segja já í ágúst. Pabbi svaraði einfaldlega að börnin hans hefðu alltaf mátt hafa sínar eigin skoðanir. Ég brosti og sagði að þau mamma mættu vera stolt af því að hafa alið okkur sex systkinin upp þannig að við lærðum að mynda okkur okkar eigin skoðanir. Ég er þakklát fyrir að mér var kennt að hlusta á ólík sjónarmið, kynna mér gögn og taka upplýstar ákvarðanir. Fyrir mér er það kjarninn í kosningunum 29. ágúst. Um hvað er kosið? Við erum ekki að kjósa um að ganga í Evrópusambandið. Við erum að kjósa um hvort Ísland eigi að hefja að nýju formlegar viðræður um mögulega aðild og fá fram samningsniðurstöðu sem þjóðin getur síðan metið. Viðræðurnar eru ekki aðeins upplýsingasöfnun. Þær eru hluti af aðildarferli og enginn á að lofa að niðurstaðan verði góð. En ég heyri oft sagt: „Það er ekkert um að semja.“ Það er rétt að Ísland getur ekki endurskrifað grundvallarreglur ESB. Viðræðurnar snúast hins vegar meðal annars um framkvæmd, aðlögun, sérlausnir og hvort hægt sé að verja íslenska hagsmuni nægilega vel. Ég heyri líka að betra sé að standa utan ESB. Það getur vel orðið niðurstaðan. EES-samningurinn hefur þjónað Íslandi vel og það eru lögmæt rök fyrir núverandi stöðu. En hvernig getum við hafnað samningi sem hefur ekki verið gerður? Það er rétt að aðildarviðræður kosta tíma og fjármuni. En þær skuldbinda Ísland ekki sjálfkrafa til aðildar. Ef niðurstaða aðildarviðræðnanna er óásættanleg ætti þjóðin að hafna henni. Mér finnst gott að búa á Íslandi og ég er stolt af því sem við höfum byggt upp. En það að Ísland sé gott land þýðir ekki að við eigum aldrei að kanna hvort við getum gert betur. Mér var allavega kennt að kynna mér gögn og hlusta áður en ég mynda mér skoðun. Það hefur reynst mér vel hingað til og þess vegna mun ég kjósa já 29. ágúst — ekki vegna þess að ég hafi fyrirfram samþykkt ESB-aðild, heldur vegna þess að ég tel að þjóðin eigi að fá að sjá samningsniðurstöðu og þá getum við raunverulega myndað okkur skoðun byggða á gögnum. Höfundur er verkfræðingur og stjórnarmaður í SJÁ.
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar