Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar 29. júlí 2026 08:01 Í dag er mánuður í að Íslendingar gangi til kosninga og svari spurningunni um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Eins og gefur að skilja hefur umræða um kosningarnar tekið mikið pláss í samfélagsumræðunni og á það einungis eftir að aukast hér eftir. Eins og í flestum umræðum eru alls konar aðilar sem taka þátt, hvort sem það eru í forsvari fyrir einhverjar hreyfingar eða einstaklingar sem eru að viðra sínar persónulegu skoðanir, á eigin vegum. Umræðan getur því verið fljót að fara úr böndunum, þar sem menn leggja mismikla áherslu á að ráðast á málefnin og þá er því miður oft farið í manninn þess í stað. Það er ómögulegt að hafa stjórn á því hvað einstaka aðilar segja á sínum persónulegu miðlum og þess vegna hefur það ekkert upp á sig að ræða það. Við getum hins vegar rætt framsetningu þeirra hreyfinga sem taka þátt í umræðunni, en þær eiga einmitt talsvert stórt hlutverk í að móta umræðuna og skapa oft farveg fyrir hinar ýmsu skoðanir einstaklinga, sem mótast af því sem þær segja, hvort sem það er ætlunin eða ekki. Það er því mikilvægt að þessar hreyfingar séu meðvitaðar um það hvaða afleiðingar framsetning þeirra hefur á umræðuna og skoðanir fólks sem hyggst taka þátt í henni á eigin vegum. Andlýðræðislega ákvörðunin að kjósa í lýðræðislegum kosningum Hreyfingin „Já til að sjá“ hefur farið mikinn í umræðunni en þar hefur komið saman hópur fólks sem hefur aðhyllst aðild að Evrópusambandinu árum saman og þykist nú ekkert vita hvað aðild að sambandinu myndi fela í sér. Þar er talað um að „kíkja í pakkann“ og að sjá hvað er í boði. Hreyfingin og forsvarsmenn hennar hafa síendurtekið lagt fram þau rök „að það sé galið að segja nei við samning sem hefur ekki verið skrifaður“, sem hefur óneitanlega orðið til þess að umræðan snýst í auknum mæli um að það að kjósa nei komi á einhvern hátt í veg fyrir að hinir fái að sjá samninginn. Þessi framsetning getur leitt til þeirrar rökvillu að það sé andlýðræðislegt að haka við annan valkostinn í lýðræðislegum kosningum. Ef það væri raunin þá væri ekki verið að halda lýðræðislegar kosningar yfir höfuð. Þessi framsetning „Já til að sjá“ hefur einnig haft það í för með sér að einstaklingar hafa lesið úr þessu að um fáfræði sé að ræða að segja nei og hika þeir ekki við að kalla andstæðinga sína fáfróða og andlýðræðislega. Ég legg áherslu á að hér er um einstaklinga að ræða sem eru ekki tengdir hreyfingunni sjálfri, en það er framsetning hreyfingarinnar sem skapar farveginn fyrir þessa umræðu. Loforð um upplýsingar sem hvergi munu koma fram Forsvarsmenn „Já til að sjá“ hafa einnig verið duglegir að halda því fram að þeir vilji sjá hvaða vextir og matvælaverð standi okkur til boða að samningsviðræðum loknum. Það er þannig með vexti að það verður ekkert um þá hluti í samningnum, þar sem þeir eru ekki umsamin efni í aðildarferlinu (það segja jafnvel sérfræðingar sem eru hlynntir aðild). Það mætti færa rök fyrir því að vextir lækki með upptöku evrunnar og að matvælaverð lækki með niðurfellingu verndartolla. Sérfræðingar eru ekki allir sammála um það hverjar afleiðingarnar verða nákvæmlega og geta deilt um það fram og til baka, en þeir munu ekki fá neinar frekari upplýsingar til þess að rökræða eftir að samningurinn liggur fyrir. Til þess að komast að endanlegri niðurstöðu þarf hreinlega að ganga inn í sambandið og þess vegna myndi fólk sem kýs „já til að sjá“ hvaða vextir og matvælaverð standa til boða þurfa að kjósa „já til að sjá“ aftur í síðari kosningunum. Hið göfuga val að afsala komandi kynslóðum sjálfsákvörðunarréttinum Það sem gerir þetta verra er að nú er byrjað að blanda börnum fólks inn í umræðuna. Ég vitna beint í færslu frá „Já til að sjá“ þar sem fram kemur: „Má ég sjá hvort börnin mín geti fengið lægri vexti?“ Þarna er verið að teikna upp þá mynd að þeir sem kjósi nei séu á móti því að börn fólks eigi möguleika á betra lífi, að þeir sem kjósi nei séu á móti hagsmunum komandi kynslóða. Dregin hefur verið upp sú mynd að það að kjósa já sé á einhvern hátt mun göfugri kostur en að kjósa nei og það má sjá fleiri og fleiri eldri einstaklinga segjast ekki vera að kjósa fyrir sjálfa sig og ætla að kjósa já fyrir komandi kynslóðir, þar sem það er búið að sannfæra þá um að það að kjósa nei taki frá öðrum tækifærið til að greiða síðar atkvæði um aðildarsamninginn. Það mætti þó færa rök fyrir því að raunveruleikinn sé akkúrat andstæðan við þá mynd. Með því að kjósa já er verið að styðja ferli þar sem endamarkmiðið hlýtur að vera að ganga inn í samband sem myndi afsala komandi kynslóðum sjálfsákvörðunarréttinum um eigin framtíð, þar sem komandi kynslóðir myndu missa frelsið til þess að stjórna sér sjálfar, líkt og kynslóðirnar sem á undan hafa komið fengu frelsi til. Það er ekki fáfræði að kjósa nei, það er ekki andlýðræðislegt að kjósa nei og það er ekki brot gegn komandi kynslóðum að kjósa nei. Það að kjósa nei er einfaldlega pólitísk afstaða, sú afstaða að Íslendingar séu best til þess fallnir að stjórna sér og sínum hagsmunum sjálfir. Höfundur er fjármálaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun