Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júlí 2026 12:31 Vinícius Júnior skoraði í öllum leikjum Brasilíu í riðlakeppninni á HM í sumar. EPA/SAM WASSON Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal, telur ekki miklar líkur á að Vinícius Júnior komi til félagsins. Hann telur að Brassinn sé að nota áhuga Arsenal til að fá betri samning hjá Real Madrid.
Vinícius Júnior hefur verið orðaður við Englandsmeistara Arsenal undanfarnar vikur. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Real Madrid. Í pistli sínum fyrir Sky Sports segir Merson að Brassinn vilji ekki yfirgefa spænska félagið. „Vinícius Júnior er bara að leitast eftir nýjum samningi við Real Madrid. Hann er að spila með Arsenal,“ skrifar Merson. „En þetta er þar sem Arsenal er núna. Þetta er markaðurinn sem þeir versla á núna. Arsenal er að leitast eftir því að kaupa einhvern frá Real Madrid, einn af þeirra bestu leikmönnum. Að mínu mati er þetta áhyggjuefni fyrir öll önnur lið í ensku úrvalsdeildinni.“ Þurfa mann á vinstri kantinn Merson telur að Arsenal vanti kantmann fyrir titilvörnina á næsta tímabili. „Ef Arsenal fær ekki Vinícius Júnior verða þeir að fá Bradley Barcola. Þeir verða að fá vinstri kantmann, sérstaklega þar sem Leandro Trossard er farinn. Þeir eru ekki með mikla breidd í þessari stöðu,“ skrifar Merson. „Ef Arsenal fær hvorki Vinícius Júnior né Barcola er það mikið áhyggjuefni. Að mínu mati var ekki gott að láta Trossard fara, sérstaklega á þessa upphæð,“ bætir Merson við en Trossard fór til Besiktas í Tyrklandi. Hinn 26 ára Vinícius Júnior skoraði fjögur mörk fyrir Brasilíu á HM í sumar. Hann hefur leikið með Real Madrid undanfarin átta ár en félagið keypti hann frá Flamengo 2018. Á síðasta tímabili skoraði Vinícius Júnior 22 mörk í 53 leikjum fyrir Real Madrid í öllum keppnum.
Enski boltinn Arsenal FC Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira