Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar 3. ágúst 2026 14:26 „Það virðist sem við séum á hverjum degi minnt á að við lifum á tímum samkeppni stórvelda, að reglubundin alþjóðaskipan sé á undanhaldi og að hinir sterku geti gert það sem þeir geta, en hinir veiku verði að þola það sem þeir verða að þola.“ - Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, 2026 Á örfáum árum hefur heimurinn orðið óstöðugri en flest okkar töldu mögulegt. Hugmyndir sem fyrir tveimur eða þremur árum hefðu talist fjarstæðukenndar eru orðnar hluti af daglegum fréttum. Tollar eru orðnir pólitískt þrýstingsvopn. Efnahagsþvingunum er beitt af áður óþekktri hörku. Alþjóðastofnanir sem áttu að tryggja stöðugleika eiga sífellt erfiðara með að standa undir hlutverki sínu. Jafnvel hefur verið rætt um möguleg átök milli ríkja sem eiga að vera bandamenn innan NATO. Frá lokum síðari heimsstyrjaldar hefur Ísland notið góðs af alþjóðakerfi sem byggði á reglum fremur en valdi. Kerfi sem gerði litlum ríkjum kleift að standa jafnfætis stórveldum. Kerfi sem tryggði að sjálfstæði Íslands væri virt og að rödd okkar skipti máli, þrátt fyrir smæð okkar. En það kerfi er að veikjast og þegar reglurnar veikjast eru það ekki stórveldin sem tapa, það eru ríki eins og Ísland. Við erum tæplega 400 þúsund manna eyþjóð í Norður-Atlantshafi. Við eigum ekki stærsta markaðinn. Við eigum ekki her. Við getum ekki þvingað aðra til hlýðni. Styrkur okkar hefur alltaf falist í því að reglurnar giltu um alla - að alþjóðalög vógu þyngra en vald þeirra sterkustu. Þess vegna skiptir Evrópa máli. Ég vil ekki halda því fram að Evrópusambandið sé gallalaust. Langt því frá. Ég hef til dæmis gagnrýnt hvernig sambandið hefur nálgast reglusetningu á sviði gervigreindar og tel að þar hafi það farið of langt í varfærni á kostnað nýsköpunar. En þetta snýst ekki um að velja hið fullkomna. Þetta snýst um að velja það sem þjónar hagsmunum Íslands best í þeim heimi sem við búum í, ekki þeim heimi sem við óskum að væri enn til. Aðild að Evrópusambandinu myndi ekki gera Ísland minna íslenskt. Hún myndi ekki taka frá okkur röddina. Þvert á móti myndi hún tryggja okkur sæti við borðið þar sem sífellt fleiri reglur sem hafa áhrif á íslenskt samfélag eru mótaðar. Hún myndi gefa okkur tækifæri til að hafa áhrif í stað þess að taka við ákvörðunum annarra eftir á. Í heimi þar sem stórveldi keppast í auknum mæli um áhrif skiptir það máli. Þess vegna finnst mér umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst oft byggð á röngum forsendum. Já í ágúst er ekki já við aðild. Já í ágúst er ekki já við evrunni. Já í ágúst er ekki já við sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Já í ágúst er einfaldlega já við því að hefja viðræður. Já við því að fá staðreyndir á borðið. Já við því að sjá hvaða kjör standa Íslandi raunverulega til boða áður en þjóðin tekur endanlega ákvörðun. Af hverju ætti sjálfstæð þjóð að óttast upplýsingar? Af hverju ættum við að hafna samningaborðinu áður en við vitum hvað liggur á því? Íslendingar hafa aldrei verið þjóð sem hræðist óvissuna. Við höfum byggt þetta land með því að horfast í augu við breytingar, laga okkur að nýjum aðstæðum og taka upplýstar ákvarðanir þegar mest hefur legið við. Heimurinn bíður ekki eftir því að Ísland ákveði sig. Spurningin er hvort við ætlum að mæta breyttum heimi af raunsæi eða nostalgíu. Hvort við ætlum að hafa áhrif á þær reglur sem móta framtíð okkar eða láta aðra móta þær fyrir okkur. Ég kýs að Ísland hafi rödd. Ég kýs að Ísland taki þátt. Og þess vegna kýs ég já við því að hefja samtalið. Höfundur er viðskiptafræðinemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar