Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar 27. júlí 2026 11:32 1. Segjum nei við að fjarlægja valdið frá fólkinu og koma tugþúsundum skriffinna í Brussel á milli fólksins og valdsins. Þú kýst ekki skriffinnana í burtu. 2. Segjum nei við orkumálum ESB sem eru veikburða og þar sem orkukostnaður er margfalt meiri en á Íslandi. 3. Segjum nei við flóknu regluverki ESB sem hefur drepið ný- og verðmætasköpun í Evrópusambandinu. 4. Segjum nei við vanhugsaðri innflytjendastefnu ESB sem hefur kostað ógrynni og skapað veruleg félagsleg vandræði. 5. Segjum nei við óstjórnlegum skuldum lífeyriskerfa þjóða ESB sem hanga eins og snjóhengja yfir Evrópusambandinu og munu kalla á mikla kjararýrnun á næstu árum. 6. Segjum nei við hótunum utanríkisráðherra sem segir:„…það munu hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir almenning ef „nei“ verður niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslu…“ í ágúst. Við þekkjum viðlíka hótanir í kringum Icesave-atkvæðagreiðsluna. Og hvernig fór það? 7. Segjum nei við minna fæðuöryggi. Við sáum það glögglega að enginn er annars bróðir í leik, s.s. í fjármálahruninu og C-19-faraldrinum. Þá stóðu menn einir og landamæri lokuð. 8. Segjum nei við að koma um 70 fríverslunarsamningum í uppnám vegna viðræðna við ESB. 9. Segjum nei við að koma einstökum varnarsamningi okkar við USA í uppnám. 10. Segjum nei við að rýra málskotsréttinn, lýðræðistrygginguna, að geta kallað á þjóðaratkvæðagreiðslur eins og um Icesave án afskipta ESB. Grikkir vildu fara sömu leið og Íslendingar en ESB-valdið kom í veg fyrir það og Grikkir voru settir á hnén þar sem þýskir og franskir bankar blóðsugu þjóðina árum saman. 11. Segjum nei við að frysta framkvæmdir og athafnir hérlendis þegar áralöng óvissa er í gangi á meðan „kíkt er í pakkann“. 12. Segjum nei við efnahagslegri stöðnun ESB. 13. Segjum nei við að senda eldhugum og baráttumönnum fyrri tíma fingurinn með því að höggva í sjálfstæði og yfirráð okkar yfir okkar málum. 14. Segjum nei við að leyfa stjórnvöldum að hunsa öll þau brýnu mál sem öskra á okkur hérlendis, s.s. lækkun vaxta og verðbólgu og menntamálin, á meðan öll athyglin fer í að ganga í Evrópusambandið. --- Með því að segja nei í ágúst erum við m.a. að segja já við: Bestu lífskjörum í heimi skv. Sameinuðu þjóðunum.Mesta jafnrétti í heimi.Mesta öryggi í heimi.Mesta jöfnuði í heimi.Einum mesta kaupmætti (hvað við fáum fyrir peningana okkar) í heimi. Fórnum ekki þessum mikilvægustu þáttum hverrar þjóðar fyrir minnsta stól í Evrópu. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar