„Rangur maður til að leiða þessi samtök“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. ágúst 2026 14:01 Infantino sætir mikilli pressu. Getty Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, kallar eftir afsögn Gianni Infantino, forseta FIFA, í ljósi áætlana hans um að selja hlut í sambandinu til einkafjárfesta.
Infantino sætir töluverðri pressu vegna áætlana sinna, sem hann virðist hafa leitt einn síns liðs, án alls samráðs ekki aðeins við formenn knattspyrnusambanda heimsins, heldur einnig við sína helstu samstarfsmenn hjá alþjóðasambandinu. Í gærkvöld greindi Svisslendingurinn frá því að hann myndi falla frá hugmyndunum en ljóst er að hann hefur misst traust víða innan hreyfingarinnar. Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, steig fram í gærkvöld og er fyrsti þjóðarleiðtoginn sem kallar eftir brotthvarfi Infantino af forsetastóli. Burnham er mikill fótboltaáhugamaður og harður stuðningsmaður Everton á Englandi. Hann hafði þegar fordæmt áætlanir Infantino á samfélagsmiðlum þegar þær spruttu fram á þriðjudag. Hann var afgerandi í afstöðu sinni er hann ræddi við fjölmiðla í gær. Andy Burnham tók við sem forsætisráðherra Bretlands fyrir tveimur vikum.Getty/Dan Kitwood „Sú hugmynd að þetta gæti yfirhöfuð verið borið fram sýnir að mínu mati að forseti FIFA er rangur maður til að leiða samtökin.“ „Ég skal vera hreinskilinn. Fótbolti tilheyrir ekki fjárfestum. Hann tilheyrir fólkinu sem fyllir stúkurnar og stendur við hliðarlínuna viku eftir viku, í rigningu eða sólskini,“ sagði Burnham. „HM er ekki vara. Þetta er besta keppni í heimi íþrótta og það var aldrei neins að selja hana,“ segir Burnham og bætir við: „Fótbolti tilheyrir aðdáendunum. Hann hefur alltaf gert það og mun alltaf gera það.“
FIFA Bretland Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei komist á heimsmeistaramótið en stelpurnar okkar eru í dauðafæri að breyta því í vetur. Nú virðist hins vegar vera komið upp mál sem gæti leitt til þess að sá draumur verði ekki að veruleika. 31. júlí 2026 20:32 „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs FIFA gagnrýnir harðlega áform Gianni Infantino, forseta FIFA, um að selja eignarhluti í keppnum til einkafjárfesta. 31. júlí 2026 18:48 Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið fjörug vika. Vika getur verið langur tími í fótbolta, hvort sem er innan vallar og utan,“ segir Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ. Umdeild áætlun FIFA um að hleypa fjárfestum að borðinu hjá sambandinu hefur sætt gagnrýni víða. 31. júlí 2026 12:50 Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Carlos Cordeiro, yfirráðgjafi Gianni Infantino forseta FIFA, hefur sagt starfi sínu lausu í mótmælaskyni við fyrirhugaðar áætlanir um utanaðkomandi fjárfestingar. 31. júlí 2026 10:20 Mest lesið „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Enski boltinn „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ Handbolti „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Með fullt hús stiga eftir níu marka veislu Fótbolti Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Handbolti Fleiri fréttir Mun saga Arons endurtaka sig? Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Með fullt hús stiga eftir níu marka veislu Birta upptöku sem sannar kynþáttaníð gegn Mikael „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Eiginkona og sonur vitni að grófri árás sjö stuðningsmanna FCK „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Svona er hópurinn: Ísak Snær, Rúnar Alex og Arnór með Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Rekinn eftir aðeins fjóra leiki í starfi Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Efnilegastur í Bandaríkjunum: Slær Freddy Adu við Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Sjá meira
Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei komist á heimsmeistaramótið en stelpurnar okkar eru í dauðafæri að breyta því í vetur. Nú virðist hins vegar vera komið upp mál sem gæti leitt til þess að sá draumur verði ekki að veruleika. 31. júlí 2026 20:32
„Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs FIFA gagnrýnir harðlega áform Gianni Infantino, forseta FIFA, um að selja eignarhluti í keppnum til einkafjárfesta. 31. júlí 2026 18:48
Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið fjörug vika. Vika getur verið langur tími í fótbolta, hvort sem er innan vallar og utan,“ segir Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ. Umdeild áætlun FIFA um að hleypa fjárfestum að borðinu hjá sambandinu hefur sætt gagnrýni víða. 31. júlí 2026 12:50
Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Carlos Cordeiro, yfirráðgjafi Gianni Infantino forseta FIFA, hefur sagt starfi sínu lausu í mótmælaskyni við fyrirhugaðar áætlanir um utanaðkomandi fjárfestingar. 31. júlí 2026 10:20