Viðskipti erlent

Birtu tíu til­lögur að nýjum seðlum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Til stendur að skipta þessum seðlum út.
Til stendur að skipta þessum seðlum út. Vísir/Getty

Seðlabanki Evrópu hyggst breyta útliti peningaseðla sinna. Íbúar í Evrópusambandinu geta greitt atkvæði um tíu tillögur að nýju seðlunum.

Seðlabanki Evrópu kynnti í dag hönnunartillögurnar tíu sem eru komnar í úrslit fyrir næstu útgáfu seðlanna. Bankastjóri Seðlabankans mun sjálfur velja eina af tillögunum sem sigurvegara en segir í tilkynningu frá bankanum að skoðun íbúanna komi einnig til með að hafa áhrif á valið.

Tvenns konar hönnunartillögur stóðu til boða, annars vegar evrópsk menning og hins vegar fljót og fuglar. Yfir 1200 bárust og valdi óháð dómnefnd tíu hönnunartillögur í úrslit. 

„Evruseðlar eru meira en bara greiðslumiðill - þeir eru ein áþreifanlegasta birtingarmynd Evrópu,“ er haft eftir Christine Lagarde, forseta Seðlabanka Evrópu, í tilkynningu.

Í tilkynningunni kemur fram að með því að gefa reglulega út nýjar útgáfur seðla er hægt að nýta tækniframfarir til að vera skrefi á undan fölsurum. Til stendur að taka nýju seðlana í notkun í byrjun næsta árs.

Allar tillögurnar má sjá hér að neðan.

Tillaga ASeðlabanki Evrópu/Studio Joost Grootens
Tillaga B.Seðlabanki Evrópu/PunktFormStrich
Tillaga C.Seðlabanki Evrópu/Neue Gestaltung GmbH
Tillaga D.Seðlabanki Evrópu/Rudy Guedj and François Girard-Meunier
Tillaga E.Seðlabanki Evrópu/Myrsini Vardopoulou
Tillaga F. Seðlabanki Evrópu/Jan Robert Dünnweller
Tillaga GSeðlabanki Evrópu/Rubio & del Amo and Cruz más Cruz
Tillaga H.Seðlabanki Evrópu/ Atelier Goppel-Toperngpong
Tillaga ISeðlabanki Evrópu/Isabelle Daeron
Tillaga JSeðlabanki Evrópu/Ville Tietäväinen





Fleiri fréttir

Sjá meira


×