Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar 28. júlí 2026 10:30 Ryksuga og tólf binda ritverk Hver man ekki eftir farandsölumönnunum sem hér á árum áður gengu í hús í Reykjavík með alfræðirit, uppþvottabursta og jafnvel ryksugur og höfðu allir sama formálann: Það kostar ekkert að skoða. Húsráðandi þurfti ekkert að kaupa, engin skuldbinding fylgdi því að fletta sýnishorninu, hann mátti meira að segja halda bæklingnum. Þeir sem eldri eru muna hvernig þessum heimsóknum lauk gjarnan. Þegar sölumaðurinn kvaddi lá tólf binda ritverk á stofuborðinu og undirskrift húsráðandans á afborgunarsamningi í tösku gestsins. Sá sem hafði aðeins ætlað að kíkja var orðinn kaupandi, og hafði þó aldrei ætlað sér það, enda hafði hann margsagt það sjálfur, síðast um leið og hann skrifaði undir. Gömul sölutækni endurvakin Þessi gamla og gagnmerka sölutækni hefur nú verið endurvakin, og það á æðstu stöðum. Utanríkisráðherra landsins ferðast nú um héruð og boðar fagnaðarerindið um pakkann sem þjóðin fái að kíkja í hinn 29. ágúst. Enginn sé að ganga í neitt, enginn að skuldbinda sig til nokkurs hlutar, aðeins sé verið að forvitnast, rétt eins og gert er við jólatréð á aðfangadagsmorgun. Þjóðin megi svo alveg skila pakkanum ef innihaldið hugnist henni ekki. Þú kíkir ekkert í pakka hjá ESB! Það er auðvitað hugulsamt af ráðherranum að einfalda málið svona fyrir kjósendur, sem ella kynnu að ruglast á smáatriðum. Eitt af þessum smáatriðum er að ríki kíkja ekki í pakka hjá Evrópusambandinu. Ríki sækja um aðild. Umsóknarríki heitir umsóknarríki á öllum tungumálum sambandsins og í öllum skjölum þess, og í Brussel hefur aldrei nokkur maður hitt fyrir ríki sem var statt í aðildarferli í skoðunarerindum. Ferlið sjálft gengur út á það eitt að umsóknarríkið lagi löggjöf sína, kafla fyrir kafla, að reglum sambandsins, uns ekkert stendur eftir að semja um annað en dagsetningar. Sá sem segir "já" í ágúst er því ekki að gægjast neitt. Hann er að skrifa undir hjá sölumanninum og fullvissa sjálfan sig um leið um að hann sé alls ekki að kaupa neitt. Að kaupa köttinn í sekknum Gamalt heilræði segir að menn skuli ekki kaupa köttinn í sekknum. Ríkisstjórnin hefur snúið þessu við af nokkurri hugkvæmni. Nú er þjóðinni sagt að hún fái einmitt að gá í sekkinn, og það alveg ókeypis, en látið liggja á milli hluta að um leið og hún leysir frá honum telst hún hafa pantað köttinn. Um innihald sekksins hefur ráðherrann að vísu þegar fullyrt sitthvað, meðal annars að þar bíði sjávarútvegsins rausnarlegar undanþágur. Þær undanþágur kannast enginn við í Brussel, og þegar starfsbræður ráðherrans á meginlandinu eru spurðir verða svörin með þeim hætti að kurteisast er að ætla að annar hvor aðilinn hafi ekki fengið minnisblaðið. Kristrún þegir þunnu hljóði Forsætisráðherra fylgist með þessu öllu af hliðarlínunni og lætur sér fátt um finnast, enda mun stjórnarsáttmálinn kveða á um að atkvæðagreiðslan sé einungis ráðgefandi. Það orð er svo þriðja smáatriðið sem óþarft þykir að ræða við kjósendur, því ráðgefandi atkvæðagreiðsla sem ríkisstjórn hefur fyrirfram lýst yfir að farið verði eftir er ráðgefandi með nokkuð sérstökum hætti, líkt og sölumaðurinn forðum var gestur með nokkuð sérstökum hætti. Hvað sendur eftir í hillunum? Í hillunni hjá mér standa "Úr torfkofanum inn í tækniöld í þremur bindum, Andbyr í fjórum bindum og heildarplötusafn Herberts Guðmundssonar. Gömlu alfræðiritin standa enn í hillum víða um bæinn, óhreyfð að kalla, og minna heimilisfólkið á að forvitnin er sjaldan jafndýr og þegar hún er auglýst ókeypis. Þjóðin ætti að rifja það upp áður en hún opnar dyrnar í ágúst. Sölumaðurinn er þegar kominn í forstofuna. Höfundur er læknir og fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar